1
Heimur

Tveggja ára strákurinn fannst á lífi eftir 14 klukkustunda leit

2
Heimur

Fékk boð upp á tæpa tvo milljarða fyrir meydóminn

3
Innlent

Maður skotinn eftir partí á Kársnesi

4
Heimur

Mikill fjöldi slasaður eftir stórfurðulegt atvik í verslunarmiðstöð

5
Fólk

Virðulegur húsakostur í Hafnarfirði settur á sölu

6
Innlent

Breytti um nafn og kom sér aftur til Íslands

7
Heimur

Caleb Shomo kemur út úr skápnum

8
Heimur

17 létust í umferðarslysi

9
Heimur

Enn bólar ekkert á tveggja ára guttanum í Svíþjóð

10
Heimur

Sjálfkeyrandi strætó var slysavaldur í Svíþjóð á fyrsta degi

Til baka

Skólar á vegum GRÓ órjúfanlegur hluti af alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands

Ársskýrsla GRÓ er komin út og þar kemur fram að útskrifast hafi 97 sérfræðingar úr þjálfunarnámi á vegum GRÓ

Þorgerður Katrín á viðburði Riddara Kærleikans
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherraÁrsskýrsla GRÓ fyrir árið 2024 komin út
Mynd: Víkingur

Ársskýrsla GRÓ er komin út og þar kemur fram að alls hafi útskrifast 97 sérfræðingar úr þjálfunarnámi á vegum GRÓ – Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu á árinu 2024.

Þar kemur fram að í lok árs höfðu 1.767 sérfræðingar lokið fimm til sex mánaða námi í skólunum fjórum sem starfræktir eru á vegum GRÓ, það er Jafnréttisskólanum, Jarðhitaskólanum, Landgræðsluskólanum og Sjávarútvegsskólanum.

Þá styrkir GRÓ einnig útskrifaða nemendur til framhaldsnáms; luku sjö styrkþegar slíku námi á árinu - tveir doktorsprófi og fimm meistaragráðu.

Jafnréttisskóli GRÓ 2024

Nemendur Jafnréttisskóla GRÓ í námsferð um Suðurland í fyrra

Vert er að minnast á að einnig hafi verið ýmis stutt námskeið haldin í samstarfslöndunum, sem rúmlega 400 manns sóttu, og nýju netnámskeiði var hleypt af stokkunum.

Í nýútkominni ársskýrslu GRÓ er greint frá starfi skólanna fjögurra, sem og því sem var efst á baugi í starfi GRÓ á árinu. GRÓ starfar undir merkjum Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO).

Segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra að „skólarnir sem starfræktir eru á vegum GRÓ hafa frá stofnun verið órjúfanlegur hluti af alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands“ og segir hún einnig að „rætur þeirra ná aftur til áttunda áratugar síðustu aldar, þegar Ísland var að stíga sín fyrstu skref sem veitandi og samstarfsríki í þróunarsamvinnu eftir að hafa sjálft þegið þróunaraðstoð örfáum árum áður.“

Þorgerður Katrín

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Bent er á að eitt sinn hafi Ísland verið á meðal fátækustu ríkja Evrópu, og „byggir sú velsæld sem tekist hefur að skapa hér á landi að miklu leyti á framþróun á þeim sviðum sem skólarnir starfa á“ segir utanríkisráðherra að og nefnir einnig að „reynsla okkar og sérþekking getur þannig skipt miklu máli til að efla sjálfbæra þróun í öðrum löndum og stuðlað að framgangi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.“

Í skýrslunni nýútkomnu er einnig að finna viðauka um starf hvers og eins skóla sem og sögur af starfi nemenda eftir útskrift. Og einnig „dæmi um hvernig þeir hafa nýtt þjálfunina til góðs í heimalöndum sínum.“

Allar upplýsingar um starf ársins eru færðar inn í árangursramma þar sem umfang starfseminnar er sett fram á samræmdan hátt og á „meðal helstu verkefna sem GRÓ vann að í fyrra var að móta stefnu um hvernig megi auka stuðning við nemendur eftir útskrift og hvetja útskrifaða nemendur til stofnunar samtaka í heimalöndum sínum“ því þannig geti „nemendur unnið saman að því að miðla þekkingu sinni og aflað sér nýrrar þekkingar, auk þess að efla tengsl þeirra við íslensk sendiráð í samstarfslöndunum og svæðisskrifstofur UNESCO“ segir Þorgerður Katrín.

Einnig kemur fram að viðamikil óháð úttekt fyrirtækisins GOPA, sem utanríkisráðuneytið lét gera árið 2024, staðfesti góðan árangur af starfinu:

„Helsta niðurstaða úttektarinnar, sem tók til tímabilsins 2018-2023, var að skólarnir hafi með skilvirkum hætti stutt við ungt fagfólk og samstarfsstofnanir í 76 ríkjum á tímabilinu og þannig náð tilætluðum árangri í að gera útskrifuðum nemendum kleift að vinna að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna“ og þá hafi þjálfun er nemendur hlutu skapað „grundvöll fyrir þá til að tileinka sér nýja þekkingu, hæfni og aðferðir“ sagði Þorgerður Katrín að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Breytti um nafn og kom sér aftur til Íslands
Innlent

Breytti um nafn og kom sér aftur til Íslands

Einn í gæsluvarðhaldi eftir blóðug átök
Innlent

Einn í gæsluvarðhaldi eftir blóðug átök

Sjálfkeyrandi strætó var slysavaldur í Svíþjóð á fyrsta degi
Heimur

Sjálfkeyrandi strætó var slysavaldur í Svíþjóð á fyrsta degi

Fleiri berklasmit á Landspítalnum
Innlent

Fleiri berklasmit á Landspítalnum

270 kílóa ísskápur féll á grínista
Myndband
Heimur

270 kílóa ísskápur féll á grínista

Caleb Shomo kemur út úr skápnum
Heimur

Caleb Shomo kemur út úr skápnum

Fékk boð upp á tæpa tvo milljarða fyrir meydóminn
Myndband
Heimur

Fékk boð upp á tæpa tvo milljarða fyrir meydóminn

Fundu lík 12 ára drengs við árbakka í Frakklandi
Heimur

Fundu lík 12 ára drengs við árbakka í Frakklandi

Mikill fjöldi slasaður eftir stórfurðulegt atvik í verslunarmiðstöð
Heimur

Mikill fjöldi slasaður eftir stórfurðulegt atvik í verslunarmiðstöð

Virðulegur húsakostur í Hafnarfirði settur á sölu
Myndir
Fólk

Virðulegur húsakostur í Hafnarfirði settur á sölu

Óskað aðstoðar vegna átaka
Innlent

Óskað aðstoðar vegna átaka

Innlent

Breytti um nafn og kom sér aftur til Íslands
Innlent

Breytti um nafn og kom sér aftur til Íslands

Einn í gæsluvarðhaldi eftir blóðug átök
Innlent

Einn í gæsluvarðhaldi eftir blóðug átök

Fleiri berklasmit á Landspítalnum
Innlent

Fleiri berklasmit á Landspítalnum

Óskað aðstoðar vegna átaka
Innlent

Óskað aðstoðar vegna átaka

Maður skotinn eftir partí á Kársnesi
Innlent

Maður skotinn eftir partí á Kársnesi

Loka auglýsingu