1
Innlent

Einn þingmaður mætti á mótmælin

2
Heimur

Flugvél rýmd í skyndi vegna sprengjuhótunar á Tenerife

3
Innlent

Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag

4
Heimur

Dularfullt mál úr holræsakerfi New York-borgar

5
Innlent

Blóðug árás í Mjóddinni

6
Innlent

Manía í miðborginni

7
Innlent

Hópur ungmenna réðst á einstakling í Breiðholti

Til baka

Markmiðið að fá yfirsýn yfir aðstæður barna og þjónustuþörf þeirra

Mennta- og barnamálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga, fyrir hönd sveitarfélaga landsins, munu ráðast í víðtækt samstarf um uppbyggingu traustra gagnainnviða og stafræna þróun þvert á stjórnsýslustig.

Guðmundur Ingi Kristinsson
Guðmundur Ingi KristinssonMennta- og barnamálaráðherra
Mynd: Kristinn Magnússon

Mennta- og barnamálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga, fyrir hönd sveitarfélaga landsins, munu ráðast í víðtækt samstarf um uppbyggingu traustra gagnainnviða og stafræna þróun þvert á stjórnsýslustig.

Er tilgangurinn með þessu að tryggja sameiginlega yfirsýn er varðar þróun og innleiðingu stafrænna lausna; uppbyggingu gagnainnviða; til öflunar og nýtingu gagna í þágu farsældar barna og aukinna gæða í skóla- og frístundastarfi.

Þeir Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, og Jón Björn Hákonarson, sem er formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, undirrituðu nýverið samkomulag þess efnis.

Markmiðið er fyrst og síðast að ná yfirsýn yfir aðstæður barna og þjónustuþörf þeirra og fjárfestingu í aðgerðum í þágu barna með traustum gögnum og mælanlegum markmiðum, er varpa ljósi á stöðu og farsæld barna, og nýta til gagnadrifinnar stefnumörkunar.

Umfang þessarar gagnasöfnunar er algjörlega fordæmalaus; nær til allra þjónustuaðila á vegum hins opinbera þvert á stjórnsýslustig.

Og með samkomulaginu sammælast allir aðilar um samstarf um skipulag gagnamála, öflun, geymslu, vinnslu sem og deilingu gagna frá ólíkum þjónustustofnunum sem varða málefni og velferð barna.

Haft verður afar víðtækt samstarf við lykilaðila sem og aðila er starfa í þágu barna, til dæmis háskóla, stofnanir, frjáls félagasamtök og einkaaðila er vinna að málefnum barna og menntafyrirtækja.

„Það eru gleðitíðindi að ná fram þessum áfanga. Til að framfarir gerist hratt þarf að geta skoðað gögn og ferli og haft yfirsýn, því þurfum við víðtækara samstarf en verið hefur, að ná fólki saman og að allir séu sammála. Við viljum sjá hvar skórinn kreppir til að geta brugðist hratt við og metið inngrip. Samkomulagið markar stórt skref í þessa átt og í sameiginlegri vegferð ríkis og sveitarfélaga í stafrænni þróun, börnum og skólakerfinu til hagsbóta,“ segi Gruðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra.

Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga er ánægður með málið:

„Málefni barna, þar með talið fræðslumál, eru stærsti málaflokkurinn á vegum sveitarfélaganna. Þetta eru því stór og ánægjuleg skref í samstarfi ríkis og sveitarfélaga við að ná yfirsýn yfir málaflokkinn og styrkja grunnstoðir í gagnainnviðum og stafrænni þróun. Samkomulagið markar mikilvægan áfanga í stafrænum málum ríkis og sveitarfélaga sem munu gagnast okkur við að taka ákvarðanir á faglegum grunni og vonandi verða fleiri slík skref stigin með fleiri ráðuneytum í sameiginlegum málum.“

Í þeim tilgangi að fylgja samkomulaginu vel eftir mun verða skipaður sameiginlegur stýrihópur með fulltrúum frá mennta- og barnamálaráðuneytinu og Sambandinu innanborðs.

Stýrihópur þessi skal gera tillögu að sameiginlegri yfirsýn að framtíð tengingu grunna og samhæfingu tæknilegra staðla og gagnainnviða, ásamt því að forgangsraða upplýsingum sem tengjast börnum og nýtast í stefnumörkun á sviði skólamála og farsældar barna.

Formaður hópsins verður Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, en hún er ráðgjafi mennta- og barnamálaráðherra um stafræna þróun. 

Hópurinn skilar tillögum sínum snemma á næsta ári, eða fyrir 1. febrúar. Samhliða og til stuðnings vinnu stýrihópsins, verður unnin kortlagning gagna sem opinberir aðilar og stofnanir safna með markvissum hætti og greining á því hvernig þau nýtast eða gætu nýst í þágu barna og hvaða gögn vantar til að fá fram heildarmynd.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag
Innlent

Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag

Drengur fluttur á bráðamóttöku
Blóðug árás í Mjóddinni
Innlent

Blóðug árás í Mjóddinni

Flugvél rýmd í skyndi vegna sprengjuhótunar á Tenerife
Heimur

Flugvél rýmd í skyndi vegna sprengjuhótunar á Tenerife

Dularfullt mál úr holræsakerfi New York-borgar
Myndband
Heimur

Dularfullt mál úr holræsakerfi New York-borgar

Hópur ungmenna réðst á einstakling í Breiðholti
Innlent

Hópur ungmenna réðst á einstakling í Breiðholti

Einn þingmaður mætti á mótmælin
Myndir
Innlent

Einn þingmaður mætti á mótmælin

Íhuga gerbreyttar reglur um hoppukastala eftir að sex börn létust
Heimur

Íhuga gerbreyttar reglur um hoppukastala eftir að sex börn létust

Birtan leikur um íbúð við Kuggavog
Myndir
Fólk

Birtan leikur um íbúð við Kuggavog

Við lítum svolítið á lífið öðrum augum heldur en mörg
Viðtal
Fólk

Við lítum svolítið á lífið öðrum augum heldur en mörg

Þórarni finnst ákveðin mismunun vera af hinu góða
Peningar

Þórarni finnst ákveðin mismunun vera af hinu góða

Hittu Trump og Rubio í leiðtogaviku Sameinuðu þjóðanna
Innlent

Hittu Trump og Rubio í leiðtogaviku Sameinuðu þjóðanna

Innlent

Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag
Innlent

Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag

Drengur fluttur á bráðamóttöku
Hittu Trump og Rubio í leiðtogaviku Sameinuðu þjóðanna
Innlent

Hittu Trump og Rubio í leiðtogaviku Sameinuðu þjóðanna

Blóðug árás í Mjóddinni
Innlent

Blóðug árás í Mjóddinni

Hópur ungmenna réðst á einstakling í Breiðholti
Innlent

Hópur ungmenna réðst á einstakling í Breiðholti

Einn þingmaður mætti á mótmælin
Myndir
Innlent

Einn þingmaður mætti á mótmælin

Loka auglýsingu