HeimurMaðurinn á bak við stóra kjólamálið reyndi að kyrkja eiginkonu sína: „Einhver mun deyja“ Maðurinn sem átti stóran þátt í að starta alþjóðlegt rifrildi sem kallað var „Kjólinn sem braut internetið“ situr nú á bak við lás og slá eftir að hafa játað að hafa reynt að kyrkja eiginkonu sína. Samkvæmt The Guardian játaði Keir Johnson, 38 ára, sig sekan um að stofna lífi eiginkonu sinnar í hættu á fimmtudag, fyrir rétti í Glasgow,...
HeimurKarl III missti bragðskynið í krabbameinsmeðferðinni: „Mjög þakklátur læknateyminu“ Karl III Bretakonungur hefur ekki talað mikið um veikindi sín en hann gengst nú undir meðferð vegna ótilgreinds krabbameins. Hann opnaði sig þó svolítið þegar hann heimsótti Flughernaðarsafnið í Middle Wallop í Hampshire. Í heimsókn sinni á safnið, sem átti sér stað í morgun, ræddi Karl III við uppgjafahermanninn Aaron Mapplebeck en sá sagði konunginum að hann hefði misst bragðskynið...
HeimurGraham Norton varð fyrir hnífaárás áður en hann varð frægur: „Ég vissi ekki að ég væri að deyja“ Verðlaunagrínistinn, leikarinn og spjallþáttastjórnandinn geðþekki, Graham Norton komst nærri dauðanum, áður en hann varð frægur. Graham, sem lýsti Eurovision á BBC í gærkvöldi, var stunginn, rændur og skilinn eftir til að deyja á götum Lundúna á níunda áratug síðustu aldar. „Ég vissi ekki að ég væri að deyja, ég fattaði það ekki fyrr en seinna, og þetta er svo ekki...
HeimurÁtta börn og átta konur drepin í loftárásum Ísraelshers á „öruggu svæði“ á Gaza Að minnsta kosti 20 Palestínumenn voru drepnir í loftárásum Ísraelshers í nótt, þar af átta börn og jafnmargar konur. Ísraelsher gerði loftárásir á bæina az-Zuwayda, þar sem búa álíka margir og í Reykjanesbæ og al-Mughraqa, þar sem búa álíka margir og í Árborg, á Gaza í nótt. Fórnarlömbin voru flutt á al-Aqsa sjúkrahúsið en lík þeirra sem létust var raðað...
HeimurAldraðir aðgerðasinnar réðust á Magna Carta skjalið: „Er ríkisstjórnin hafin yfir lög?“ Tveir loftslagsaðgerðarsinnar á níræðisaldri reyndu að brjóta gler sem ver Magna Carta lagabálkinn á British Library í Lundúnum, með hamri. Séra Sue Parfitt, 82 ára, og Judy Bruce, 85 ára líffræðikennari á eftirlaunum, gengu inn á bókasafnið og reyndu að mölva glerbúrið sem verndar hið sögulega skjal með hamri og meitil. Tvíeykið, sem er hluti af Just Stop Oil mótmælahópnum,...
HeimurPúað á ísraelska atriðið á æfingu – Greta Thunberg meðal þúsunda mótmælenda í Malmö Púað var á framlag Ísrael í Eurovision á æfingu í Malmö í gær. Þúsundir mótmæla þátttöku Ísraels í keppninni og krefjast þess að Eden Golan fái ekki að stíga á svið í seinni undankeppninni í kvöld. Greta Thunberg er meðal mótmælenda. Eden Golan varð fyrir því á æfingu í gær að á hana var púað er hún lauk lagi sínu...
HeimurSlóvenía ætlar að viðurkenna Palestínu: „Ég skora á Ísrael að hætta tafarlaust árásum sínum á Gaza“ Forsætisráðherra Slóveníu, Robert Golob, tilkynnti í dag að ríkisstjórn landsins hafi nú hafið formlegt ferli til að viðurkenna Palestínu sem fullvalda ríki. Hann sagði að Slóvenía stefndi að því að viðurkenna sjálfstæða Palestínu á grundvelli landamæranna frá 1967, eða hvers kyns landamærum sem síðar gætu verið dregin upp vegna hugsanlegra framtíðarviðræðna milli Ísraels og Palestínu og umbóta sem palestínsk yfirvöld...
HeimurTveir menn réðust á rapparann Jim Jones á flugvelli – MYNDBAND Rapparinn Jim Jones lenti heldur betur í óskemmtilegri lífsreynslu fyrr í mánuðinum en þá réðust tveir menn á rapparann á flugvelli í Flórída. Samkvæmt lögregluskýrslu var hægt að rekja árásina til þess að rapparinn var í flugi með mönnunum tveimur. Þegar flugvélin var að lenda stóð Jones upp til að ná í handfarangur sinn en gerði það áður en flugvélin...
HeimurKennari varð óléttur eftir nemanda sinn: „Hélt fyrst að hún væri að grínast“ Kennslukona varð ólétt eftir að hafa sofið hjá táningsdreng á meðan hún var laus gegn tryggingu fyrir meint kynlíf með nemanda, samkvæmt gögnum úr dómstóli í Bretlandi. Rebecca Joynes, 30, er sökuð um að hafa í sex skipti stundað kynferðislegt athæfi með barni, þar af tvö á meðan hún gengdi trúnaðarstöðu. Er hún nú fyrir rétti hjá Manchester Crown Court....
HeimurHnefaleikakappi réðst á mann í kvikmyndasal – MYNDBAND Spænski hnefaleikakappinn Antonio Barrul hefur beðist afsökunar á hegðun sinni en um helgina sem leið réðst hann á mann í bíósal. Barrul var staddur á sýningu á nýju Garfield myndinni með konu sinni og syni. Að sögn Barrul var maðurinn sem hann réðst á að koma illa fram við sinn eigin maka og tók hnefaleikakappinn það ekki í máli. Upphófst...
HeimurJens Laerke um lokunina inn á Gaza: „Mjög áhrifarík leið til að koma mannúðarhjálpinni í gröfina“ Jens Laerke, talsmaður mannúðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, segir að með því að loka tveimur aðalleiðum inn á Gaza, sé algjörlega skrúfað fyrir hjálpargögnum, en það hafa Ísraelsmenn einmitt gert, þrátt fyrir að embættismenn hafi varað við því að hungursneyð breiðist út lengra suður með árás Ísraela. Laerke sagði í samtali við blaðamenn að „tvær aðalæðar til að koma hjálpargögnum inn á...
HeimurMorðin á White House-býlinu: Sex ára tvíburar á meðal fórnarlambanna Þegar lögreglan hafði brotist inn í húsið í morgunsárið mætti henni ófögur sjón. Lík Nevills lá í eldhúsinu. Hann var í náttfötunum og lá yfir stól nálægt eldstæðinu. Þar bar allt þess merki að átök hefðu átt sér stað. Hann hafði verið skotinn átta sinnum, sex skot höfðu hafnað í höfði hans og andliti og ljóst að færið hafði verið...