Fleiri starfsmenn á bráðamóttöku Landspítala hafa greinst með berkla á síðustu vikum og hefur málið vakið áhyggjur meðal starfsfólks. Læknir sem nýverið greindist með svokallaða sofandi berkla segir ólíklegt að fjöldi smita á sama vinnustað sé tilviljun og telur að bæta þurfi sýkingavarnir á spítalanum.
„Ég var semsagt að greinast með berkla fyrir tæpum tveimur vikum eftir að hafa fengið sms um að hafa verið útsettur fyrir berklum á bráðamóttökunni,“ segir Steinar Orri Hafþórsson, bráðalæknir á bráðamóttöku Landspítalans, í viðtali við RÚV.
Í febrúar greindust átta starfsmenn bráðamóttökunnar með berkla og hafa þeir nýlokið lyfjameðferð. Síðan þá hafa tveir til viðbótar greinst með smit. Málið tengist erfiðum aðstæðum sem mynduðust á deildinni fyrr á árinu þegar plássleysi á Landspítala gerði það að verkum að ekki var hægt að flytja sjúklinga af bráðamóttökunni yfir á aðrar deildir.
Steinar er með svokallaða sofandi berkla, sem þýðir að hann er einkennalaus en getur þróað með sér virkan sjúkdóm síðar. Hann hóf í vikunni fjögurra mánaða sýklalyfjameðferð sem ætlað er að draga úr líkum á því að sjúkdómurinn blossi upp.
Meðferðin er þó umfangsmikil og fylgja henni reglulegar blóðprufur og eftirlit auk ýmissa óþæginda og raskana á daglegu lífi. Steinar segir mikilvægt að brugðist verði við stöðunni og að hugað verði betur að smitvörnum innan spítalans til að tryggja öryggi starfsfólks og sjúklinga.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir