Stjórn Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi hefur nú samþykkt tillögu uppstillingarnefndar um framboðslista Miðflokksins í Kópavogi.
„Þetta er listi sem Miðflokkurinn getur verið stoltur af og erum við með fólk sem kemur úr öllum kimum samfélagsins. Mikilvægast finnst mér að listann skipa íbúar í öllum póstnúmerum Kópavogs sem þekkja vel það sem vel er gert og má betur fara. Skýrasta ákallið er: Minni þétting og meira samráð“ segir Einar Jóhannes, oddviti Miðflokksins í Kópavogi.
Stefnuskrá Miðflokksins í Kópavogi verður birt eftir páska að sögn flokksins.
Listinn
- Einar Jóhannes Guðnason, rekstrar- og sölustjóri og varaþingmaður
- Nína Berglind Sigurgeirsdóttir, leikskólastjóri og hlaupaþjálfari
- Beitir Ólafsson, byggingaverktaki og fv. knattspyrnumaður
- Thelma Bergmann Árnadóttir, atvinnurekandi
- Trausti Örn Þórðarson, lögfræðingur
- Ævar Örn Jóhannsson, fasteignasali
- Una María Óskarsdóttir, uppeldis-, menntunar- og lýðheilsufræðingur
- Guðmundur Pétur Pálsson, Microsoft hönnuður
- Eva Guðrún Hilmarsdóttir, framleiðslumaður
- Högni Guðmundsson, múrarameistari
- Inga Jóna Gunnarsdóttir, eldri borgari
- Kolbeinn Sturla Baldursson, sölumaður
- Anna Pétursdóttir, húsvörður
- Matthildur Skúladóttir, atvinnurekandi
- Sigurður Bjarni Jónsson, flugstjóri
- Guðrún Stefánsdóttir, sjúkraliði
- Magnús Valur Böðvarsson, golfvallasérfræðingur
- Alda Viggósdóttir, eldri borgari
- Ásgeir Önundarson, skoðunarmaður
- Kristján Atli Marteinsson, íþróttakennari og knattspyrnumaður
- Einar Baldursson, kennari
- Ragnheiður Brynjólfsdóttir, framkvæmdastjóri
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa


Komment