1
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

2
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

3
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

4
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

5
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

6
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

7
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

8
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

9
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

10
Heimur

Gróf eftir verðmætum í holræsunum New York

Til baka

Neyðarástand vegna ebólufaraldurs

Börn eru í sérstakri hættu og þörfin fyrir neyðaraðstoð er mikil.

Kongó
Myndin tengist fréttinni ekki beint
Mynd: Unsplash/Toza productions

Neyðarástand hefur skapast vegna ebólufaraldurs í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó.

Enn á ný er lífi barna og fjölskyldna í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó ógnað af banvænum ebólufaraldri. Ebóla breiðist út með ógnarhraða í austurhluta landsins, þar sem síendurtekin átök hafa hrakið fólk á flótta og veikt alla innviði samfélagsins. Barnaheill – Save the Children vinna nú að neyðaraðgerðum til að vernda börn og fjölskyldur, og reyna að hefta útbreiðslu veirunnar.

Ebóluveiran

Ebóla er alvarlegur og oft banvænn sjúkdómur sem smitast með beinni eða óbeinni snertingu við líkamsvökva, mengað efni eða sýkt yfirborð.

Ebóla getur einnig smitast við umönnun veikra sjúklinga eða með óöruggum greftrunaraðferðum.

Einkenni ebólu geta komið fram allt frá 2 dögum til 3 vikum eftir smit og byrja oft skyndilega.

Einkenni eru meðal annars:

  • Hiti
  • Máttleysi
  • Uppköst
  • Niðurgangur
  • Vöðvaverkir

Blæðingar (í alvarlegum tilfellum)

Ástandið í Kongó nú

Þann 15. maí var staðfest að nýr ebólufaraldur hefði brotist út í Ituri-héraði í austurhluta Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó.

Þann 18. maí höfðu heilbrigðisyfirvöld greint 540 ebólatilfelli.

Einnig var tilkynnt um 130 dauðsföll af völdum ebólu, þar af 7 barna.

Tilkynnt hefur verið um ebólutilfelli um allt Iturihérað, og einnig er grunur um tilfelli í Bunia, höfuðborg héraðsins við landamæri Úganda og Suður-Súdan. Að auki hafa tilfelli verið staðfest í Goma, Norður-Kivu og í Úganda.

Ebólufaraldurinn er enn eitt áfallið sem nú ríður yfir Lýðstjórnarlýðveldið Kongó. Á þessu ári hafa átök blossað þar upp að nýju og leitt af sér eina alvarlegustu mannúðarkrísu í heimi, þar sem 15 milljónir manna þurfa á mannúðaraðstoð að halda.

Hvað greinir þennan ebólufaraldur frá öðrum?

Þetta afbrigði veirunnar – Bundibugyo – er mjög sjaldgæft afbrigði.

Engin sérstök bóluefni eða meðferð eru til við því.

Reynslan sýnir að búast megi við dánartíðni á bilinu 30% til 50%.

Þar sem afbrigðið er svo sjaldgæft greindist það seint.

Senda verður öll sýni til greiningar til höfuðborgarinnar Kinshasa, sem er í um 1.800 km fjarlægð frá Ituri.

Margir urðu fyrir smiti áður en faraldurinn var staðfestur, sem gerir smitrakningu og viðleitni til að hefta smit erfiðari.

Útbreiðslan er mest á svæði þar sem átök eru mikil og aðstæður ótryggar.

Síendurtekin átök um árabil hafa veikt heilbrigðiskerfið.

Heilbrigðisstofnanir þurfa nauðsynlega á hlífðarbúnaði að halda ásamt stuðningi við smitvarnir.

Hvað þýðir þetta fyrir börn?

Börn hafa þegar orðið fyrir áhrifum af faraldrinum og skýrslur heilbrigðisyfirvalda staðfesta að 25% þeirra sem hafa látist eru börn.

Ungum börnum getur hrakað hratt vegna skorts á réttri greiningu og umönnun.

Einkenni ebólu eru svipuð og við algengum sjúkdómum á svæðinu eins og malaríu, niðurgangi, lungnabólgu og vannæringu, sem eykur hættuna á rangri sjúkdómsgreiningu og gerir börn útsettari fyrir smiti.

Áhrifanna gætir langt umfram smit. Börn eiga á hættu að vera sett í einangrun fjarri umönnunaraðilum við sjúkrahúsinnlögn eða eftir andlát í fjölskyldunni, og geta fundið fyrir ótta, sorg, fordómum og félagslegri útilokun.

Barnaheill – Save the Children vinna að því í samstarfi við stjórnvöld, að:

  • Stöðva smit
  • Vernda börn og heilbrigðisstarfsmenn
  • Halda samfélögum upplýstum
  • Veita stuðning við fjölskyldur sem eru útsettar fyrir smiti

Hægt er að leggja samtökunum lið með því að fara inn vefsíðuna og skrá sig.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

Atlantsolía aldrei grætt meira
Peningar

Atlantsolía aldrei grætt meira

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur
Myndband
Heimur

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum
Heimur

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum

Risastór gagnaleki skekur Danmörku
Heimur

Risastór gagnaleki skekur Danmörku

Leitaði til umboðsmanns vegna þvingaðrar lyfjagjafar
Innlent

Leitaði til umboðsmanns vegna þvingaðrar lyfjagjafar

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni
Fólk

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni

Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu
Heimur

Herflugvél með 32 manns innanborðs hrapar í Nígeríu

„Flakið hefur fundist og leitar- og björgunaraðgerðir standa yfir“
Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum
Heimur

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur
Myndband
Heimur

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

Loka auglýsingu