1
Peningar

Magnús Jón Magnússon ráðinn af Dögum

2
Innlent

„Þetta er svaka adrenalínsjokk“

3
Innlent

Vinsælt íslenskt nautahakk innkallað vegna salmonellu

4
Fólk

„Spilling var eins og þjóðaríþrótt“

5
Innlent

Tveir fluttir á bráðamóttöku

6
Heimur

Heimildarmynd Amöndu Knox stöðvuð rétt fyrir frumsýningu

7
Heimur

Nýr forsetisráðherra Ungverjalands hótar Netanyahu handtöku

8
Fólk

Landsliðskona selur íbúð í Kópavogi

9
Innlent

Sigríður Björk skiptir aftur um vinnu

10
Innlent

Gló safnar fyrir nýjum matsal í Reykjadal

Til baka

Lára kallar eftir úrbótum í geðheilbrigðismálum

„Hvenær verða sett á alvöru geðheilsuúrræði fyrir fólk þar sem tekið er á móti ungu fólki, já bara öllu fólki, af virðingu, þar sem þeim mætir alúð og skilningur?“

Lára Ómarsdóttir
Lára ÓmarsdóttirLára vill laga geðheilbrigðiskerfið á Íslandi
Mynd: Facebook

Hávarður Máni Hjörleifsson var jarðsunginn í gær, föstudaginn 19. september en hann hefði orðið 21 árs í október. Í kjölfar fráfalls hans birti Lára Zulima Ómarsdóttir, samúðarkveðju til fjölskyldu Hávarðs og áminningu til samfélagsins á Facebook, þar sem hún kallar eftir alvöru úrræðum fyrir ungt fólk í vanda. Lára, sem er fjölmiðlakona og leiðtogi almannatengla hjá Pipar/TBWA, gaf Mannlífi góðfúslegt leyfi til að fjalla um færsluna.

„Ég sendi fjölskyldu hans mínar innilegustu samúðarkveðjur,“ segir í færslunni.

Lára spyr jafnframt hvenær stjórnvöld ætli að bregðast við:

„Hvenær ætlar samfélagið og stjórnvöld að gera eitthvað til að aðstoða ungt fólk í vanda og koma upp alvöru úrræðum fyrir þau sem glíma við veikindi? Fyrirheitin eru alltaf fögur en efndirnar litlar.“

Hún lýsir reynslu aðstandenda sem margsinnis hafi reynt „að fá aðstoð fyrir ástvini okkar en komum að lokuðum dyrum.“

„Hvenær verða sett á alvöru geðheilsuúrræði fyrir fólk þar sem tekið er á móti ungu fólki, já bara öllu fólki, af virðingu, þar sem þeim mætir alúð og skilningur?“ spyr Lára enn fremur.

Í færslunni rifjar hún upp að hafa fyrst kynnst úrræðaleysi í geðheilbrigðismálum þegar náinn vinur hennar missti dóttur sína fyrir tæpum 20 árum. „Margoft hefur verið fjallað um vandann í fréttum en lítið þokast. Nú er komið nóg,“ segir Lára.

Hún leggur áherslu á að hlustað sé á fólk í vanda og að úrræðin séu mannúðleg:

„Það þarf að hlusta á þau sem þurfa aðstoðina og vinna með þeim. Það þarf að koma fram við þau af virðingu og með kærleika að leiðarljósi. Yfirboð og framkoma sem einkennist af fordómum og fyrirlitningu skilar okkur engu og hefur engu skilað.“

Færslunni lýkur á samúðarkveðju til fjölskyldunnar: „Elsku fjölskylda; ég sendi ykkur mínar dýpstu samúðarkveðjur frá mínum innstu hjartarótum. Guð geymi Hávarð Mána.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Útúrkókaðir laxar sýna breytta hegðun
Heimur

Útúrkókaðir laxar sýna breytta hegðun

Fyrrverandi húshjálp kærir Kylie Jenner
Heimur

Fyrrverandi húshjálp kærir Kylie Jenner

Sænskum skólum lokað vegna hótana
Heimur

Sænskum skólum lokað vegna hótana

Heimskulegur flótti ökumanns endaði illa
Myndband
Heimur

Heimskulegur flótti ökumanns endaði illa

Joe Exotic færður í einangrun
Heimur

Joe Exotic færður í einangrun

Kona og barn létust í drónaárás Úkraínuhers á íbúðarhús
Heimur

Kona og barn létust í drónaárás Úkraínuhers á íbúðarhús

„Þessi hópur gerenda er samsettur af fólki sem blindast af reiði“
Innlent

„Þessi hópur gerenda er samsettur af fólki sem blindast af reiði“

Eflum og byggjum upp Eyrina
Skoðun

Darri Rafn Hólmarsson

Eflum og byggjum upp Eyrina

Einbýli með ótrúlegu útsýni til sölu í Hafnarfirði
Myndir
Fólk

Einbýli með ótrúlegu útsýni til sölu í Hafnarfirði

Birtir til hjá Viðskiptaráði
Peningar

Birtir til hjá Viðskiptaráði

Magnús rotaði mann á skemmtistað
Innlent

Magnús rotaði mann á skemmtistað

Samkvæmi fór örlítið úr böndunum
Innlent

Samkvæmi fór örlítið úr böndunum

Innlent

„Þessi hópur gerenda er samsettur af fólki sem blindast af reiði“
Innlent

„Þessi hópur gerenda er samsettur af fólki sem blindast af reiði“

Huginn Þór varar við vaxandi hópeinelti í samfélaginu
Sigríður Björk skiptir aftur um vinnu
Innlent

Sigríður Björk skiptir aftur um vinnu

Magnús rotaði mann á skemmtistað
Innlent

Magnús rotaði mann á skemmtistað

Samkvæmi fór örlítið úr böndunum
Innlent

Samkvæmi fór örlítið úr böndunum

Gló safnar fyrir nýjum matsal í Reykjadal
Innlent

Gló safnar fyrir nýjum matsal í Reykjadal

Bylmingshögg Birgis Bjarnar braut brotaþola
Innlent

Bylmingshögg Birgis Bjarnar braut brotaþola

Loka auglýsingu