1
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

2
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

3
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

4
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

5
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

6
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

7
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

8
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

9
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

10
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

Til baka

JD Vance viðurkennir mistök vegna birtingar Epstein-skjalanna

„Við klúðruðum þessu“

JD Vance
JD VanceVaraforsetinn segir fráleitt að Trump sé barnaníðingur
Mynd: Gage Skidmore/Flickr

Mál Jeffrey Epstein og birting skjala sem tengjast honum hefur tekið margar óvæntar beygjur á undanförnum misserum.

Í forsetabaráttunni lofaði Donald Trump að birta öll skjöl sem tengdust Jeffrey Epstein, dæmdum barnaníðingi sem lést í alríkisfangelsi fyrir tæpum sjö árum.

Síðar snerist forsetinn þó ítrekað hugur um málið.

Í nóvember undirritaði Trump engu að síður lög sem kváðu á um að dómsmálaráðuneytið skyldi birta skjölin. Í fyrstu umferð, í desember, voru aðeins um 33 þúsund skjöl gerð opinber.

Eftir harða gagnrýni voru um þrjár milljónir skjala til viðbótar birtar í janúar á þessu ári. Sú birting sætti einnig gagnrýni, meðal annars vegna þess að upphaflega hafði verið boðað að alls sex milljónir skjala yrðu birtar. Þá komu engin ný nöfn eða nýjar upplýsingar fram í skjölunum.

„Við klúðruðum þessu“

JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, segir stjórnvöld hafa brugðist illa við málinu.

„Við klúðruðum þessu,“ sagði hann í hlaðvarpsþættinum The Joe Rogan Experience, sem birtur var í gær.

„Fólk segir að við höfum farið illa með birtingu Epstein-skjalanna og það er rétt. Sérstaklega hvernig við miðluðum upplýsingum um málið.“

Þegar Joe Rogan spurði hvað stjórnvöld hefðu átt að gera öðruvísi svaraði Vance:

„Það hefði átt að birta öll skjölin strax í upphafi, eins fljótt og auðið var.“

Hann bætti þó við að nauðsynlegt hefði verið að afmá ákveðnar upplýsingar til að tryggja að ekki væri hægt að bera kennsl á fórnarlömb.

Segir samsæriskenningar um Trump fáránlegar

Vance, sem lýsti sjálfum sér sem „upprunalegum samsæriskenningamanni þegar kemur að Epstein-skjölunum“ og sagðist hafa skoðað málið frá öllum hliðum, sagði jafnframt að fyrrverandi dómsmálaráðherrann Pam Bondi hefði ýkt mikilvægi innihalds skjalanna áður en þau voru birt.

Að hans sögn reyndi hún einfaldlega að bregðast við pólitísku andrúmsloftinu.

Hann hafnaði jafnframt þeim kenningum að skjöl hefðu verið vísvitandi fjarlægð eða ritskoðuð til að hægt væri að kúga Donald Trump.

„Það er einfaldlega ósatt,“ sagði Vance.

Hann hafnaði einnig því að dómsmálaráðuneytið hefði dregið birtinguna á langinn til að fela upplýsingar.

Vance sagði að lokum að hann hefði sjálfur farið yfir stærstan hluta skjalanna og fullyrti að þar væri ekkert sem benti til þess að Trump hefði gerst sekur um kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingum.

„Ég hef séð flest skjölin og þar eru engin trúverðug gögn sem sýna að Trump hafi átt í óviðeigandi samskiptum við ólögráða einstaklinga. Aldrei. Sú hugmynd að hann sé einhvers konar barnaníðingur er fáránleg.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Atlantsolía aldrei grætt meira
Peningar

Atlantsolía aldrei grætt meira

Tekjur Atlantsolíu hafa hins vegar farið lækkandi frá árinu 2022
Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur
Myndband
Heimur

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum
Heimur

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum

Risastór gagnaleki skekur Danmörku
Heimur

Risastór gagnaleki skekur Danmörku

Leitaði til umboðsmanns vegna þvingaðrar lyfjagjafar
Innlent

Leitaði til umboðsmanns vegna þvingaðrar lyfjagjafar

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni
Fólk

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

Fyrrverandi eiginmaður Katie Price ákærður fyrir nauðgun á 13 ára stúlku
Heimur

Fyrrverandi eiginmaður Katie Price ákærður fyrir nauðgun á 13 ára stúlku

Stella breytir garnafgöngum í nýja uppáhaldspeysu
Menning

Stella breytir garnafgöngum í nýja uppáhaldspeysu

Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

„Þetta er einfaldlega hörmulegt“
Risastór gagnaleki skekur Danmörku
Heimur

Risastór gagnaleki skekur Danmörku

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur
Myndband
Heimur

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum
Heimur

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum

Loka auglýsingu