1
Innlent

„Hún misnotaði mig kynferðislega og barði mig sundur og saman“

2
Fólk

Margrét Marteinsdóttir skiptir um gír

3
Heimur

Ringulreið og ófremdarástand á stærsta flugvelli Tenerife

4
Fólk

Ásgeir Erlends rúllaði upp náminu

5
Landið

Akureyringur ákærður fyrir hálft gramm af tóbaksblönduðu kannabisefni

6
Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá

7
Innlent

Árekstur tveggja bíla í Garðabæ

8
Heimur

Channing Tatum fór í skurðaðgerð

9
Fólk

Frábært fjölskylduhús fáanlegt

10
Innlent

Friðgeir dæmdur fyrir hatursorðræðu

Til baka

Örn Óskarsson er látinn

|

Örn Óskarsson, pípulagningameistari og fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, lést á Landspítalanum í Fossvogi 25. nóvember síðastliðinn, 72 ára að aldri, eftir langvarandi veikindi.

Örn fæddist í Vestmannaeyjum 18. febrúar 1953 og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Óskar Ólafsson pípulagningameistari frá Vestari-Torfastöðum í Fljótshlíð og Kristín Jónsdóttir húsfreyja, frá Hafnarnesi í Fáskrúðsfirði. Hann var næstyngstur í hópi tíu systkina.

Eftir að hafa lokið skólagöngu í heimabyggð lærði hann pípulagnir hjá föður sínum og starfaði við það bæði í Vestmannaeyjum og síðar í Reykjavík þegar fjölskyldan fluttist þangað.

Örn var afburða íþróttamaður á unglingsárum, bæði í frjálsum íþróttum og fótbolta, og setti Íslandsmet í hlaupi og spjótkasti. Að lokum ákvað hann að helga sig fótboltanum og varð einn markahæsti leikmaður landsins. Hann átti farsælan feril með ÍBV og skoraði alls 81 mark í 171 leik á Íslandsmótinu, þar af 56 mörk í 152 leikjum í efstu deild. Með ÍBV varð hann bikarmeistari árið 1972 og Íslandsmeistari 1979 og var markakóngur í 2. deild 1976. Frægur er leikur gegn Selfossi 14. ágúst 1976 þar sem hann skoraði sex mörk og gekk síðar sama dag í hjónaband.

Sumarið 1977 lék hann með KR og var markahæstur hjá liðinu. Hann gerðist atvinnumaður hjá Örgryte í Svíþjóð árið 1980 og lék þar í tvö tímabil, hið síðara í sænsku úrvalsdeildinni. Hann lauk knattspyrnuferlinum með Þrótti í Reykjavík 1983–1986.

Örn átti 23 landsleiki með A-landsliðinu á árunum 1972 til 1982 og skoraði eitt mark. Þótt hann hafi mest leikið sem sóknarmaður, spilaði hann síðar sem bakvörður hjá landsliðinu.

Eftirlifandi eiginkona hans er Hulda G. Kjærnested, fædd 1955. Dætur þeirra eru Margrét, fædd 1974, og Sara Kristín, fædd 1984. Barnabörnin eru sex talsins.

Útför Arnar fer fram í Guðríðarkirkju mánudaginn 4. desember klukkan 15.

Mbl.is sagði frá andlátinu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Fantur reyndi að stinga mann
Innlent

Fantur reyndi að stinga mann

Grímur skipaður í mjög viðeigandi stýrihóp
Pólitík

Grímur skipaður í mjög viðeigandi stýrihóp

Friðgeir dæmdur fyrir hatursorðræðu
Innlent

Friðgeir dæmdur fyrir hatursorðræðu

Innflytjendur fá 200 milljónir frá Ingu
Innlent

Innflytjendur fá 200 milljónir frá Ingu

Magnús Erlendsson er fallinn frá
Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá

Fræg mæðgin í eldlínunni
Slúður

Fræg mæðgin í eldlínunni

Jóhann Páll verndar formfagran gíg
Pólitík

Jóhann Páll verndar formfagran gíg

Ringulreið og ófremdarástand á stærsta flugvelli Tenerife
Heimur

Ringulreið og ófremdarástand á stærsta flugvelli Tenerife

Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eiga von á barni
Fólk

Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eiga von á barni

Frábært fjölskylduhús fáanlegt
Myndir
Fólk

Frábært fjölskylduhús fáanlegt

Akureyringur ákærður fyrir hálft gramm af tóbaksblönduðu kannabisefni
Landið

Akureyringur ákærður fyrir hálft gramm af tóbaksblönduðu kannabisefni

Árekstur tveggja bíla í Garðabæ
Myndband
Innlent

Árekstur tveggja bíla í Garðabæ

Margrét Marteinsdóttir skiptir um gír
Fólk

Margrét Marteinsdóttir skiptir um gír

Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá
Minning

Magnús Erlendsson er fallinn frá

Jóhannes Sigurjónsson er látinn
Minning

Jóhannes Sigurjónsson er látinn

Arnór L. Pálsson er fallinn frá
Minning

Arnór L. Pálsson er fallinn frá

Ingi Kristján Pétursson er látinn
Minning

Ingi Kristján Pétursson er látinn

Pétur Bjarnason er fallinn frá
Minning

Pétur Bjarnason er fallinn frá

Kristinn Svavarsson er fallinn frá
Minning

Kristinn Svavarsson er fallinn frá

Loka auglýsingu