Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég vil bara vera Kobe Bryant“

„Ég vil bara vera Kobe Bryant“
Mynd / epa|Mynd / epa|

Körfuknatt­leiks­mað­ur­inn Kobe Bryant lést í hörmu­legu þyrluslysi á sunnu­dag­inn, ásamt Giönnu dóttur sinni, og sjö öðrum sem um borð voru í þyrl­unni. Hann bjó yfir óbilandi sig­ur­vilja sem fjöl­margir titlar og met vitna um, en kom sér stundum í ógöngur utan vallar. Hann lærði mikið af Michael Jordan en vildi ekki vera bor­inn saman við goð­sögn­ina.

„Maður svíkur sjálfan sig þegar maður seg­ist ekki geta áorkað ein­hverju. Heilinn í mér höndlar ekki að mis­takast; hann skilur það ekki. Það væri nærri því verra en dauð­inn sjálfur, að þurfa að setj­ast niður og segja við sjálfan mig að ég væri mis­heppn­aður – að mér hefði mis­tek­ist.“

Kobe, sem var 41 árs þegar hann fórst, er einn allra besti leik­maður í sögu NBA-deild­ar­innar. Hann var á vell­inum þekktur fyrir óbilandi sig­ur­vilja, trú á sjálfum sér og sjálf­saga, eins og til­vitn­unin í hann hér að ofan ber með sér.

Kobe Bryant fædd­ist 23. ágúst 1978 í Penn­syl­vaníu í Fíla­delfíu í Banda­ríkj­unum. Hann lék í 20 ár með Los Angeles Lakers. Hann varð NBA-meist­ari þrjú ár í röð á árunum 2000 til 2002, þar sem þeir Shaquille O‘Neal mynd­uðu eitt­hvert þekktasta tvíeyki körfu­bolta­sög­unnar. Hann var stiga­hæstur í NBA-deild­inni 2005-2006 og 2006-2007. Hann skor­aði mest 81 stig í einum leik en aðeins gamla hetjan Wilt Chamberlain skor­aði meira í einum og sama leiknum.

Kobe leiddi Lakers í úrslit NBA-deild­ar­innar 2008 en það ár vann hann til gull­verð­launa á Ólymp­íu­leik­unum í Peking. Hann varð aftur ólymp­íu­meist­ari 2012. Kobe var val­inn mik­il­væg­asti leik­maður úrslita­keppn­innar árin 2008-2010 og var besti leik­maður Lakers sem vann NBA-deild­ina 2009 og 2010. Aðeins tveir hafa skorað fleiri stig í NBA-deild­ar­keppn­inni frá upp­hafi. Á 20 ára ferli í NBA var hann í 18 skipti val­inn til að spila í stjörnu­leik NBA en í fjögur skipti var hann besti maður stjörnu­leiks­ins. Í loka­leik sínum í deild­inni, sem fram fór 13. apríl 2016, þegar Kobe var 37 ára, varð hann elsti leik­mað­ur­inn í sögu deild­ar­innar til að skora 60 stig í einum og sama leiknum.

Mynd / epa

Borinn saman við Jordan

Kobe hefur í gegnum tíð­ina iðu­lega verið líkt við Michael Jordan sem tal­inn er besti körfuknatt­leiks­maður allra tíma. Kobe sagði að Jordan hefði allar götur reynst sér afar vel og verið fús til að veita sér heil­ræði og til­sögn. „Ég held að fólk átti sig ekki á þeim áhrifum sem Jordan hefur haft á mig sem leik­mann og leið­toga,“ sagði hann eitt sinn. Kobe lét hins vegar líka hafa eftir sér að hann vildi ekki bera sig saman við goð­sögn­ina. „Ég vil ekki verða næsti Michael Jordan. Ég vil bara vera Kobe Bryant.“

Jordan er einmitt á meðal þeirra sem minnst hefur Kobe Bryant. „Ég elskaði Kobe – hann var mér sem bróðir. Við töl­uðum reglu­lega saman og ég mun sakna þeirra sam­tala mjög,“ sagði hann meðal ann­ars.

Breyskleikar sigurvegarans

Þótt Kobe sé fyrst og fremst þekktur fyrir afrek sín á körfu­bolta­vell­inum skipt­ust á skin og skúrir í lífi hans.  Árið 2003 var hann hand­tek­inn og í kjöl­farið ákærður fyrir að hafa nauðgað 19 ára hót­el­þernu. Kobe við­ur­kenndi að hafa átt kyn­ferð­is­legt sam­neyti með kon­unni, og haldið fram hjá eig­in­konu sinni, en hafn­aði öllum ásök­unum um kyn­ferð­is­brot. Málið var látið niður falla eftir að konan neit­aði að bera vitni fyrir dómi. Hann var sóttur til saka af hinu opin­bera en um málið var samið án aðkomu dóm­stóla. Kobe bað kon­una síðar afsök­unar og sagði að þó að hann hefði sjálfur litið svo á að sam­þykki væri fyrir hendi gæti hann skilið að henni hafi ekki liðið eins. Þetta fylgdi honum þó allar götur. Það var meðal ann­ars rifjað upp þegar Kobe vann til Ósk­arsverð­launa fyrir stutt­mynd í flokki teikni­mynda árið 2018, á hápunkti #Metoo-bylt­ing­ar­innar.

Kobe var sannur sig­ur­veg­ari en eins og knatt­spyrnu­þjálf­ar­inn José Mourinho sagði þegar hann frétti af and­láti Kobe, eru menn með slík per­sónu­ein­kenni ekki allra. Kobe sem þótti stundum heldur eig­in­gjarn á bolt­ann, lenti reglu­lega saman við sam­starfs­fólk. Þeir Shaquille O‘Neal eld­uðu stundum grátt silfur auk þess sem hann komst upp á kant við stjórn Lakers og jafn­vel goð­sögn­ina Phil Jackson, ein­hvern far­sælasta þjálf­ara í sögu NBA. Þá bár­ust stöku sinnum fréttir af því að hjóna­band Kobe við Vanessu héngi á blá­þræði.

Kobe spil­aði 13 tíma­bil eftir nauðg­un­ar­á­kæruna og varð á þeim tíma í tvígang NBA-meist­ari. Hjóna­band hans og Vanessu hélt í gegnum súrt og sætt, en þau áttu saman fjórar dætur. Natalia er elst en hún fædd­ist 2003. Gianna sem nú er látin, var fædd 2006 og var sér­stak­lega efni­legur leik­maður. Þau voru einmitt á leið á æfingu þegar slysið varð. Bianka fædd­ist 2016 og sú yngsta, Capri, verður árs­gömul í júní.

„Eins og að fá högg í magann“

„Maður varð bara lamaður ein­hvern veg­inn,“ segir marg­faldur Íslands­meist­ari og þjálf­ari í körfuknatt­leik, Finnur Freyr Stef­áns­son, í sam­tali við Mannlíf um það þegar honum bár­ust fréttir af frá­falli Kobe Bryant. Það kom Finni á óvart að finna til sterkra sorg­ar­við­bragða. „Maður trúir því eig­in­lega ekki að ein­hver maður úti í heimi, sem maður hefur hvorki hitt né séð, geti haft svona áhrif á mann. En Kobe er eini mað­ur­inn sem ég get sagt að hafi verið átrún­að­ar­goðið mitt. Hann skipti mig senni­lega meira máli en mig grun­aði.“

Finnur hefur fylgst náið með NBA síðan körfu­bolta­mynda­æði rann á börn og ung­linga á tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Þá var Jordan aðal­stjarnan og hafði verið um tíma. Finnur segir að Kobe sé fyrsta stór­stjarnan sem hann hafi fylgst með allan fer­il­inn. „Ég var 13 ára þegar hann kom inn í deild­ina en er núna 36 ára. Hann hefur verið hluti af mínu lífi í 23 ár af 36.“

Finnur segir að Kobe sé fyrir körfu­bolt­ann eins og Ronaldo eða Messi fyrir fót­bolt­ann; ímynd þess að ná langt í krafti vinnu­semi og ástríðu fyrir íþrótt­inni. Finnur bendir á að þótt Kobe hafi verið hættur að spila hafi hann í auknum mæli sýnt vilja til að láta gott af sér leiða í þágu ann­arra. Hann var mik­ill tals­maður kvenna­í­þrótta; jafnt körfuknatt­leiks sem knatt­spyrnu. „Hann sýndi mik­inn vilja til að hafa áfram áhrif á íþrótta­menn um heim allan,“ segir Finnur. Þess má geta að Kobe sagði fáum dögum fyrir and­lát sitt að hann von­að­ist til að konum yrði einn dag­inn gert mögu­legt að spila í NBA-deild­inni. Þær væru sumar hverjar nógu góðar til þess. „Hann var bara rétt að byrja,“ segir Finnur um áhrifin sem hann hefði getað haldið áfram að hafa á íþrótta­menn um heim allan.

Um breysk­leika Kobe, til dæmis sam­skipta­örð­ug­leika við sam­herja og þjálf­ara, vitnar Finnur til orða José Mourinho um að þeir einu sem skilji hug­ar­far sig­ur­veg­ara og þrá þeirra til að ná árangri séu þeir sem séu eins þenkj­andi sjálfir. Þessir menn geti oft verið erf­iðir í sam­skiptum. „Það getur verið erfitt að vera í kringum þannig fólk alla daga. Shaq var til dæmis glaum­gosi og ekki alltaf með hug­ann allan við íþrótt­ina,“ útskýrir Finnur. „Það er ekk­ert óeðli­legt að þeim tveimur hafi lent saman.“

Finni finnst und­ar­leg til­hugsun að Kobe sé far­inn. „Þetta er skrýtið. Maður hefur upp­lifað sorg áður, til dæmis í eigin fjöl­skyldu, og maður tekst við hana á ákveð­inn hátt. En maður finnur á Twitter hvað margir eru sorg­mæddir – og margir sem upp­lifa sömu til­finn­ingar. Það er gott að geta séð að fleiri finna það sama og maður sjálfur. Kobe var sá leik­maður sem gerði það að verkum að ég fór úr því að verða áhuga­maður yfir í að verða ást­fang­inn af íþrótt­inni. Það að fá þessar fréttir var eins og að fá högg í mag­ann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta