
Jóhannes Sigurjónsson lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 1. janúar síðastliðinn, 86 ára að aldri. Frá andlátinu greinir Akureyri.net.
Jóhannes Sigurjónsson fæddist á Akureyri 6. september 1939 en foreldrar hans voru Sigurjón Jónsson, smiður frá Borgarhóli í Munkaþverársókn, fæddur 1. janúar 1886 og látinn 10. ágúst 1952, og Bára Jóhannesdóttir, húsmóðir og verkakona frá Glerá, fædd 14. maí 1917 og látin 15. febrúar 2006. Systir Jóhannesar var Erna, fædd 10. maí 1938, látin 14. febrúar 2011.
Sem barn og unglingur dvaldi Jóhannes mörg sumur í sveit, fyrst aðeins sex ára gamall, lengst af á Kálfborgará í Bárðardal. Hann stundaði nám við Barnaskóla Akureyrar og lærði húsgagnasmíði við Iðnskólann á Akureyri og hjá húsgagnasmiðjunni Valbjörk. Starfsævi sína helgaði hann að mestu húsasmíðum og starfaði lengst af hjá Híbýli og síðar hjá P. Alfreðssyni.
Jóhannes gekk að eiga Margréti Árnadóttur frá Víðimel í Skagafirði 7. apríl 1962. Foreldrar hennar voru Bára Jónsdóttir og Árni Jónsson. Hjónin bjuggu lengst af að Grundargerði 2h á Akureyri, en síðustu ár sín í Mýrarvegi 115 á Akureyri.
Synir þeirra eru Sigurjón, fæddur 2. maí 1962, og Árni, fæddur 15. júlí 1968. Eiginkona Árna er Guðrún Una Jónsdóttir, fædd 24. mars 1966. Börn þeirra eru Margrét, fædd 25. apríl 1999, sambýlismaður hennar er Hermann Rúnarsson, og Amalía, fædd 14. ágúst 2006, kærasti hennar er Tristan Ylur Guðjónsson. Sonur Guðrúnar Unu er Davíð G. Jónsson, fæddur 2. desember 1990, og dóttir hans er Amalía Eik, fædd 14. júlí 2017.
Jóhannes hafði um áratugaskeið mikinn áhuga á hestamennsku og var alla tíð ákafur veiðimaður, að því er fram kemur í umfjöllun Akureyrar.net.
Útför Jóhannesar fór fram frá Akureyrarkirkju 16. janúar en hann var jarðsettur í Lögmannshlíðarkirkjugarði.

Komment