
Lögreglan í Rio de Janeiro handtók í síðustu viku átta manns fyrir að misþyrma flóðsvíni, eða capybara, á hrottalegan hátt. Flóðsvínið er stærsta nagdýr heims og hefur afslappað fas þess verið notað í „meme“ ótal sinnum á netinu á undanförnum árum.
Flóðsvínið (Hydrochoerus hydrochaeris), sem líkist risastóru, blíðum naggrís með úfinn, ljósbrúnan feld, sést oft á vappi í brasilísku borginni, sérstaklega nálægt lækjum og lónum.
Í atviki sem náðist á öryggismyndavélar fyrir dögun þarsíðustu helgi, réðst hópur árásarmanna á flóðsvínið með prikum og járnstöngum í verkamannahverfinu Ilha do Governador.
„Þetta er hrottalegur glæpur sem skekur samfélagið,“ hefur dagblaðið O Globo eftir Felipe Santoro, lögreglustjóranum sem fer með rannsóknina.
„Þetta er gríðarleg grimmd gagnvart skepnu sem stafaði nákvæmlega engin ógn af ... en var samt ráðist á af ásettu ráði,“ bætti hann við.
Kennsl voru borin á árásarmennina – þar á meðal tvo ólögráða – með upptökum úr eftirlitsmyndavélum og voru þeir handteknir eftir árásina, sagði lögreglan í yfirlýsingu.
Flóðsvínið, 65 kílóa karldýr, var flutt á dýralífsmiðstöðina (CRAS) við einkarekna Estacio-háskólann í suðvesturhluta Rio.
„Við höfum meðhöndlað dýralíf Rio hér í 22 ár og ég hef aldrei áður fengið capybara sem hefur orðið fyrir jafn grófri árás,“ sagði dýralæknirinn og yfirmaður CRAS, Jeferson Pires, við AFP.
Hann sagði að dýrinu liði betur en væri „með höfuðáverka, bólgu með innvortis blæðingum í kringum vinstra augað og marga áverka á bakinu.“
Á undanförnum árum hefur flóðsvínið, sem lifir bæði í vatni og á landi og er upprunnið í Suður-Ameríku, eignast dyggan aðdáendahóp á netinu og mynd þess er í auknum mæli notuð á leikföng, fatnað og heimilisvörur.
Það er oft notað í færslum um að vera „zen“ og láta sig reka.

Eitt vinsælt „meme“ er „Félagi flóðsvín“ – sem sýnir dýrið sem kommúnískan byltingarmann – innblásið af „innrás“ flóðsvína árið 2021 á lúxusíbúðasvæði í Argentínu sem byggt var á votlendi sem hafði verið náttúrulegt búsvæði þeirra.
Í byrjun janúar vakti dauði flækingshunds gríðarlega reiðibylgju í Brasilíu, eftir að hann var barinn til bana af unglingum. Það varð til þess að forsetafrúin Rosangela „Janja“ da Silva tjáði sig um málið.
Komment