
Bílaumboðið Hekla
Mynd: Hekla
Hekla hefur sent frá sér tilkynningu um innköllun á Skoda Fabia, Octavia og Yeti 2014-2016 og Audi TT 2015 - 2017 og R8 2016-2017 en greint er frá þessu á vef HMS.
Allar innkallanirnar eru hluti af svokallaðri Takata loftpúðainnköllun. Ef loftpúði virkjast við árekstur er möguleiki á að málmflísar skjótist út í farþegarýmið og skaði ökumann og mögulega farþega.
Mun Hekla skoða hvort Takata loftpúðar séu í ökutækinu og ef svo er verður skipt um loftpúðann.
Eru eigendur beðnir um að hafa samband við Heklu og panta tíma í viðgerðarþjónustu hjá þeim.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment