
Pétur Bjarnason, fyrrverandi fræðslustjóri og varaþingmaður,er látinn 84 ára að aldri. Morgunblaðið greindi frá andláti hans.
Pétur fæddist á Bíldudal 12. júní árið 1941.
Pétur lauk landsprófi frá Héraðsskólanum í Reykholti árið 1958 og kennaraprófi árið 1964. Að loknu kennaraprófi kenndi hann í Reykjavík í um tvö ár, en flutti síðan aftur vestur á Bíldudal þar sem hann var skólastjóri Barna- og unglingaskólans á árunum 1966–1975, að undanskildu einu ári.
Á árunum 1977–1983 gegndi Pétur starfi skólastjóra Varmárskóla í Mosfellssveit. Að því loknu flutti hann vestur, er hann var skipaður fræðslustjóri Vestfjarða. Því starfi gegndi hann til ársins 2000. Frá 2000 til 2013 starfaði Pétur sem framkvæmdastjóri SÍBS.
Pétur var snemma virkur í félags- og stjórnmálum. Hann var varaþingmaður í mörg ár, fyrst fyrir Framsóknarflokkinn og síðar Frjálslynda flokkinn. Hann hafði mikinn áhuga á leiklist og tók þátt í leikstarfi með Leikfélaginu Baldri á Bíldudal, Leikfélagi Mosfellssveitar og Litla leikklúbbnum á Ísafirði.
Pétur var afkastamikill rithöfundur og greinahöfundur og skrifaði fjölda greina í blöð og tímarit. Hann ritaði einnig nokkrar bækur.
Pétur lætur eftir sig tvö börn.
Komment