HeimurSegjast hafa gleymt sér Það vakti mikla athygli þegar hjónin Jay-Z og Beyoncé sátu kyrr í sætum sínum þegar söngkonan Demi Lovato söng þjóðsöng Bandaríkjanna á Ofurskálinni, úrslitaleik NFL-deildarinnar í bandarískum fótbolta, á sunnudaginn en venjan er sú fólk standi upp þegar þjóðsöngurinn er fluttur. Myndband sem sýndi hjónin sitja í sætum sínum yfir þjóðsöngnum fór sem eldur um sinu á samfélagsmiðlum. Margir vildu...
HeimurTrump neitaði að taka í höndina á Pelosi Donald Trump Bandaríkjaforseti neitaði að taka í höndina á Nancy Pelosi, leiðtoga demókrata í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, eftir að hann flutti stefnuræðu sína í gær. Eftir að Trump afhenti Pelosi og Mike Pence varaforseta eintak af ræðu sinni rétti Pelosi fram höndina en Trump neitaði að taka í höndina á henni. Ávarpi Trums var sjónvarpað beint og vöktu samskipti Trump og...
HeimurSagt upp störfum vegna samlokuþjófnaðar Háttsettum starfsmanni hjá bandaríska bankanum Citigroup var sagt upp störfum í síðasta mánuði vegna gruns um samlokuþjófnað. Starfsmaðurinn, hinn 31 árs Paras Shah, vann á fjárfestingasviði bankans. Í frétt BBC um málið kemur fram að hann sé grunaður um að hafa lagt það í vana sinn að stela samlokum úr matsal útibús bankans í London í Canary Wharf-byggingunni, þar sem...
HeimurWuhan-kórónaveiran: Annað dauðsfall utan Kína Annað dauðsfallið af völdum Wuhan-kórónaveirunnar utan meginlands Kína var staðfest í morgun. RÚV greinir frá. Hinn látni er 39 ára gamall karlmaður, sem var á ferðalagi í Wuhan í janúar. Hann var búsettur í Hong Kong og fór heim með hraðlest 23. janúar. Greind tilfelli veirunnar eru orðin 20.629 og dauðsföll eru orðin 427. Samkvæmt upplýsingum John Hopkins háskólans eru...
HeimurGestir BAFTA hvattir til að klæðast notuðum fötum BAFTA-verðlaunahátíðin, bresku kvikmyndaverðlaunin, fór fram í 73. sinn í gær í Royal Albert Hall í London í Bretlandi. Skipuleggjendur hátíðarinnar lögðu mikla áherslu á að fara umhverfisvænar leiðir í hátíðarhöldunum og hvöttu þess vegna gesti til að mæta í notuðum fötum á hátíðina í stað þess að kaupa ný föt. Gestir BAFTA fengu leiðarvísir fyrir hátíðina sem nemendur við London...
Heimur„Ég vil bara vera Kobe Bryant“ Körfuknattleiksmaðurinn Kobe Bryant lést í hörmulegu þyrluslysi á sunnudaginn, ásamt Giönnu dóttur sinni, og sjö öðrum sem um borð voru í þyrlunni. Hann bjó yfir óbilandi sigurvilja sem fjölmargir titlar og met vitna um, en kom sér stundum í ógöngur utan vallar. Hann lærði mikið af Michael Jordan en vildi ekki vera borinn saman við goðsögnina. „Maður svíkur sjálfan sig...
HeimurWuhan-kórónaveiran: Smit staðfest í Svíþjóð Wuhan-kórónaveiran hefur nú greinst í Svíþjóð, en Sóttvarnastofnunin í Svíþjóð og heilbrigðisyfirvöld í Jönköping greindu frá því nú í dag. Kona sem var nýlega á ferðalagi í Kína hefur verið sett í einangrun á Ryhov-sjúkrahúsi í Jönköping. Konan er þó ekki alvarlega veik samkvæmt tilkynningu Sóttvarnastofnunar. RÚV greindi frá. Í tilkynningunni segir að lítil hætta sé á því að Wuhan-kórónaveiran...
Heimur„Nánast vonlaust að hún berist ekki hingað“ Sóttvarnalæknir telur nær útilokað að Wuhan-kórónaveiran berist ekki til Íslands. Embætti landlæknis er á haus við að undirbúa komu hennar. Verið er að dreifa hlífðarbúnaði til sjúkrastofnana og undirbúa leiðbeiningar fyrir almenning og heilbrigðisstarfsfólk, með það að markmiði að hefta útbreiðsluna. Stór fyrirtæki hafa verið hvött til að skipuleggja hvernig þau geta starfað áfram með skertan mannafla. 2,2% þeirra sem...
HeimurWuhan-kórónaveiran er komin til Bretlands Bresk heilbrigðisyfirvöld hafa staðfest að tvö tilfelli Wuhan-kórónaveirunnar hafi greinst í Bretlandi. BBC greinir frá, og einstaklingarnir eru í sömu fjölskyldu, en ekki kemur fram hvernig tengslin eru. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin WHO lýsti í gær yfir neyðarástandi á heimsvísu vegna veirunnar, sem dreifir hratt úr sér og tala látinna hækkar stöðugt. Alls eru 213 látnir, flestir í Hubei-héraði í Kína. Gærdagurinn var...
HeimurBBC ætlar að fækka um 450 störf Breska ríkisútvarpið, BBC, ráðgerir að fækka um 450 störf á fréttasviði fyrir árslok 2022, með það fyrir augum að lækka rekstrarkostnað um 80 milljónir sterlingspunda á ári. RÚV greinir frá þessu en þar kemur fram að haft sé eftir fréttastjóranum Fran Unsworth að áformaður niðurskurður kalli á ýmsar breytingar á BBC. Vegna tækniframfara eigi línuleg sjónvarpsdagskrá undir högg að sækja...
HeimurAndrew beðinn um að gera það rétta í stöðunni Lögmaður kvennanna sem hafa sakað auðkýfinginn Jeffrey Epstein um mansal og misnotkun segir konurnar vera afar ósáttar við Andrew Bretaprins. Þær hvetja Andrew til að aðstoða rannsakendur í máli Epstein en prinsinn og Epstein voru félagar og er sá fyrrnefndi talinn búa yfir mikilvægum upplýsingum. Lögmaðurinn Lisa Bloom segir að nú sé kominn tími til að Andrew hætti að leika...
HeimurGreina frá síðustu augnablikunum fyrir slysið Samgönguöryggisráð Bandaríkjanna (NTSB) rannsakar nú orsök þyrluslyssins sem varð á sunnudaginn í Kaliforníu þar sem níu manns létust, meðal annars körfuboltamaðurinn Kobe Bryant og 13 ára dóttir hans, Gianna. Í frétt CNN segir að þyrluflugamaðurinn sem flaug þyrlunni hafi greint flugumferðarstjórn að hann væri að hækka flugið til að forðast þoku og ský en afar slæmt skyggni var í Kaliforníu...