
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, lofaði þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland myndi halda áfram í aðildarviðræðum við ESB um inngöngu.
Stjórnmálafræðingurinn Viktor Orri Valgarðsson rifjar þetta upp í pistli á Facebook.
„Að sjálfsögðu kemur til þjóðaratkvæðagreiðslu en við ákvörðun tímasetningar á henni verður að meta aðstæður,“ sagði Sigmundur Davíð þegar stjórnarsáttmáli Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins var kynntur í maí 2013 en hann var forsætisráðherra í þeirri ríkisstjórn. Hann þurfti síðar að segja af sér embætti vegna Wintris-málsins en atkvæðagreiðslan var aldrei haldin þrátt fyrir nægan tíma milli þess að Sigmundur tók við embætti og þess tíma sem hann neyddist til að segja af sér.
Í dag er Sigmundur alfarið á móti því að slík atkvæðagreiðsla verði haldin og telur Viktor það vera mikla hræsni.
„Það er alveg ótrúlega ósvífin hræsni hjá mönnum eins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Óli Björn Kárason að tala um það sem einhvers konar kosningasvik hjá Kristrúnu Frostadóttur að hafa sagt fyrir kosningar að aðildarviðræður við ESB væru ekki sérstaklega á dagskrá hjá henni.
Þegar þessir sömu menn mynduðu ríkisstjórn árið 2013 sem hafði gefið kýrskýr kosningaloforð um að halda þessa þjóðaratkvæðagreiðslu og sviku það loforð síðan blákalt,“ skrifar Viktor meðal annars um málið

Komment