1
Peningar

Bullandi hagnaður hjá Arnþrúði

2
Fólk

Risavaxið einbýli með tíu herbergjum til sölu

3
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

4
Heimur

Fann 15 milljónir ofan á hraðbanka

5
Heimur

Átta ára japönsk barnastjarna látin

6
Pólitík

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

7
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

8
Innlent

Tveir brunuðu yfir á rauðu og stefndu öðrum í hættu

9
Innlent

Davíð vann tæpa milljón og steyptist í kjölfarið dýpra í spilafíkn

10
Fólk

Sex einfaldar leiðir til að spara peninga

Til baka

Stjörnulífvörður látinn í umferðarslysi

Gætti Kardashian-fjölskyldunnar, Lewis Hamilton, Kevin Hart, Nicki Minaj og fleiri stjarna

Mason Haynes
Mason HayesLífvörður stjarnanna var afar vel liðinn
Mynd: Instagram-skjáskot

Mason Haynes, breskur lífvörður sem starfaði um árabil fyrir Kardashian-Jenner-fjölskylduna, ökuþórinn Lewis Hamilton, tónlistarmanninn Charlie Puth og fleiri heimsþekkta einstaklinga, lést í umferðarslysi 4. júlí síðastliðinn. Hann var 52 ára gamall.

Frá þessu er greint á söfnunarsíðu sem stofnuð hefur verið til styrktar fjölskyldu hans.

„Sumir fara í gegnum lífið. Aðrir skilja eftir sig spor hjá öllum sem þeir hitta. Mason Haynes var einn af þessum sjaldgæfu og einstöku einstaklingum,“ segir í lýsingu söfnunarinnar.

Þar kemur einnig fram að Haynes hafi látist aðeins tveimur dögum fyrir 53 ára afmæli sitt.

„Líf Masons var tekið allt of snemma í hörmulegu umferðarslysi. Eftir sitja eiginkona hans Fay, dóttirin Brooke, sonurinn Noah, ástrík fjölskylda og óvenjustór hópur vina víðs vegar um heiminn.“

Haynes er lýst sem manni sem lét alla finna fyrir hlýju frá fyrstu kynnum.

„Hann var maður sem lét fólk finna sig velkomið frá fyrstu stundu, sem ferðaðist milli landa til að hjálpa vini og brást aldrei þeim sem stóðu honum nærri.“

Í lýsingunni er honum einnig lýst sem verndara, leiðbeinanda og húmorista með stórt hjarta.

Vinnuveitandi hans, Trojan Security UK, heiðraði minningu hans í færslu á Instagram þar sem birt var mynd af Haynes ásamt Kris Jenner.

„Við viljum heiðra sannkallaða goðsögn í heimi lífvarða. Stóri Mason. Farinn allt of snemma. Hvíl í friði, bróðir.“

Eftir háskólanám ákvað Haynes að starfa við öryggisgæslu og sérhæfði sig í svokallaðri nándarvernd fyrir þekkta einstaklinga. Hann gætti meðal annars öryggis Kim Kardashian, Kris Jenner, Kendall Jenner, Kanye West, Kevin Hart, Charlie Puth, Lewis Hamilton og Nicki Minaj.

Í viðtali árið 2018 sagði hann að eitt eftirminnilegasta atvikið á ferlinum hefði verið ránið á Kim Kardashian í París árið 2016.

„Augljósasta dæmið er ránið á Kim Kardashian í París. Ég get ekki farið nánar út í það, en ég var hluti af því teymi. Þetta voru einfaldlega óheppilegar aðstæður sem leiddu til þess að eitthvað mjög slæmt gerðist,“ sagði Haynes þá.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Atlantsolía aldrei grætt meira
Peningar

Atlantsolía aldrei grætt meira

Tekjur Atlantsolíu hafa hins vegar farið lækkandi frá árinu 2022
Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur
Myndband
Heimur

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum
Heimur

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum

Risastór gagnaleki skekur Danmörku
Heimur

Risastór gagnaleki skekur Danmörku

Leitaði til umboðsmanns vegna þvingaðrar lyfjagjafar
Innlent

Leitaði til umboðsmanns vegna þvingaðrar lyfjagjafar

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni
Fólk

Sjö merki um að þú sért með réttu manneskjunni

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

Fyrrverandi eiginmaður Katie Price ákærður fyrir nauðgun á 13 ára stúlku
Heimur

Fyrrverandi eiginmaður Katie Price ákærður fyrir nauðgun á 13 ára stúlku

Stella breytir garnafgöngum í nýja uppáhaldspeysu
Menning

Stella breytir garnafgöngum í nýja uppáhaldspeysu

Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

„Þetta er einfaldlega hörmulegt“
Risastór gagnaleki skekur Danmörku
Heimur

Risastór gagnaleki skekur Danmörku

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja
Heimur

Spennan eykst við landamæri Rússlands og NATO-ríkja

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur
Myndband
Heimur

Kynþáttahatari gripinn glóðvolgur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum
Heimur

Tveir létust og 35 særðust í skotárás í Bandaríkjunum

Loka auglýsingu