
Eins og eflaust flestir Íslendingar vita er Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík enn þá að ákveða hvort flokkurinn muni vinna með Viðreisn eða Miðflokknum en hvíslað er að Framsókn muni taka þátt, sama hvað.
Að mörgu leyti minnir þetta á makaleit þar sem kostirnir eru, í augum Sjálfstæðisflokksins, góðir en mjög mismunandi. Það sem ýtir enn þá meira undir þetta er hegðun Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, og Björns Inga Hrafnssonar, aðstoðarmanns Sigmundar, í fjölmiðlum eftir að úrslitin voru ljós.
Þeir minna helst á afskiptasama foreldra sem einfaldlega skilja ekki að sonur þeirra sé ennþá á lausu og búi heima. Þeir labba á milli fólks að útskýra hversu góður og skynsamur maki hann sé. Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, virðist sjálfur vera silkislakur og er eflaust að roðna í hvert skipti sem foreldrar hans reyna koma honum í samband ...
