
Kínverskur maður sem hafði verið á flótta undan lögreglu í nær aldarfjórðung var handtekinn í júní eftir að í ljós kom að hann hafði tekið sér auðkenni látins tvíburabróður síns. Fyrrverandi kærasta bróðurins varð lykilvitni í málinu.
Málið á rætur að rekja til ársins 2002 þegar sjö menn rændu einstaklingi í Yuhuan í Zhejiang-héraði. Sex voru handteknir skömmu síðar en sá sjöundi, maður að eftirnafni Chen, komst undan.
Árið 2007 bárust lögreglu upplýsingar um að Chen hefði látist í umferðarslysi. Málinu var því lokað.
Nítján árum síðar vöknuðu hins vegar grunsemdir um að Chen væri enn á lífi og hefði um árabil notað auðkenni eldri tvíburabróður síns. Rannsókn leiddi í ljós að bróðirinn hafði í raun látist í umferðarslysinu.
Ættingjar Chen neituðu að aðstoða lögreglu og opinber gögn bentu til þess að hann væri látinn. Lögregla skoðaði því eldri skilríkjamyndir og fann þar misræmi.
Að lokum hafði lögregla uppi á fyrrverandi kærustu látna bróðurins. Hún staðfesti að það hefði verið eldri tvíburinn sem lést í slysinu.
Chen var í kjölfarið handtekinn, 24 árum eftir ránið. Hann hafði þá lifað venjulegu lífi undir nafni bróður síns í 19 ár. Hann á yfir höfði sér þriggja til tíu ára fangelsi.
