1
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

2
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

3
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

4
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

5
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

6
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

7
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

8
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

9
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

10
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

Til baka

„Lífshakkarinn“ Bryan Johnson með ólæknandi sjálfsofnæmissjúkdóm

„Þetta er dásamlegt“

Bryan Johnson
Bryan JohnsonBryan gerir allt til þess að lifa lengur en aðrir
Mynd: Instagram

Líftæknifrumkvöðullinn og svokallaði „lífshakkarinn“ Bryan Johnson, sem hefur vakið heimsathygli fyrir tilraunir sínar til að hægja á öldrun, hefur greinst með ólæknandi sjálfsofnæmissjúkdóm.

Johnson ræddi greininguna í viðtali við TMZ eftir að hafa greint frá henni á samfélagsmiðlum í síðustu viku.

Þrátt fyrir kaldhæðnina í því að maður sem hefur byggt ímynd sína á því að berjast gegn öldrun skuli nú greinast með ólæknandi sjúkdóm, segist Johnson líta á tíðindin með jákvæðum augum.

Hann greindist með sjálfsofnæmisbólgu í maga (Autoimmune Gastritis) en segir fyrstu viðbrögð sín hafa verið: „Þetta er dásamlegt.“

Johnson gerði jafnframt gys að gagnrýnendum sem hafa sakað hann um að „leika Guð“ með tilraunum sínum til að hægja á öldrun.

„Þeir mega koma og segja: „Ég sagði þér það,“ í jarðarförinni minni,“ sagði hann.

Að sögn Johnsons hefur sjúkdómurinn líklega þróast hægt og bítandi í 10 til 20 ár án þess að hann vissi af því.

Vegna sjúkdómsins getur líkaminn nú ekki lengur tekið upp járn, B12-vítamín og önnur mikilvæg snefilefni. Það getur leitt til vannæringar og aukinnar hættu á krabbameini.

Þrátt fyrir það segist Johnson ekki vera svartsýnn.

Hann segir greininguna aðeins hafa aukið metnað sinn og rannsóknarteymis síns til að finna lækningu og halda áfram baráttunni gegn dauðanum.

Í viðtalinu ræðir hann einnig hvort hann telji enn raunhæft að menn geti lifað til 160 ára aldurs og hvað hann vilji að verði gert við líkama sinn eftir andlátið.

Watch full video on TMZ
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

„Flakið hefur fundist og leitar- og björgunaraðgerðir standa yfir“
Atlantsolía aldrei grætt meira
Peningar

Atlantsolía aldrei grætt meira

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur
Myndband
Heimur

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum
Heimur

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum

Risastór gagnaleki skekur Danmörku
Heimur

Risastór gagnaleki skekur Danmörku

Leitaði til umboðsmanns vegna þvingaðrar lyfjagjafar
Innlent

Leitaði til umboðsmanns vegna þvingaðrar lyfjagjafar

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni
Fólk

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

Fyrrverandi eiginmaður Katie Price ákærður fyrir nauðgun á 13 ára stúlku
Heimur

Fyrrverandi eiginmaður Katie Price ákærður fyrir nauðgun á 13 ára stúlku

Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

„Flakið hefur fundist og leitar- og björgunaraðgerðir standa yfir“
Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum
Heimur

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur
Myndband
Heimur

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

Loka auglýsingu