1
Innlent

Þóra í Bakkakoti skellti á fósturbörnin

2
Innlent

„Hún misnotaði mig kynferðislega og barði mig sundur og saman“

3
Fólk

Margrét Marteinsdóttir skiptir um gír

4
Fólk

Fyrrum þingmaður fer í sitt gamla hlutverk

5
Heimur

Ringulreið og ófremdarástand á stærsta flugvelli Tenerife

6
Fólk

Ásgeir Erlends rúllaði upp náminu

7
Landið

Akureyringur ákærður fyrir hálft gramm af tóbaksblönduðu kannabisefni

8
Innlent

Árekstur tveggja bíla í Garðabæ

9
Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá

10
Heimur

Channing Tatum fór í skurðaðgerð

Til baka

Illugi minnist Halldórs Blöndals

„Hann var vissulega með skemmtilegri mönnum“

Illugi Jökulsson

Rithöfundurinn og fjölmiðlamaðurinn Illugi Jökulsson minnist Halldórs Blöndals, fyrrverandi forseta Alþingis og ráðherra, í Facebook-færslu í kjölfar andláts hans. Þar rifjar Illugi upp fyrstu kynni sín af Halldóri þegar hann var ungur blaðamaður á Vísi.

Illugi segir að þegar hann var tvítugur hafi hann tekið röð stórra helgarviðtala við ýmsa Íslendinga, meðal annars stjórnmálamenn, þrátt fyrir að áhugi hans á íslenskri flokkapólitík hafi verið lítill á þeim tíma.

„Einu sinni datt mér í hug að taka viðtöl við til þess að gera unga íslenska stjórnmálamenn þó ég hefði þá nær engan áhuga á íslenskri flokkapólitík og hefði lítið fylgst með því ati öllu,“ skrifar Illugi.

Hann hóf þá viðtalsröðina á Jóni Baldvini Hannibalssyni og Svavari Gestssyni, en segir að næst hafi komið að fulltrúum Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Hann hafi þó haft eitt skilyrði.

„Eina skilyrðið var að viðkomandi þurfti að vera skemmtilegur.“

Illugi segist ekki hafa verið sannfærður um yngri kynslóð Sjálfstæðismanna á þeim tíma og leitaði ráða hjá móður sinni, sem benti honum á Halldór Blöndal.

„Svo ég fór og tók viðtal við Halldór Blöndal og hann tók mér fagnandi og viðtalið tókst svona ljómandi vel, fannst mér, enda var Halldór vissulega með skemmtilegri mönnum,“ skrifar Illugi.

Hann segir hlýju hafa fylgt honum í garð Halldórs allar götur síðan og að Halldór hafi haldið áfram að vera „með skemmtilegri mönnum í íslenskri pólitík“. Síðustu kynni þeirra hafi verið í heita pottinum á Seltjarnarnesi fyrir fáeinum árum.

„Hann fór eitthvað að hnotabítast við mig út af einhverju sem ég hafði sagt eða skrifað um pólitík en allt var það í mestu góðsemi og húmor,“ segir Illugi.

Í lok færslunnar vottar Illugi aðstandendum Halldórs samúð sína og þakkar honum sérstaklega fyrir viðtalið sem þeir áttu fyrir 45 árum.

„Nú er Halldór látinn og ég votta ástvinum hans og afkomendum alla mína hluttekningu, og þakka honum sjálfum fyrir þetta ágæta viðtal fyrir 45 árum.“

Að lokum bætir Illugi við léttum tón:

„Það má svo fylgja sögunni að ég fann aldrei skemmtilegan Framsóknarmann.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Fantur reyndi að stinga mann
Innlent

Fantur reyndi að stinga mann

Grímur skipaður í mjög viðeigandi stýrihóp
Pólitík

Grímur skipaður í mjög viðeigandi stýrihóp

Friðgeir dæmdur fyrir hatursorðræðu
Innlent

Friðgeir dæmdur fyrir hatursorðræðu

Innflytjendur fá 200 milljónir frá Ingu
Innlent

Innflytjendur fá 200 milljónir frá Ingu

Magnús Erlendsson er fallinn frá
Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá

Fræg mæðgin í eldlínunni
Slúður

Fræg mæðgin í eldlínunni

Jóhann Páll verndar formfagran gíg
Pólitík

Jóhann Páll verndar formfagran gíg

Ringulreið og ófremdarástand á stærsta flugvelli Tenerife
Heimur

Ringulreið og ófremdarástand á stærsta flugvelli Tenerife

Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eiga von á barni
Fólk

Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eiga von á barni

Frábært fjölskylduhús fáanlegt
Myndir
Fólk

Frábært fjölskylduhús fáanlegt

Akureyringur ákærður fyrir hálft gramm af tóbaksblönduðu kannabisefni
Landið

Akureyringur ákærður fyrir hálft gramm af tóbaksblönduðu kannabisefni

Árekstur tveggja bíla í Garðabæ
Myndband
Innlent

Árekstur tveggja bíla í Garðabæ

Margrét Marteinsdóttir skiptir um gír
Fólk

Margrét Marteinsdóttir skiptir um gír

Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá
Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá

Jóhannes Sigurjónsson er látinn
Minning

Jóhannes Sigurjónsson er látinn

Arnór L. Pálsson er fallinn frá
Minning

Arnór L. Pálsson er fallinn frá

Ingi Kristján Pétursson er látinn
Minning

Ingi Kristján Pétursson er látinn

Pétur Bjarnason er fallinn frá
Minning

Pétur Bjarnason er fallinn frá

Kristinn Svavarsson er fallinn frá
Minning

Kristinn Svavarsson er fallinn frá

Loka auglýsingu