1
Innlent

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg

2
Fólk

Tískudrottning og frétta­maður selja í Vesturbænum

3
Innlent

Elko innkallar ofn vegna brunahættu

4
Heimur

Dánarorsök glímukappans PAC opinberuð

5
Fólk

Fimm algeng mistök sem geta eyðilagt sambandið

6
Menning

Glæpir, örlög og góður félagsskapur í Árbænum

7
Heimur

Ætlaði að fæla burt könguló en brenndi niður lúxusvillu

8
Heimur

Ólöglegir landnemar réðust á bandarískan blaðaljósmyndara á Vesturbakkanum

9
Innlent

Ökumenn reyndu bæði bensíngjöfina og hlaupaskóna

Til baka

Þórhallur dæmdur fyrir grófa líkamsárás á fyrrverandi kærustu

Hlaut fjögurra mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm

Héraðsdómur Reykjavíkur
Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Þórhall Hjálmar Friðjónsson í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir grófa líkamsárás á fyrrverandi kærustu sína á heimili hennar í Reykjavík sumarið 2023. Auk þess var honum gert að greiða konunni rúmlega 861 þúsund krónur í miskabætur og sjúkrakostnað.

Samkvæmt dómnum átti árásin sér stað að kvöldi 11. júlí og fram yfir miðnætti 12. júlí 2023. Þar segir að Þórhallur hafi tekið farsíma konunnar af henni, komið í veg fyrir að hún kæmist út úr íbúðinni og beitt hana ítrekuðu ofbeldi. Hann tók hana meðal annars ítrekað hálstaki, hélt fyrir vit hennar, togaði í hár hennar, kýldi hana í síðu og sló hana í andlitið. Þá reif hann hana úr nærbuxunum.

Konan hlaut fjölda áverka, þar á meðal rifbrot, marbletti, blóðsprengingar í augum og á hálsi auk annarra áverka víðs vegar um líkamann. Hún leitaði til læknis daginn eftir árásina og síðar kom í ljós rifbrot sem staðfest var með tölvusneiðmynd. Læknar báru fyrir dómi að áverkar hennar væru í samræmi við frásögn hennar.

Þórhallur játaði frá upphafi þá háttsemi sem honum var gefin að sök og viðurkenndi meðal annars að hafa tekið konuna hálstaki, haldið henni niðri og bannað henni að fara út. Hann sagðist jafnframt telja mögulegt að rifbrotið hefði orðið þegar hann settist ofan á hana eða hélt henni fastri.

Saksóknari ákærði Þórhall fyrir brot í nánu sambandi. Héraðsdómur taldi hins vegar ósannað að hann og brotaþoli hefðu verið í sambúð í skilningi laganna þrátt fyrir að hafa verið í nánu sambandi. Því var háttsemin ekki felld undir ákvæði um ofbeldi í nánu sambandi heldur undir almennt ákvæði hegningarlaga um stórfellda líkamsárás. Dómurinn taldi þó að tengsl þeirra ykju alvarleika brotsins við ákvörðun refsingar.

Þórhallur var jafnframt ákærður fyrir að hafa brotist inn í síma og spjaldtölvu konunnar og skoðað samfélagsmiðla hennar í heimildarleysi. Dómurinn sýknaði hann af þeim ákærulið þar sem brotið var talið fyrnt þegar ákæra var gefin út.

Við ákvörðun refsingar leit dómurinn meðal annars til þess að Þórhallur hafði ekki áður gerst sekur um refsivert brot, játaði brotin strax og sýndi iðrun. Refsingin var ákveðin fjögurra mánaða fangelsi en fullnustu hennar frestað til tveggja ára, að uppfylltu almennu skilorði.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dánarorsök glímukappans PAC opinberuð
Heimur

Dánarorsök glímukappans PAC opinberuð

Lést degi eftir bardaga
Ólöglegir landnemar réðust á bandarískan blaðaljósmyndara á Vesturbakkanum
Myndband
Heimur

Ólöglegir landnemar réðust á bandarískan blaðaljósmyndara á Vesturbakkanum

Glæpir, örlög og góður félagsskapur í Árbænum
Menning

Glæpir, örlög og góður félagsskapur í Árbænum

Fimm algeng mistök sem geta eyðilagt sambandið
Fólk

Fimm algeng mistök sem geta eyðilagt sambandið

Ætlaði að fæla burt könguló en brenndi niður lúxusvillu
Heimur

Ætlaði að fæla burt könguló en brenndi niður lúxusvillu

Elko innkallar ofn vegna brunahættu
Innlent

Elko innkallar ofn vegna brunahættu

Tískudrottning og frétta­maður selja í Vesturbænum
Myndir
Fólk

Tískudrottning og frétta­maður selja í Vesturbænum

Ökumenn reyndu bæði bensíngjöfina og hlaupaskóna
Innlent

Ökumenn reyndu bæði bensíngjöfina og hlaupaskóna

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg
Myndband
Innlent

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár
Heimur

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar
Myndband
Heimur

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar

Innlent

Elko innkallar ofn vegna brunahættu
Innlent

Elko innkallar ofn vegna brunahættu

Mikilvægt er að hætta strax notkun á ofninum og taka hann úr sambandi
Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst
Innlent

Innkalla hnetublöndu eftir að trébútur fannst

Ökumenn reyndu bæði bensíngjöfina og hlaupaskóna
Innlent

Ökumenn reyndu bæði bensíngjöfina og hlaupaskóna

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg
Myndband
Innlent

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi
Innlent

Amfetamínbasi í Absolut-flöskum skilaði sjö ára fangelsisdómi

Loka auglýsingu