HeimurFékk bleyju senda í pósti – „Er þetta ekki full langt gengið?“ Í vikunni hafa einhverjum nýbökuðum foreldrum borist bleyjur frá Libero í pósti. Dagur Bollason er einn þeirra en hann vekur athygli á þessari markaðsherferð á Twitter. Hann setur spurningarmerki við aðferð Libero á Íslandi sem honum þykir heldur ósvífin. „Þetta fékk ég sent í pósti í morgun. Eru sem sagt markaðsfyrirtæki að skrapa saman kennitölum nýfæddra barna úr þjóðskrá og...
HeimurFjörtíu þúsund manns hafa nú smitast af kórónaveirunni Nú hafa fjörtíu þúsund manns smitast af kórónaveirunni 2019-nCoV um allan heim og eru 910 látnir af völdum veirunnar, flestir síðasta sólarhring eða tæplega 100 manns. Þetta kemur fram á vef Fréttablaðsins. Þar kemur jafnframt fram að yfir 3.500 manns hafi jafnað sig eftir að hafa smitast af veirunni. Fjöldi staðfestra nýsmita sé nokkuð stöðugur. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin WHO telji þó of...
HeimurGagnrýnandi rústaði listaverki sem metið var á 2,5 milljónir Myndlistagagnrýnandinn Avelina Lésper skemmdi listaverk á listahátíðinni Zona Maco í Mexíkó um helgina. Verkið sem Lésper eyðilagði er metið á 2,5 milljónir króna. Verkið samanstóð af nokkrum manngerðum hlutum, svo sem fótbolta og tennisbolta, sem hafði verið stillt upp á móti hlutum út náttúrunni, t.d. fjöður og grjóti. Hlutirnir héngu sitthvoru megin við glerplötu. Verkið var eftir listamanninn Gabriel Rico....
Heimur„Oh nei, hún flýgur of lágt“ Um kl. 9.45 sunnudaginn 26. janúar sl. stóð Scott Daehlin fyrir utan kirkju í Calabasas í Kaliforníu. Það var þungskýjað en hann gat heyrt þyrlu fljúga yfir. Daehlin hafði búið á svæðinu í 57 ár og vissi að handan við skýjaþokuna lágu varasamar hæðir. „Oh nei,“ sagði hann við sjálfan sig. „Hún flýgur of lágt.“ Hann heyrð skell og svo...
HeimurFlókið forval Demókrataflokkurinn og Repúblikanaflokkurinn velja forsetaefnið sitt í forkosningum, í öllum ríkjum og á bandarísku yfirráðasvæðunum. Valið hófst með kosningunum í Iowa og lýkur í Puerto Rico í júní. Ljóst þykir að Donald Trump verði forsetaefni Repúblikanaflokksins en mótframbjóðendur hans mælast vart í könnunum og þá hafa stjórnir flokksins í nokkrum ríkjum ákveðið að halda ekki forkosningar og beina þess í...
HeimurKapphlaupið hafið fyrir alvöru Pete Buttigieg fór með sigur af hólmi í forkosningum demókrata í Iowa en fæstir telja meðbyrinn nægan til að skila honum í Hvíta húsið. Baráttan hefur staðið um hugmyndir en nú spyrja menn sig: hver er líklegastur til að fella drekann? Hann nam við Harvard og síðar Oxford sem Rhodes-styrkþegi. Hann starfaði fyrir forsetaframboð John Kerry árið 2004 og síðar...
HeimurEr hreisturdýrið sökudólgurinn? – Smitum fækkar Kínverskir vísindamenn telja mögulegt að hreisturdýrið (e. pangolin) sé mögulega smitvaldur kórónaveirunnar 2019-nCoV, sem nú fer manna á milli. Suður-kínverski landbúnaðarháskólinn sagði í tilkynningu að um væri að ræða uppgötvun sem gæti haft mikla þýðingu hvað varðar forvarnir. Engu dýri er smyglað í jafn miklum mæli og hreisturdýrinu en bæði skrápur þess og kjöt er eftirsótt. Það er í útrýmingarhættu...
HeimurÞekktur fjölmiðlamaður kemur út – giftur konu í 27 ár Phillip Schofield, einn þekktasti sjónvarpsmaður Bretlands, er kominn út úr skápnum. Í færslu á Twitter reikningi þáttarins This Morning, sem sýndur er á ITV, sagðist hann hafa komist að þessari niðurstöðu um sjálfan sig með aðstoð dætra sinna og eiginkonu til 27 ára. Hinn 57 ára Schofield sagðist hafa grátið á öxl Holly Willoughby, sem stýrir morgunþættinum með honum. Þá...
HeimurSló met með 328 dögum í geimnum Bandaríski geimfarinn Christina Koch lenti í Karaganda í norðurhluta Kasakstans í dag eftir að hafa dvalið 328 daga í heimnum. Engin kona verið lengur í geimnum í einni atrennu en fyrir átti bandaríski geimfarinn Peggy Whitson metið, hún var 289 daga í geimnum. Í þennan tíma var Koch í Alþjóðlegu geimstöðinni sem er á braut um jörðu. Ferðalag hennar hófst...
HeimurÁstandið um borð í Diamond Princess – Óvissa ríkir og farþegar að „klikkast“ Ljósmyndir og lýsingar farþega af ástandinu um borð í Diamond Princess skemmtiferðaskipinu vekja athygli á samfélagsmiðlum. Í skipinu eru rúmlega 3.700 farþegar í einangrun vegna kórónuveirunnar sem kennd er við kínversku borgina Wuhan. Farþegarnir þurfa að vera 14 daga í sóttkví í skemmtiferðaskipinu við strendur Japan eftir að 20 tilfelli af smiti greindust í skipinu. Nokkrir farþegar Diamond Princess lýsa...
HeimurStarfsfólk Prada þarf að gangast undir þjálfun til að koma í veg fyrir annað hneykslismál Starfsfólk ítalska tískuhússins Prada mun hljóta þjálfun í næmni (e. sensitivity) í kjölfar hneykslismáls sem kom upp í lok árs 2018. Töskuskrautið sem um ræðir. Í desember 2018 hlaut Prada mikla gagnrýni fyrir töskuskraut og annan varning sem þótti minna á „blackface“-gervi sem er tengt sögu kynþáttafordóma. Tískuhúsið tók umræddar vörur strax úr sölu og baðst afsökunar á dómgreindarleysinu. Í...
HeimurSegjast hafa gleymt sér Það vakti mikla athygli þegar hjónin Jay-Z og Beyoncé sátu kyrr í sætum sínum þegar söngkonan Demi Lovato söng þjóðsöng Bandaríkjanna á Ofurskálinni, úrslitaleik NFL-deildarinnar í bandarískum fótbolta, á sunnudaginn en venjan er sú fólk standi upp þegar þjóðsöngurinn er fluttur. Myndband sem sýndi hjónin sitja í sætum sínum yfir þjóðsöngnum fór sem eldur um sinu á samfélagsmiðlum. Margir vildu...