
Haukur Guðmundsson, fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður í Keflavík, er látinn. Hann lést á Sjúkrahúsinu í Keflavík í gær.
Magnús Hlynur Hreiðarsson, fréttamaður og bróðursonur Hauks, greinir frá andláti hans í færslu á Facebook. Samkvæmt heimildum DV hafði Haukur átt við veikindi að stríða síðustu mánuði.
Haukur fæddist 7. júní 1944 á Brekku í Vogum á Vatnsleysuströnd. Hann bjó lengst af á Suðurnesjum, einkum í Keflavík og Njarðvík.
Á starfsferli sínum sinnti hann meðal annars rekstri eigin kranabílaþjónustu. Hann var þó þekktastur fyrir störf sín sem rannsóknarlögreglumaður í Keflavík, þar sem hann kom meðal annars að rannsókn á hvarfi Geirfinns Einarssonar.
Árið 2010 kom út sjálfsævisaga hans, 19. nóvember, sem Freyja Jónsdóttir skrásetti.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment