1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

4
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

5
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

6
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

7
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

8
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

9
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

10
Fólk

Eyrún eyðslukló selur í hjarta Reykjavíkur

Til baka

Stefna á risastórt hótel á Gaddastaðaeyju

Einnig er gert ráð fyrir byggingu allt að 30 smáhýsa til útleigu á norðurhluta eyjunnar

Gaddastaðaeyja
Teiknuð mynd af væntanlegu hóteli

Sveitarstjórn Rangárþings ytra hefur samþykkt að auglýsa tillögur að breytingum á aðalskipulagi sveitarfélagsins og nýju deiliskipulagi fyrir Gaddstaðaeyju við Hellu.

Með breytingunum er lagt til að núverandi óbyggt svæði í eyjunni verði skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði með það að markmiði að skapa grundvöll fyrir umfangsmikla uppbyggingu í ferðaþjónustu.

Tillögurnar voru samþykktar til auglýsingar á fundi sveitarstjórnar 10. júní síðastliðinn og eru nú til kynningar og umsagnar samkvæmt ákvæðum skipulagslaga. Íbúum, hagaðilum og öðrum sem málið varðar gefst kostur á að kynna sér áformin og senda inn athugasemdir áður en endanleg ákvörðun verður tekin.

Samkvæmt deiliskipulagstillögunni er gert ráð fyrir allt að 160 herbergja hóteli á suðurhluta eyjunnar ásamt fjölbreyttri afþreyingu, þar á meðal baðlóni. Einnig er gert ráð fyrir byggingu allt að 30 smáhýsa til útleigu á norðurhluta eyjunnar. Smáhýsin munu tengjast rekstri hótelsins og mynda hluta af heildaruppbyggingu svæðisins.

Í kynningargögnum kemur fram að verkefnið geti skapað um 80 til 90 störf þegar reksturinn verður kominn í fullan gang, auk afleiddra starfa sem tengjast þjónustu og ferðaþjónustu á svæðinu. Þá er gert ráð fyrir veitingaaðstöðu, þjónusturými fyrir gesti, nýrri aðkomu að eyjunni með brúarsambandi, tengingu við veitukerfi Hellu og lausnum fyrir fráveitu, ofanvatn og brunavarnir. Einnig er til skoðunar að byggður verði bílakjallari til að draga úr umfangi bílastæða á yfirborði.

Að sögn sveitarfélagsins er lögð áhersla á að uppbyggingin taki mið af sérstöðu Gaddstaðaeyjar og því viðkvæma náttúru- og umhverfisgildi sem svæðið býr yfir. Markmiðið sé að þróa ferðamannasvæði sem falli sem best að landslagi og umhverfi eyjunnar.

Skipulagstillögurnar liggja frammi hjá skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra á Hellu og á heimasíðu sveitarfélagsins. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út 5. ágúst næstkomandi.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Nú er komið að þér, Krist­rún!
Skoðun

Svanur Már Snorrason

Nú er komið að þér, Krist­rún!

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah
Heimur

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið
Innlent

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings
Myndband
Sport

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“
Innlent

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

Sagðist tilbúinn að játa morð gegn því að fá ostasteikarsamloku
Myndband
Heimur

Sagðist tilbúinn að játa morð gegn því að fá ostasteikarsamloku

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga
Innlent

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga

Vopnað lögreglulið kallað út vegna hótana í Bærum
Heimur

Vopnað lögreglulið kallað út vegna hótana í Bærum

Límdu yfir hraðamyndavél lögreglu
Landið

Límdu yfir hraðamyndavél lögreglu

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“
Innlent

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“

Dóttir Noels Gallagher flutt á sjúkrahús í andnauð
Myndband
Heimur

Dóttir Noels Gallagher flutt á sjúkrahús í andnauð

Tugir missa vinnuna hjá Reykjavíkurborg
Innlent

Tugir missa vinnuna hjá Reykjavíkurborg

Landið

Límdu yfir hraðamyndavél lögreglu
Landið

Límdu yfir hraðamyndavél lögreglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

Vilja vernda náttúruperlu í Skriðdal
Landið

Vilja vernda náttúruperlu í Skriðdal

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA
Landið

Skortur á leikskólaplássum tefur endurkomu starfsfólks HSA

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Loka auglýsingu