HeimurSegir Andrew Bretaprins ósamvinnuþýðan Andrew Bretaprins er ósamvinnuþýður við rannsókn á máli Jeffrey Epstein að sögn bandaríska saksóknarans Geoffrey S. Berman. Berman og fulltrúar bandarísku alríkislögreglunnar hafa haft samband við lögmenn Andrews en Andrew hefur alltaf haldið því fram að hann hafi aldrei orðið vitni að neinu grunsamlegu í kringum Epstein sem gæti bent til mansals eða vændis Berman sagði á blaðamannafundi í dag...
Heimur9 mánaða stúlka yngst greindu Að minnsta kosti 80 hafa látist af völdum kórónaveirunnar 2019-nCoV. Um 2.800 tilfelli hafa verið greind í Kína, þar af 1.400 í héraðinu Hubei. Sá yngsti sem greinst hefur með veiruna er 9 mánaða stúlkubarn. Að sögn borgarstjórans í Wuhan, höfuðborg Hubei, fá nú um 3 þúsund manns meðferð við veirunni. Hann segir hins vegar líkur á að um helmingur...
HeimurKatrín afhjúpar magnaðar ljósmyndir á alþjóðlegum minningardegi fyrir fórnarlömb helfararinnar Í dag eru 75 ár liðin frá frelsun fanga sem var haldið í Auschwitz-útrýmingarbúðum nasista á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar. Katrín Middleton, hertogaynja af Cambridge, hefur undanfarið unnið að ljósmyndasýningu þar sem hún myndar fólk sem komst lífs af úr helför nasista. Myndirnar afhjúpaði hún í dag, á alþjóðlegum minningardegi fyrir fórnarlömb helfararinnar. Á myndunum má sjá fólk sem tókst að...
Heimur13 ára dóttir Kobe Bryant á meðal látinna Gianna Bryant, 13 ára gömul dóttir Kobe og Vanessa Bryant, lést í þyrluslysinu í morgun, ásamt föður sínum. Ásamt þeim voru flugmaður, ásamt öðru foreldri og barni, í þyrlunni. Samkvæmt heimildum voru þau á leiðinni á körfuboltaleik hjá Giönnu. Fyrstu fregnir hermdu að fimm hefðu verið í þyrlunni, en alls voru níu manns í henni, flugmaður og átta farþegar. Sjá...
HeimurKobe Bryant látinn Kobe Bryant lést í morgun í þyrluslysi í Calabasas í Kaliforníu. Andlát hans hefur verið staðfest af heimildarmanni ESPN, og CNN. Slysið varð um klukkan tíu í morgun að staðartíma. Eldur logaði í þyrlunni þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang, fimm voru um borð í þyrlunni og lifði enginn slysið af. Kobe Bryant var 41 árs að aldri og skilur eftir...
HeimurVon í vísindunum Hjartasjúkdómar eru langalgengasta dánarorsök meðal þjóða heims og á Vesturlöndum fylgir krabbamein fast á eftir. En sem betur fer berast reglulega fregnir af nýjungum í læknavísindunum sem vekja vonir um nýjar meðferðir við illvígum sjúkdómum, aukin lífsgæði og lengra líf til handa sjúklingum. Ein meðferð við öllum krabbameinum? Vísindamenn við Cardiff University hafa uppgötvað nýja tegund T-frumu sem hefur vakið...
HeimurMichelle Carter laus úr fangelsi Hin 23 ára Michelle Carter var í dag látin laus úr fangelsi eftir tæplega eins árs fangelsisvist. Carter var látin laus fyrr vegna góðrar hegðunar er fram kemur í frétt CNN. Í ágúst 2017 dæmdi dómari í Massachusetts Carter, þá 17 ára, í tveggja og hálfs árs fangelsi, þar af fimmtán mánuði óskilorðsbundið, fyrir aðild hennar að dauða Conrads Roy...
HeimurKvaddi með stæl með glæsilegri sýningu Franski hönnuðurinn Jean Paul Gaultier fagnaði í gær 50 árum í bransanum með glæsilegri sýningu fyrir Gaultier Paris á tískuvikunni í París. Sýningin markar tímamót þar sem línan sem Gaultier sýndi í gær er síðasta haute couture-línan sem hann hannar. Gaultier kvaddi með stæl og fékk margar af helstu fyrirsætum heims til að ganga tískupallinn á sýningunni, meðal annars systurnar...
HeimurKrefjast rannsóknar á njósnum um Bezos Sérfræðingar á vegum Sameinuðu þjóðanna krefjast þess að stjórnvöld í Bandaríkjunum og annars staðar hefji rannsókn á því hvort Jeff Bezos, eigandi Amazon og einn ríkasti maður heims, var fórnarlamb njósna af hálfu Sádi Arabíu. Agnés Callamard og David Kaye, ráðgjafar SÞ á sviði ólögmætra aftaka og tjáningarfrelsis, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir lýsa yfir áhyggjum vegna...
Heimur13 ára og gnæfir yfir foreldra sína Nýlegar ljósmyndir af hinum þrettán ára Barron Trump, syni Donalds og Melaniu Trump, hafa vakið mikla athygli undanfarið. Barron litli er ekkert sérlega lítill lengur en á stuttum tíma hefur hann stækkað mikið og er orðinn töluvert hærri en foreldrar sínir. Myndirnar sem um ræðir hafa farið sem eldur um sinu á samfélagsmiðlum undanfarna daga og margt fólk hefur þá...
HeimurTerry Jones látinn Leikarinn Terry Jones, meðlimur breska grínhópsins Monty Python, er látinn 77 ára að aldri. Hann lést í gærkvöldi. Umboðsmaður Jones staðfesti þetta við breska fjölmiðla í dag. Jones greindist með framheilabilun árið 2015 en fjölskylda hans greindi frá því árið 2016. Jones var fæddur árið 1942 og á merkilegan feril að baki en þekktastur er hann fyrir hlutverk sitt innan...
HeimurÁkærð fyrir að vera berbrjósta heima Dómari í Utah í Bandaríkjunum hefur neitað að vísa frá máli á hendur konu sem var ákærð fyrir að vera berbrjósta heima hjá sér. Tók hann afstöðu með saksóknurum í málinu, sem sögðu hugtakið „lewdness“, sem þýða má sem dónaskap, sannarlega ná til kvenbrjósta í bandarísku samfélagi. Konan var heima hjá sér við framkvæmdir í bílskúrnum þegar hún og eiginmaður...