1
Innlent

Miðflokkurinn „setur kynferðisbrotamanninn í fyrsta sæti“

2
Innlent

Ung íslensk stúlka rænd á Tenerife

3
Fólk

Selja glæsilegt einbýli sem þarfnast umhyggju

4
Innlent

Reykvíkingur kom lögreglunni á óvart með óútreiknanlegri hegðun

5
Heimur

Nýjar Epstein-myndir sagðar sýna Andrew prins með ungum konum

6
Pólitík

„Orðrómar um að ég sé að fara yfir í Miðflokkinn eru stórlega ýktir“

7
Innlent

Helgi Bjartur áfram í gæsluvarðhaldi fyrir meint barnaníð

8
Innlent

Innbrot í heimabæ Stjörnunnar

9
Heimur

Pútín-kvikmynd Jude Law veldur deilum í Evrópu

10
Pólitík

Smári McCarthy: Aðild að ESB þýðir ekki að Ísland missi sjálfstæði

Til baka

Glímir við eina mestu ráðgátu norrænnar sögu í nýjustu bók sinni

Valur Gunnarsson snýr sjónum sínum að dularfullu hvarfi norrænna manna frá Grænlandi

Valur Gunnarsson
Valur GunnarssonValur ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur
Mynd: Víkingur

Valur Gunnarsson, rithöfundur og sagnfræðingur, hefur um árabil vakið athygli fyrir lifandi frásagnir af sögu og samfélagi, en í nýjustu bók sinni snýr hann sjónum að einni mögnuðustu ráðgátu norrænnar sögu: hvarfi norrænna manna á Grænlandi. Hugmyndin kviknaði þegar ferð til Grænlands tók óvænta stefnu og leiddi hann um slóðir Eiríks rauða, að fornri kirkju í Hvalsey og inn í heim sem speglar bæði Ísland og Evrópu, en er um leið allt annars eðlis. Í bókinni sameinar Valur ferðasögu, sagnfræði og persónulegt sjónarhorn þar sem hann leitast við að ráða í örlög samfélags sem talaði íslensku, lifði þar í 500 ár, og hvarf svo sporlaust á 15. öld. Þar fléttast saman loftslagsbreytingar, nýlendustefna, menningarmót, þjóðfélagsumræða, og jafnvel eldgos.

Mannlíf ræddi við Val um nýju bókina.

Hvernig datt þér í hug að skrifa bók um Grænland og sögu norrænna manna þar í landi?

„Eins og allt var þetta blanda af tilviljunum og óhjákvæmileika. Mér var boðið í heimsókn af íslenskum hreindýrabónda á Grænlandi en sökum harmleiks sem sagt er frá í bókinni festist ég í bænum Narsaq á leiðinni. Eftir dvölina á hreindýrabúinu ferðaðist ég svo um Suður-Grænland þar sem flestir norrænir menn bjuggu áður, meðal annars Bröttuhlíð Eiríks rauða. Í Hvalsey sá ég kirkju byggða um 1300 sem er mun glæsilegri en nokkuð sem við höfum frá miðöldum. Ég varð mjög forvitinn um þetta samfélag sem taldi um 3000 manns þegar mest var og talaði íslensku en hvarf svo skyndilega á 15. öld. Ég er svo að hluta til uppalinn í Noregi og hef lært í Finnlandi, Danmörku og jafnvel í Fróðleikssetrinu á Færeyjum og fannst nauðsynlegt að gera tilraun til að leysa þessa mestu gátu norrænnar sögu.“

Valur Gunnarsson
Mynd: Víkingur

Hvernig myndirðu lýsa bókinni?

„Þetta er sagnfræðileg ráðgáta og ferðasaga í bland, að hætti hússins. Siglt er í gegnum ísjakabelti og kíkt á barinn og spjallað við heimamenn og minjar skoðaðar. Rakin er saga Grænlands frá því Danir sneru aftur á 18. öld og fram á daginn í dag, nútímavæðingu og nýlendustefnu, lykkjumál og hermál og Trump. En fyrst og síðast er verið að fjalla um lífsbaráttu norrænna manna á Grænlandi í 500 ár og hvað af þeim varð, fólkið sem hvarf.“

Hvað stóð upp úr ferðalagi þínu um Grænland að þínu mati?

„Grænland er svo nálægt okkur en samt svo fjarrænt. Sumpart er þetta annar heimur með allt annarri menningu, en stundum eins og spegilmynd af Íslandi. Ísland er eitt yngsta land í heimi með virkum eldfjöllum, Grænland er eitt elsta land í heimi með bakteríum sem eru mun eldri en við og því ekki óhætt að drekka lindarvatnið. Að einhverju leyti er Grænland jafn ósnert og Ísland var fyrir nokkrum áratugum, það eru engir útsýnispallar og fáar minjagripabúðir og ekki einu sinni slóði að kirkjunni í Hvalsey. Hann er víst kominn núna og hlutirnir að breytast. Grænlendingar vita mikið um okkur og margir hafa komið hingað og merkilegt nokk sjá þeir Ísland sem fyrirmynd í sjálfstæðisheimti sínu. Við vitum hins vegar sáralítið um þá og hér er reynt að bæta úr að einhverju leyti.“

Valur Gunnarsson
Mynd: Víkingur

Nú fjallar bókin að miklu leyti um dularfullt hvarf norrænna manna sem bjuggu í Grænlandi, ertu búinn að leysa ráðgátuna um hvarfið?

„Ég tek fyrir þær kenningar sem settar hafa verið fram í aldanna rás og skoða hvað er hæft. Framan af voru menn mest uppteknir af átakakenningum, hvort sem Inúítum eða jafnvel enskum sjóræningjum var kennt um árásir. Í seinni tíð hafa loftslagsmálin skipt meira máli, enda vitum við að það varð kaldara. Einnig hafa sumir lagt til efnahagshrun eða farsótt, eitthvað sem við sjálf þekkjum. Kenningarnar segja okkur sitthvað um hvar við sjálf erum stödd, enda sjáum við söguna út frá eigin samtíma. En já, ég legg til eina tilgátu. Eldgos kemur við sögu.“

Valur Gunnarsson
Mynd: Víkingur
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Viðskotaillur bílstjóri ók á gangandi vegfaranda
Innlent

Viðskotaillur bílstjóri ók á gangandi vegfaranda

Ofurfyrirsæta segir tvíkynhneigða karlmenn vera „óaðlaðandi“
Heimur

Ofurfyrirsæta segir tvíkynhneigða karlmenn vera „óaðlaðandi“

Loftvarnarflautur hljóma nú stanslaust í Ísrael
Heimur

Loftvarnarflautur hljóma nú stanslaust í Ísrael

„Orðrómar um að ég sé að fara yfir í Miðflokkinn eru stórlega ýktir“
Pólitík

„Orðrómar um að ég sé að fara yfir í Miðflokkinn eru stórlega ýktir“

Tafir eftir árekstur flutningabíla á Fjarðarheiði
Landið

Tafir eftir árekstur flutningabíla á Fjarðarheiði

Nýjar Epstein-myndir sagðar sýna Andrew prins með ungum konum
Myndir
Heimur

Nýjar Epstein-myndir sagðar sýna Andrew prins með ungum konum

Miðflokkurinn „setur kynferðisbrotamanninn í fyrsta sæti“
Innlent

Miðflokkurinn „setur kynferðisbrotamanninn í fyrsta sæti“

Smári McCarthy: Aðild að ESB þýðir ekki að Ísland missi sjálfstæði
Pólitík

Smári McCarthy: Aðild að ESB þýðir ekki að Ísland missi sjálfstæði

Helgi Bjartur áfram í gæsluvarðhaldi fyrir meint barnaníð
Innlent

Helgi Bjartur áfram í gæsluvarðhaldi fyrir meint barnaníð

Minnist James Van Der Beek með áður óbirtum myndum
Myndir
Heimur

Minnist James Van Der Beek með áður óbirtum myndum

Ung íslensk stúlka rænd á Tenerife
Innlent

Ung íslensk stúlka rænd á Tenerife

Pútín-kvikmynd Jude Law veldur deilum í Evrópu
Heimur

Pútín-kvikmynd Jude Law veldur deilum í Evrópu

Pólskur maður ákærður fyrir fíkniefnasmygl
Innlent

Pólskur maður ákærður fyrir fíkniefnasmygl

Menning

Brosið hans Krumma
Menning

Brosið hans Krumma

Það er gott að brosa
Auðunn í aðalhlutverki á Hulu
Menning

Auðunn í aðalhlutverki á Hulu

Ofbeldi og erótík í Breiðholti
Menning

Ofbeldi og erótík í Breiðholti

Bjartmar heiðraður fyrir austan
Menning

Bjartmar heiðraður fyrir austan

Brotthvarf Sölku Sólar hluti af stórum breytingum á Rás 2
Menning

Brotthvarf Sölku Sólar hluti af stórum breytingum á Rás 2

Kristmundur Axel fáviti eftir allt
Menning

Kristmundur Axel fáviti eftir allt

Loka auglýsingu