1
Fólk

Tískudrottning og frétta­maður selja í Vesturbænum

2
Innlent

Elko innkallar ofn vegna brunahættu

3
Heimur

Dánarorsök glímukappans PAC opinberuð

4
Fólk

Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu

5
Heimur

Reyndu allar mögulegar meðferðir til að bjarga fjögurra ára syni sínum

6
Fólk

Fimm algeng mistök sem geta eyðilagt sambandið

7
Heimur

Segir risastórt geimskip hafa þotið fram hjá sólinni á nærri ljóshraða

8
Fólk

„Það besta sem ég hef upplifað“

9
Heimur

Ætlaði að fæla burt könguló en brenndi niður lúxusvillu

10
Menning

Glæpir, örlög og góður félagsskapur í Árbænum

Til baka

Hundar halda áfram að bíta fólk í Reykjavík

„Þrír hundar réðust á mig og einn þeirra beit hressilega í kálfann“

Border Collie
Border Collie-hundurMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Rocbag/Wikipedia

Tveir Border Collie-hundar sem gengu lausir við Reynisvatn í Grafarholti réðust á fólk um helgina og hafa að minnsta kosti tveir einstaklingar leitað á slysadeild vegna meiðsla sem þeir hlutu en Vísir greindi fyrst frá málinu.

Málið er nú komið til skoðunar hjá Matvælastofnun og lögregla var kölluð á vettvang á laugardag vegna hundanna.

Í kjölfar umfjöllunar um árásirnar hafa fleiri einstaklingar stigið fram og greint frá sambærilegum atvikum tengdum sömu hundum. Margir hafa lýst yfir áhyggjum af hegðun hundanna og telja sumir að eigandi þeirra ráði ekki nægilega vel við að halda þeim í skefjum.

Einn maður, sem vildi ekki láta nafns síns getið, sagði við Vísi að hann hefði lent í árás hundanna fyrir um þremur vikum þegar hann var á göngu með eigin hund við Reynisvatn.

„Við gengum fram á tvær konur með þrjá Border Collie-hunda. Þeir reyndust mjög æstir og réðust strax á litla hundinn minn og bitu hann til blóðs. Ég tók hundinn minn strax í fangið og konurnar komu böndum á hundana og ég fékk því til leiðar komið að við gengum í gagnstæðar áttir,“ sagði maðurinn.

Katrín Árnadóttir varð einnig fyrir árás hundanna á laugardag þegar hún var að hlaupa í kringum Reynisvatn um miðjan dag.

„Mig grunar að ég hafi verið bitin fyrst, ég var að byrja þarna að hlaupa hringinn og sé þessa konu vera með hundana að baða sig þegar þeir vaða að mér rennandi blautir og einn þeirra bítur mig í kálfann,“ segir Katrín í samtali við blaðamann Vísis.

Sömu hundar bitu hlaupara í Árbæ

Talið er að um sömu hunda sé að ræða og réðust á Daníel Sigurbjartsson við Rauðavatn.

„Ég hleyp í kringum Rauðavatn nokkrum sinnum í viku og hef gert lengi. Í dag lenti ég í ótrúlegu atviki þegar þrír hundar réðust á mig og einn þeirra beit hressilega í kálfann á mér, svo ég þurfti að eyða nokkrum tímum á slysó. Eigandinn réð ekkert við þá og stóð bara hjá aðgerðarlaus. Allt við þessa uppákomu var eigandanum gjörsamlega til skammar,“ skrifar Daníel um málið.

Elísabet Helga Erlendsdóttir skrifaði svo í athugasemd að hún kannist við slíka hegðun við Rauðavatn.

„Ég lenti i svipuðu atviki um síðustu helgi þar sem hundur réðst á mig upp við vatnið og eigandinn gerði ekkert kippti sér ekki einu sinni upp við þegar við kölluðum að henni að hann hefði bitið mig. Það var svartur hundur sem ég var ekki alveg greint tegundina en hún var svo með fleiri hunda með sér,“ skrifar Elísabet og spyr svo að lokum hvað sé hægt að gera í svona aðstæðum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Smiður hylltur sem hetja eftir að hann stöðvaði skotárás í skóla
Heimur

Smiður hylltur sem hetja eftir að hann stöðvaði skotárás í skóla

Mætti árásarmanninum vopnaður byssu
Miranda Hart brast í grát eftir brotthvarf Joe Lycett úr Celebrity Traitors
Heimur

Miranda Hart brast í grát eftir brotthvarf Joe Lycett úr Celebrity Traitors

Segir risastórt geimskip hafa þotið fram hjá sólinni á nærri ljóshraða
Heimur

Segir risastórt geimskip hafa þotið fram hjá sólinni á nærri ljóshraða

„Það besta sem ég hef upplifað“
Fólk

„Það besta sem ég hef upplifað“

Hnífamaður handtekinn á skemmtistað í miðborginni
Innlent

Hnífamaður handtekinn á skemmtistað í miðborginni

Reyndu allar mögulegar meðferðir til að bjarga fjögurra ára syni sínum
Heimur

Reyndu allar mögulegar meðferðir til að bjarga fjögurra ára syni sínum

Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu
Myndir
Fólk

Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu

Dánarorsök glímukappans PAC opinberuð
Heimur

Dánarorsök glímukappans PAC opinberuð

Ólöglegir landnemar réðust á bandarískan blaðaljósmyndara á Vesturbakkanum
Myndband
Heimur

Ólöglegir landnemar réðust á bandarískan blaðaljósmyndara á Vesturbakkanum

Glæpir, örlög og góður félagsskapur í Árbænum
Menning

Glæpir, örlög og góður félagsskapur í Árbænum

Fimm algeng mistök sem geta eyðilagt sambandið
Fólk

Fimm algeng mistök sem geta eyðilagt sambandið

Ætlaði að fæla burt könguló en brenndi niður lúxusvillu
Heimur

Ætlaði að fæla burt könguló en brenndi niður lúxusvillu

Elko innkallar ofn vegna brunahættu
Innlent

Elko innkallar ofn vegna brunahættu

Innlent

Hnífamaður handtekinn á skemmtistað í miðborginni
Innlent

Hnífamaður handtekinn á skemmtistað í miðborginni

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

Elko innkallar ofn vegna brunahættu
Innlent

Elko innkallar ofn vegna brunahættu

Ökumenn reyndu bæði bensíngjöfina og hlaupaskóna
Innlent

Ökumenn reyndu bæði bensíngjöfina og hlaupaskóna

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg
Myndband
Innlent

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

Loka auglýsingu