Ekki liggur fyrir hversu oft starfsmenn Strætó hafa hringt eftir lögregluaðstoð á undanförnum 12 mánuðum en Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó, segir Strætó ekki halda utan um slíka tölfræði.
Þá liggi heldur ekki fyrir hversu oft starfsmenn hafi á sama tímabili leitað sér læknisaðstoðar eftir atvik sem koma upp í strætisvögnum og ekki heldur hversu oft þeir hafi óskað eftir áfallahjálp eða sálfræðiaðstoð.
Í síðustu viku kom upp stunguárás í strætisvagni á höfuðborgarsvæðinu. Atvikið endaði með því að maðurinn hlaut skurðáverka á hendi. Lögregla hefur málið til rannsóknar í samvinnu við barnaverndaryfirvöld en myndband af atvikinu hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa


Komment