1
Fólk

Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu

2
Peningar

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna

3
Fólk

Sorgin breytti sýn Andreu á lífið

4
Heimur

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið

5
Innlent

Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir gróft ofbeldi

6
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

7
Heimur

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið

8
Fólk

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu

9
Innlent

Salmonella greindist í innfluttu kryddi

10
Peningar

Nýdönsk stofnar fyrirtæki

Til baka

Sextán létust í skelfilegum eldsvoða á hjúkrunarheimili

Eldsvoði Sílé
Slökkviliðsmenn við störf
Mynd: MATIAS GALLEGOS / AFP

Sextán aldraðir létust í miklum eldsvoða á hjúkrunarheimili í Chile aðfaranótt laugardags. Heimilið hafði áður sætt afskiptum yfirvalda vegna brota á reglum og hafði ítrekað verið sektað.

Eldurinn kom upp á föstudagskvöld á einnar hæðar hjúkrunarheimili í Araucanía-héraði, um 640 kílómetra suður af höfuðborginni Santiago. Slökkviliði tókst að ráða niðurlögum eldsins snemma á laugardagsmorgun.

Alls voru 26 heimilismenn í húsinu þegar eldurinn kom upp. Sextán þeirra létust en tíu komust lífs af og voru fluttir á sjúkrahús til aðhlynningar.

Yfirvöld í sveitarfélaginu Pitrufquén lýstu yfir mikilli sorg vegna harmleiksins. Jacqueline Romero, bæjarstjóri sveitarfélagsins, sagði atburðinn hafa valdið miklum sársauka í samfélaginu og að starfsfólk heilbrigðis- og almannavarnayfirvalda hefði veitt aðstandendum stuðning.

Myndir sem birtar voru á samfélagsmiðlum sýndu gríðarlega eldtungu rísa upp frá byggingunni í myrkrinu á meðan slökkviliðsmenn börðust við eldinn. Á laugardag unnu slökkviliðsmenn áfram að því að hreinsa brak af vettvangi, þar á meðal hluta af þaki hússins sem hafði hrunið. Lögregla lokaði svæðinu af meðan rannsókn fór fram.

Ekki liggur fyrir hvað olli eldsvoðanum. Jorge Granada, saksóknari sem fer með rannsókn málsins, sagði að vettvangsrannsókn og aðrar rannsóknaraðgerðir væru hafnar. Markmiðið væri að komast að upptökum og orsök eldsins og jafnframt kanna hvort einhver utanaðkomandi hefði komið að málinu. Eigendur hjúkrunarheimilisins hafa verið boðaðir í skýrslutöku.

Fram hefur komið að rekstur heimilisins hafi áður verið til skoðunar hjá yfirvöldum. José Bravo, embættismaður hjá heilbrigðisyfirvöldum héraðsins, sagði starfsemina ekki hafa uppfyllt tilskildar reglur. Málsmeðferð og sektir vegna starfseminnar hefðu átt sér stað allt frá árinu 2019 og um ítrekuð brot hefði verið að ræða.

Romero sagði jafnframt að sveitarfélagið hefði sent erindi í febrúar þar sem sérstaklega var óskað eftir eftirliti með heimilinu vegna þess að reksturinn uppfyllti ekki gildandi reglur.

José Antonio Kast, forseti Chile, hefur krafist þess að málið verði upplýst að fullu og nauðsynlegar úrbætur gerðar til að koma í veg fyrir að sambærilegur harmleikur endurtaki sig. Hann hefur jafnframt fyrirskipað brýna úttekt á aðstæðum á hjúkrunarheimilum víða um land.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Prófessor í vondum málum eftir furðuleg atvik í bandarískum háskóla
Heimur

Prófessor í vondum málum eftir furðuleg atvik í bandarískum háskóla

Tjónið er talið nema meira en 2.000 Bandaríkjadölum
Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið
Innlent

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið

Setti eigin líkamsvessa í mat samstarfsfólks
Heimur

Setti eigin líkamsvessa í mat samstarfsfólks

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum
Innlent

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin
Heimur

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

Lést eftir hnífstungu í átökum við herbergisfélaga sinn á Lanzarote
Heimur

Lést eftir hnífstungu í átökum við herbergisfélaga sinn á Lanzarote

Akureyringur ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með kylfu
Innlent

Akureyringur ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með kylfu

Ók á móti rauðu og flúði undan lögreglu um Borgartún á stolnum bíl
Innlent

Ók á móti rauðu og flúði undan lögreglu um Borgartún á stolnum bíl

Þrír létust í árásum Rússa á Kænugarð
Heimur

Þrír létust í árásum Rússa á Kænugarð

Stórmeistarinn Vignir Vatnar stofnar Stórmeistara
Peningar

Stórmeistarinn Vignir Vatnar stofnar Stórmeistara

Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir gróft ofbeldi
Innlent

Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir gróft ofbeldi

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu
Myndir
Fólk

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu

Heimur

Prófessor í vondum málum eftir furðuleg atvik í bandarískum háskóla
Heimur

Prófessor í vondum málum eftir furðuleg atvik í bandarískum háskóla

Tjónið er talið nema meira en 2.000 Bandaríkjadölum
Farþegi lét öllum illum látum í tíu tíma flugi
Heimur

Farþegi lét öllum illum látum í tíu tíma flugi

Setti eigin líkamsvessa í mat samstarfsfólks
Heimur

Setti eigin líkamsvessa í mat samstarfsfólks

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin
Heimur

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin

Lést eftir hnífstungu í átökum við herbergisfélaga sinn á Lanzarote
Heimur

Lést eftir hnífstungu í átökum við herbergisfélaga sinn á Lanzarote

Þrír létust í árásum Rússa á Kænugarð
Heimur

Þrír létust í árásum Rússa á Kænugarð

Loka auglýsingu