Olga Margrét Cilia hefur gefið kost á sér í 2. sæti í prófkjöri Pírata í Reykjavík en hún greinir frá þessu í tilkynningu.
Segir hún að við lifum á fasískum tímum og að nú meira en áður þurfi fólk á Íslandi að huga að jaðarsettum hópum og standa vörð um mannréttindi fyrir alla.
„Gagnsæi, ábyrg stjórnmál og virkt eftirlit með valdi eru þau gildi sem ég starfa fyrst og fremst eftir.
Sjálfsákvörðunarréttur einstaklinga á að vera í forgrunni í allri ákvarðanatöku borgarinnar. Reykjavík er fyrst og fremst þjónustuaðili fyrir borgara, þau sem kjósa okkur til valda. Við þurfum að kjarna lögmætt hlutverk borgarinnar betur og einblína á það sem gerir borgina að góðum stað fyrir öll. Í forgrunni á að vera fjölskylduvæn borg þar sem börn fá leikskólapláss og þar sem við erum ekki háð bílnum í hversdeginum. Ég vil sjá grósku í menningu og listum á forsendum unga fólksins. Ég vil sjá raunhæfan íbúðarmarkað fyrir fólk ekki fyrirtæki og gróða. Ég vil eftirlit með valdi og vernd friðhelgis okkar!
Ég hef verið Pírati í áratug. Ég hef setið í framkvæmdastjórn, stjórn PíR, úrskurðarnefnd og kosningastjórn. Ég sinnti varaþingmennsku á Alþingi 2017-2021,“ segir í tilkynningunni.
Hún segist vilja sjá frjálslyndan mannréttindaflokk sem berst fyrir lýðræði í borgarstjórn og telur að Píratar séu sú hreyfing.


Komment