1
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

2
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

3
Heimur

Keypti kassa úr dánarbúi og þurfti að kalla til lögreglu

4
Fólk

Fréttamaður RÚV selur krúttlega íbúð

5
Innlent

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg

6
Innlent

Saka hvor annan um yfirgang eftir uppákomu við Löður

7
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

8
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

9
Innlent

Milljónakrafa vegna búnaðar fyrir bílamálun

10
Minning

Marga Ingeborg Thome er látin

Til baka

Ráðist gegn rekstri Fúsa handboltakappa

„Verulega illa gert og getur haft skaðleg áhrif“

Sigfús Sigurðsson
Sigfús Sigurðsson ósáttur við falska lokunartilkynningu á Google
Mynd: Facebook/Sigfús Sigurðsson

Einhver miður skemmtilegur einstaklingur tilkynnti til Google að Fiskbúð Fúsa væri lokuð. Sigfús Sigurðsson, eigandi búðarinnar og fyrrum landsliðsmaður í handbolta, segir svona skemmdarverk geta haft alvarlegar afleiðingar fyrir sitt lífsviðurværi.

Sigfús Sigurðsson, jafnan kallaður Fúsi, birti færslu á samfélagsmiðlum sínum þar sem hann greinir frá því að vefsvæði fiskbúðar hans á Google hafi verið hnekkt. Búðin var sögð ýmist tímabundið eða alfarið lokuð í leitarvélum eftir að svokölluð ábending þess efnis var send inn.

„Það var einhver miður góður/skemmtilegur einstaklingur sem sendi inn 'ábendingu/ar' til google um að það væri búið að loka búðinni hjá okkur og þegar búðin var googluð þá kom upp að hún væri alfarið lokuð eða tímabundið lokuð,“ skrifar Fúsi á síðu sína.

Þurfti að senda myndbönd til Google

Fúsi segir að búið sé að leysa málið en ferlið hafi krafist töluverðrar vinnu. Til þess að sanna að reksturinn væri enn opinn þurfti hann að senda inn staðfestingarmyndbönd, ljósmyndir og skrifleg svör til tæknirisans.

„Það er búið að kippa þessu í liðinn eftir nokkur staðfestingar video, myndir og svör,“ segir Fúsi.

Hann leggur áherslu á að þótt búið sé að leiðrétta villuna, þá geti tjónið setið eftir. Svona skemmdarverk flækja líf sjálfstætt starfandi kaupmanna og geta fælt viðskiptavini frá sem treysta á upplýsingar á netinu.

„Þó að það sé búið að kippa þessu í liðinn þá hefur þetta áhrif og er verulega illa gert, getur haft skaðleg áhrif á reksturinn og mitt lífsviðurværi,“ útskýrir hann.

Frá harðjaxli á vellinum í farsælan kaupmann

Sigfús á að baki glæstan íþróttaferil og er í hópi þekktustu línumanna. Hann var lykilmaður í hinu goðsagnakennda „Silfurliði“ Íslands sem vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008. Hann lék sömuleiðis um árabil sem atvinnumaður erlendis og var þekktur fyrir mikla hörku, elju og hjarta, bæði í vörn og sókn.

Fúsi hefur verið opinskár með þær áskoranir sem mættu honum eftir að íþróttaferlinum lauk. Hann hefur farið mikinn í umræðunni um baráttu sína við alkóhólisma og fjárhagsvandræði, en hann hefur nú verið allsgáður og edrú í tæp þrjátíu ár.

Árið 2018 hóf hann nýjan kafla í lífinu þegar hann opnaði Fiskbúð Fúsa í Skipholti í Reykjavík. Búðin hefur síðan þá verið hans helsta lífsviðurværi.

Tekur á móti fólki með bros á vör

Fúsi lætur þetta nýjasta tilræði gegn rekstrinum þó ekki eyðileggja fyrir sér daginn og lýkur færslunni á jákvæðum nótum til vina sinna og viðskiptavina:

„Hlakka til að afgreiða ykkur með bros á vör eins flest alla daga. Kær kveðja Fúsi.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg
Myndband
Innlent

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg

Öskraði á gangandi vegfarendur
Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár
Heimur

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar
Myndband
Heimur

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst
Innlent

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins
Innlent

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki
Innlent

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega
Peningar

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari
Fólk

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn
Menning

Tólf árum síðar tóku Daníel Alvin og vinirnir aftur upp þráðinn

Innlent

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg
Myndband
Innlent

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg

Öskraði á gangandi vegfarendur
Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki
Innlent

Sprengjuhótanir sendar á ráðuneyti og fyrirtæki

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst
Innlent

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins
Innlent

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins

Loka auglýsingu