Kristján Einar Sigurbjörnsson, eða Kleini eins og hann kallar sig, hefur verið með þekktustu áhrifavöldum Íslands síðstu ár, ekki síst vegna ástarsambanda, þar sem ekki var allt sem sýndist. Undir frægðarsólinni leyndist skuggaleg fortíð og mein.
Áhrifavaldurinn Kristján Einar Sigurbjörnsson eða Kleini eins og hann kallar sig, hefur síðustu ár verið einn umtalaðasti maður landsins og hefur reglulega ratað á slúðursíður fjölmiðlanna, meðal annars fyrir ástarsambönd sín og ríkmannlegan lífsstíl sem stundum hefur vakið spurningar. Þá komst hann einnig í fréttirnar þegar hann var sýknaður í Landsrétti af líkamsárás árið 2021 og þannig snúið við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem hann hafði fengið 2019. Þá sat hann inni í átta mánuði á Malaga á Spáni fyrir alvarlegt brot, sem hann gerði sjálfur lítið úr og hélt áfram að njóta jákvæðrar athygli eins og ekkert hefði í skorist.
Samkvæmt Morgunblaðinu er Kleini einn þeirra þriggja manna sem handteknir voru á Akureyri um helgina vegna hrottafengis kynferðisbrots á ungri konu.
Mannlíf fer nú yfir frægðarsól Kleina og fall hans af stalli sem hann reisti sjálfur með hjálp fjölmiðlanna.
Rómantískur sjómaður
Í janúar 2021 birtist forsíðuviðtal við Kleina í kynningarblaði Fréttablaðsins, Fólk, þar sem honum er lýst sem rómantískum sjómanni. Þá hafði hann hafið ástarsamband með Svölu Karítas Björgvinsdóttur stórsöngkonu ári áður, en aldursmunur þeirra var töluverður eins og fyrirsögn viðtalsins vísaði í: Ástin spyr ekki um aldur. „Það er enginn vafi á því að ég mun aldrei elska neina eins og ég elska Svölu. Í henni hitti ég sálufélaga minn og ég trúi því að ef maður er heppinn, þá gerist slíkt bara einu sinni á lífsleiðinni,“ segir Kleini í upphafi viðtalsins en þar ræðir hann einnig um þá fordóma sem mætti þeim vegna aldursmunarins.
Þá útskýrir hann gælunafnið Kleini en það ku hafa komið til vegna þess að hann stundaði kleinustuld þegar hann bakaði með ömmu sinni sem krakki. „Þegar ég var yngri átti ég það oft til að hjálpa ömmu Svönu að baka kleinur og segjum sem svo að ef við ætluðum að baka hundrað kleinur varð hún alltaf jafn hissa þegar aðeins sjötíu kleinur skiluðu sér úr bakstrinum. Eftir að föðurbróðir minn sá mig svo stela kleinum hægri, vinstri, ákvað hann að byrja að kalla mig Kleina og það bara festist við mig.
Þegar Kleini var 19 ára eignaðist hann dóttur sem hann sagði hafa breytt lífi sínu til hins betra. „Dóttir mín er eitt það besta sem hefur komið fyrir mig og mig langar að eignast fleiri börn í framtíðinni,“ sagði Kleini í viðtalinu. Þar kemur einnig fram að hann hafi alist upp í miklum útgerðarbæ, Húsavík, en þegar viðtalið birtist hafði hann verið fimm ár á sjó í Reykjavík en hann sagði sjóinn „núllstilla“ sig og „herða.“
Hégómafulli áhrifavaldurinn
Eftir að Kleini hóf samband með Svölu reis frægðarsól hans hátt en hann var duglegur að birta myndir af sér á Instagram, sem sýndi ákveðinn flottræfilshátt ef svo má kalla, rándýr föt, dýrar græjur og vöðvastæltan og húðflúraðan kroppinn. Inn á milli birti hann einhvers konar grín þar sem hann var í aðalhlutverki.
Tæplega 7.500 manns fylgja honum á Instagram í dag, megnið af þeim ungt fólk sem oft dáðist oft að Kleina í athugasemdum, ýmist að ásýnd hans eða fasi. Þá hefur hann í gegnum tíðina verið duglegur að svara spurningum í story á Instagram, þar sem hann svaraði aðsendum spurningum fylgjenda sinna, allt frá spurningum um ástarmál hans til spurninga um útlitið.
Sagði ósatt um glæp sinn
Í mars 2022 var Kleini handtekinn á Malaga á Spáni, fyrir alvarlega líkamsárás og þurfti hann að dvelja í héraðsfangelsinu í Malaga í átta mánuði. Mannlíf flutti fjöldi frétta af málinu á sínum tíma, sem og aðrir miðlar. Kleini lýsti því sem svo að hann hefði lent í „smá fyllerísslagsmál” eftir að hafa drukkið „einn eða tvo bjóra”. Þannig hafi hann ekki gert neitt.
Raunveruleikinn var hins vegar allt annar. Heimildin afhjúpaði að hann hefði í reynd verið handtekinn fyrir ofbeldisfullt rán og verið undir áhrifum fíkniefna. Í félagi við annan mann rændi hann 40 evrum af einum vegafaranda og hótaði svo öðrum með eggvopni. Í lýsingum dómsins kemur fram að þeir hafi kýlt mann við ránið og ráðist á fólk sem reyndi að bjarga honum frá þeim, þar á meðal vinkonu hans. Í dómnum kemur fram að Kleini og félagi hans hafi gengist við þessari atvikalýsingu.
Þetta var ekki það eina sem reyndist ótrúverðugt við frásagnir Kleina af ævintýrum hans í sólarlöndum.
Frásagnir Malaga-fanga
Sölvi Tryggvason tók viðtal við Kleina þegar hann var laus. Frásagnir Kleina af fangelsisvistinni voru lyginni líkastar. Sagðist hann meðal annars hafa verið stunginn í kviðinn í fangelsinu, neyðst til að stinga mann, hafa lent í fangauppreisn og hafa orðið vitni að morði.
Kleini sagði frá hinni meintu hnífsstungu í viðtalinu við Sölva:
„Ég var stunginn í einu „rioti“. Það voru reyndar tvö „riot“ sem áttu sér stað en í því „rioti“ sem ég var stunginn þá var ég kominn í klíkuna með Pólverjunum. Þeir laumuðu síma yfir til Spánverjanna og þeir voru með hann í einn eða tvo daga. Þegar þeir skiluðu honum var kominn raki inn í skjáinn og þá byrjaði einhver tætingur þar á milli. Svo voru þetta orðin hópslagsmál. Ef ég hefði ekki staðið með Pólverjunum þá hefðu þeir hent mér úr klíkunni. Ég þurfti að taka þátt og svo allt í einu fann ég tvö högg og áttaði mig ekki alveg á því hvað þetta var. Svo sá ég blóð byrja að leka og þá áttaði ég mig á að ég hafði verið stunginn.“
Kleini sagðist ekki hafa fengið neina læknisaðstoð eftir stunguárásina, hann hafi bara þurft að fela sárin og harka af sér. Hinu meinta morði sem hann sagðist hafa orðið vitni að, lýsti hann á eftirfarandi máta:
„Svo var það morðið …


Komment