Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Caleb Shomo kemur út úr skápnum

Eiginkona hans, Fleur Shomo, birti síðar eigin yfir­lýsingu

Caleb Shomo á tónleikum
Caleb Shomo á tón­leikum Mynd: Stefan Brending

Söngvarinn Caleb Shomo, forsprakki bandarísku rokk­hljóm­sveitarinnar Beartooth, greindi frá því um helgina að hann væri samkyn­hneigður eftir meira en 14 ára hjónaband með eiginkonu sinni, Fleur Shomo.

Shomo birti yfir­lýsingu á Instagram þar sem hann sagðist vilja segja sann­leikann um persónulegt líf sitt eftir vanga­veltur undan­farinna ára. Þar kvaðst hann hafa glímt við sjálfs­mynd sína og kynhneigð í langan tíma, samhliða erfið­leikum tengdum áfengis­neyslu.

Í færslunni sagði hann að edrú­mennska hefði hjálpað sér að horfast í augu við tilfinningar sem hann hefði lengi bælt niður. Þá kom fram að væntanleg tónlist hans muni endur­spegla nýjan kafla í lífi hans og að hann hyggist tjá sig af meiri hreinskilni en áður.

Eiginkona hans, Fleur Shomo, birti síðar eigin yfir­lýsingu þar sem hún lýsti yfir stuðningi við eiginmann sinn þrátt fyrir að hjónaband þeirra væri á enda. Hún sagði að það hefði verið sársauka­fullt að fylgjast með innri baráttu hans í gegnum árin og að aðstæðurnar hefðu reynst henni bæði ruglingslegar og erfiðar tilfinninga­lega.

Í færslunni sagðist hún þó áfram vilja „elska, vernda og styðja“ Caleb þrátt fyrir skilnaðinn. Hún rifjaði einnig upp samband þeirra með orðunum: „Sagan okkar var góð. Og nú er henni lokið.“

Parið gekk í hjónaband árið 2012 og eiga þau engin börn saman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Húsið var reist árið 1984
Innlent

Hótað með eggvopni í ráni á höfuð­borgar­svæðinu

Pólitík

Grímur þekkir óttann um öryggi fjöl­skyldunnar

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs