1
Innlent

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg

2
Fólk

Tískudrottning og frétta­maður selja í Vesturbænum

3
Innlent

Elko innkallar ofn vegna brunahættu

4
Heimur

Dánarorsök glímukappans PAC opinberuð

5
Fólk

Fimm algeng mistök sem geta eyðilagt sambandið

6
Heimur

Ætlaði að fæla burt könguló en brenndi niður lúxusvillu

7
Menning

Glæpir, örlög og góður félagsskapur í Árbænum

8
Heimur

Ólöglegir landnemar réðust á bandarískan blaðaljósmyndara á Vesturbakkanum

9
Innlent

Ökumenn reyndu bæði bensíngjöfina og hlaupaskóna

10
Fólk

Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu

Til baka

Októberlægð á leiðinni til landsins sem gæti orðið sú dýpsta í áratugi

„Veðrið þá var víst ógurlegt“

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson

Veðurfræðingurinn Einar Sveinbjörnsson segir á Facebook-síðu sinni ástæðu til að fylgjast grannt með öflugri lægð sem gæti nálgast Ísland um miðja viku. Nýjustu spár gera ráð fyrir meiri dýpkun hennar en fyrri spár höfðu sýnt.

Einar greinir frá þessu í færslu á samfélagsmiðlum og birtir jafnframt myndir sem sýna áætlaða þróun og feril lægðarinnar. Samkvæmt honum sýnir nýjasta spá Evrópsku reiknimiðstöðvarinnar lægð sem kemur frá austanverðum Bandaríkjunum og sveigir norðaustur yfir Atlantshafið með stefnu á Ísland.

„Breyting frá spám gærdagsins er sú að dýpkunin er meiri en áður var gert ráð fyrir. Síðdegis á miðvikudag má þannig töluna 936 hPa skammt undan Hornafirði,“ skrifar Einar.

Hann segir svo djúpar lægðir vera fáséðar hér við land og rifjar upp sögulegt veður í því samhengi.

„Í október er aðeins einu sinni vitað til þess að loftvog hafi fallið niður fyrir 940 hPa í mælingu. Það gerðist 1963 þann 19. 938,4 hPa á Stórhöfða. Veðrið þá var víst ógurlegt.“

Einar segir skýringuna á mikilli dýpkun lægðarinnar meðal annars vera þá að hún gleypi aðra og minni lægð. Við það magnist hringhreyfingin og dýpkunin verði enn ákafari.

„Sjálf dýpkunin reiknast 44 hPa frá kl. 12 á morgun, þriðjudag, til kl. 12 á miðvikudag,“ segir Einar.

Þetta er breyting frá fyrri spám. Í keyrslum frá deginum áður hafi aðallægðin ýtt þeirri minni á undan sér og lægðaorkan því ekki nýst að fullu.

Einar segir mikilvægt að fylgjast mjög náið með þróuninni.

„Grannt þarf að fylgjast með þessari þróun næstu tvo til þrjá sólarhringa. Mjög djúpar lægðir eins og sú sem nú er í pípunum valda langoftast óskunda hér og stundum verulegum vandræðum og með eignatjóni.“

Enn er þó töluverð óvissa um nákvæman feril og styrk lægðarinnar. Einar slær því ákveðinn varnagla við spána og bendir á að margt geti breyst áður en hún nálgast landið.

„En það er enn langur vegur frá Atlanta til Akureyrar!“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu
Myndir
Fólk

Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu

Húsið var reist árið 1990
Dánarorsök glímukappans PAC opinberuð
Heimur

Dánarorsök glímukappans PAC opinberuð

Ólöglegir landnemar réðust á bandarískan blaðaljósmyndara á Vesturbakkanum
Myndband
Heimur

Ólöglegir landnemar réðust á bandarískan blaðaljósmyndara á Vesturbakkanum

Glæpir, örlög og góður félagsskapur í Árbænum
Menning

Glæpir, örlög og góður félagsskapur í Árbænum

Fimm algeng mistök sem geta eyðilagt sambandið
Fólk

Fimm algeng mistök sem geta eyðilagt sambandið

Ætlaði að fæla burt könguló en brenndi niður lúxusvillu
Heimur

Ætlaði að fæla burt könguló en brenndi niður lúxusvillu

Elko innkallar ofn vegna brunahættu
Innlent

Elko innkallar ofn vegna brunahættu

Tískudrottning og frétta­maður selja í Vesturbænum
Myndir
Fólk

Tískudrottning og frétta­maður selja í Vesturbænum

Ökumenn reyndu bæði bensíngjöfina og hlaupaskóna
Innlent

Ökumenn reyndu bæði bensíngjöfina og hlaupaskóna

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg
Myndband
Innlent

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár
Heimur

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár

Innlent

Elko innkallar ofn vegna brunahættu
Innlent

Elko innkallar ofn vegna brunahættu

Mikilvægt er að hætta strax notkun á ofninum og taka hann úr sambandi
Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst
Innlent

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst

Ökumenn reyndu bæði bensíngjöfina og hlaupaskóna
Innlent

Ökumenn reyndu bæði bensíngjöfina og hlaupaskóna

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg
Myndband
Innlent

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

Loka auglýsingu