1
Minning

Gunnar Smári segir frá andláti herbergisfélaga síns á spítalanum

2
Heimur

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran

3
Minning

Haukur Guðmundsson er fallinn frá

4
Heimur

Limminnsti maður heims biðst afsökunar

5
Innlent

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi

6
Fólk

Sérlega smekklegt hús á Seltjarnarnesi til sölu

7
Heimur

Borgarstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni

8
Heimur

Lík ferðamanns fannst eftir leit á Tenerife

9
Innlent

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi

10
Innlent

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum

Til baka

Stuðningsfulltrúi oddviti Sósíal­ista í Reykja­vík

Segja listann endurspegla mikla breidd

Frambjóðaendur X-J
Framboðslisti Sósíalista í ReykjavíkFrá vinstri að aftan: Rósa, Júnía, Birna, Geirdís, Silja og Sigrún Frá vinstri að framan: Jón, Halldór, Hannes (Jökul Sólberg vantar á mynd)
Mynd: Aðsend

Sósíalistafélag Reykjavíkur hefur kynnt tíu efstu sæti á framboðslista flokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Listinn var lagður fram af uppstillingarnefnd félagsins og samþykktur á félagsfundi laugardaginn 7. febrúar.

Í tilkynningu félagsins segir að listinn endurspegli „mikla breidd“ innan flokksins, bæði hvað varðar aldur og bakgrunn frambjóðenda, og að um sé að ræða venjulegt fólk sem brenni fyrir samfélagslegu réttlæti. Flokkurinn skilgreinir sig sem flokk í þágu almennings og leggur áherslu á að frambjóðendur komi úr ólíkum stéttum samfélagsins.

Efst á lista er Silja Sóley Birgisdóttir, stuðningsfulltrúi, en í kjölfarið fylgja meðal annars athafnakona, verslunarmaður, öryrki, stjórnmálasagnfræðingur, kennari, nemi, kvikmyndagerðarmaður, forritari og sálfræðinemi. Samkvæmt tilkynningunni er markmiðið að tryggja rödd fólks af ólíkum aldri og úr mismunandi starfsstéttum í borgarstjórn.

  1. Silja Sóley Birgisdóttir - Stuðningsfulltrúi 25 ára 
  2. Sigrún E. Unnsteinsdóttir - Athafnakona 69 ára
  3. Hannes Pétursson - Verslunarmaður 33 ára
  4. Geirdís Hanna Kristjánsdóttir - Öryrki 51 árs
  5. Jón Ferdínand Estherarson - Stjórnmálasagnfræðingur 34 ára
  6. Birna Gunnlaugsdóttir - Kennari 64 ára
  7. Rósa Guðný Arnardóttir - Nemi 32 ára
  8. Halldór Ísak Ólafsson - Kvikmyndagerðarmaður 26 ára
  9. Jökull Sólberg Auðunsson - Forritari 40 ára
  10. Júnía Líf Maríuerla Sigurjónsdóttir - Sálfræðinemi 33 ára

Sósíalistar segja borgarbúa búa við margra ára lífskjarakrísu þar sem verð á nauðsynjum hafi hækkað án þess að laun fylgi eftir. Jafnframt hafi þjónusta borgarinnar hnignað vegna aukinnar útvistunar innviða. Flokkurin segist ætla að snúa þessari þróun við og telur bæði nauðsynlegt og raunhæft að gera það.

Í málefnayfirlýsingu sinni leggja Sósíalistar ríka áherslu á húsnæðismál og boða stofnun Byggingafélags Reykjavíkur sem byggi beint, ódýrt og óhagnaðardrifið húsnæði. Slagorð flokksins í þeim málaflokki er að byggja fyrir fólk en ekki fjárfesta.

Í samgöngumálum gagnrýnir flokkurinn það sem hann kallar vitleysu og aukna innviðaskuld, auk gjaldtöku einkafyrirtækja fyrir notkun á bílastæðum borgarinnar. Þá er varað við hugmyndum um einkavæðingu Strætó og boðað að Sósíalistar vilji endurheimta stjórn á innviðum borgarinnar.

Í menntamálum segja Sósíalistar nauðsynlegt að ráðast í raunverulegar aðgerðir, hlusta á starfsfólk í leik- og grunnskólum og bæta starfsaðstæður til að sporna við starfsmannaveltu. Markmiðið sé að skapa uppbyggilegt og hvetjandi skólaumhverfi þar sem bæði börn og starfsfólk blómstri.

Flokkurinn gagnrýnir jafnframt útvistun á vegum borgarinnar og segir hana leiða til verri þjónustu, lakari kjara starfsfólks og hærri kostnaðar til lengri tíma. Lögð er áhersla á að almannafé nýtist almenningi og að fjármagnið vinni fyrir fólkið.

Að lokum segir í tilkynningunni að sækja þurfi fjármagn til þeirra sem eigi það, meðal annars með því að skattleggja fjármagnstekjur til jafns við launatekjur þannig að þær skili sér til sveitarfélaga. Með því telja Sósíalistar hægt að fjármagna grunnþjónustu og skapa sanngjarnara samfélag.

Sósíalistafélag Reykjavíkur segir ljóst að næg verkefni séu fram undan og að flokkurinn ætli sér að snúa við þeirri vegferð sem verið hafi síðustu ár. Markmiðið sé að leysa lífskjarakrísuna, byggja öfluga Reykjavík og skapa borg sem virki fyrir alla.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Dópaður ökumaður með börn í bílnum á höfuðborgarsvæðinu
Innlent

Dópaður ökumaður með börn í bílnum á höfuðborgarsvæðinu

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum
Innlent

Sema Erla segist sæta pólitískum ofsóknum

Vestur-Afríkuríki hyggjast stofna sameiginlegan her gegn jihadistum
Heimur

Vestur-Afríkuríki hyggjast stofna sameiginlegan her gegn jihadistum

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi
Innlent

Sigmundur Ernir krossfesti kaþólsku kirkjuna á Alþingi

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi
Innlent

Banaslysið í Berufirði rakið til aksturs á röngum vegarhelmingi

Borgarstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni
Heimur

Borgarstjóri dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran
Heimur

Frænka Trump segist vita af hverju hann réðist á Íran

„Bandaríkin og Ísrael eru helstu ógnirnar við öryggi mannkyns“
Heimur

„Bandaríkin og Ísrael eru helstu ógnirnar við öryggi mannkyns“

Lík ferðamanns fannst eftir leit á Tenerife
Heimur

Lík ferðamanns fannst eftir leit á Tenerife

Limminnsti maður heims biðst afsökunar
Heimur

Limminnsti maður heims biðst afsökunar

Clinton segist ekki hafa átt í kynferðislegum samskiptum við konuna í pottinum
Myndband
Heimur

Clinton segist ekki hafa átt í kynferðislegum samskiptum við konuna í pottinum

„Velkomin í sturlaðan heim“
Innlent

„Velkomin í sturlaðan heim“

Pólitík

Einar Geir Þorsteinsson leiðir lista Miðflokksins í Hafnarfirði
Pólitík

Einar Geir Þorsteinsson leiðir lista Miðflokksins í Hafnarfirði

„Almannafé á að verja með ábyrgð og gagnsæi.“
Hera Björk býður sig fram
Pólitík

Hera Björk býður sig fram

Diljá Mist segir heilbrigðisráðherra vera fordómafullan
Pólitík

Diljá Mist segir heilbrigðisráðherra vera fordómafullan

Boðað til skyndimótmæla við utanríkisráðuneytið vegna árása á Íran
Pólitík

Boðað til skyndimótmæla við utanríkisráðuneytið vegna árása á Íran

Rúnar Freyr fær sæti á lista Hildar
Pólitík

Rúnar Freyr fær sæti á lista Hildar

Loka auglýsingu