1
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

2
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

3
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

4
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

5
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

6
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

7
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

8
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

9
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

10
Fólk

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni

Til baka

Læknir faldi 34 fóstur í garðinum heima hjá sér

Er 57 ára kona sem hefur ekki áður komist í kast við lögin

Garður
GarðurMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Martin Martz/Unsplash

Pólskur læknir hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir að minnst 34 mannsfóstur fundust grafin í garði við fyrrverandi heimili hennar í suðausturhluta Póllands. Málið hefur vakið mikla athygli og umræðu í landinu.

Konan, sem er 57 ára og hefur ekki áður komist í kast við lögin, er grunuð um að hafa notað fóstrin við rannsóknir og tilraunir. Hún á yfir höfði sér allt að 12 ára fangelsisdóm verði hún fundin sek.

Rannsókn hófst eftir að yfirvöld fengu ábendingu um að læknisúrgangur hefði fundist við framkvæmdir á fyrrverandi heimili hennar í þorpinu Lutoryz. Í kjölfarið hófst umfangsmikil leit á svæðinu með þátttöku tugum lögreglumanna, leitarhunda og sérhæfðs búnaðar. Við leitina fundust að minnsta kosti 34 fóstur grafin í garðinum.

Samkvæmt saksóknaraembættinu í borginni Rzeszów benda fyrstu vísbendingar til þess að konan hafi notað fóstrin við rannsóknir. Auk þeirra fundust tugþúsundir smásjárglerja, sýni og hlutar af skjölum sem tengjast læknisfræðilegri starfsemi.

Konan var handtekin á föstudag og úrskurðuð í þriggja mánaða gæsluvarðhald á meðan rannsókn málsins stendur yfir. Hún neitaði sök við yfirheyrslur en viðurkenndi að hafa sjálf flutt og grafið fóstrin ásamt öðrum læknisúrgangi á lóð sinni.

Yfirvöld hafa lagt áherslu á að engar vísbendingar hafi enn fundist um að fóstrin tengist ólöglegum fóstureyðingum. Enn er unnið að því að staðfesta uppruna þeirra og hvort fleiri einstaklingar hafi komið að málinu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

Atlantsolía aldrei grætt meira
Peningar

Atlantsolía aldrei grætt meira

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur
Myndband
Heimur

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum
Heimur

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum

Risastór gagnaleki skekur Danmörku
Heimur

Risastór gagnaleki skekur Danmörku

Leitaði til umboðsmanns vegna þvingaðrar lyfjagjafar
Innlent

Leitaði til umboðsmanns vegna þvingaðrar lyfjagjafar

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni
Fólk

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni

Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

„Flakið hefur fundist og leitar- og björgunaraðgerðir standa yfir“
Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum
Heimur

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur
Myndband
Heimur

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

Loka auglýsingu