InnlentHvað finnst þér um niðurstöðu alþingiskosninganna? Nú er loksins komin niðurstaða úr alþingiskosningunum og óhætt er að segja að hún sé nokkuð óvænt. Samfylkingin vann stórsigur og stóð Sjálfstæðisflokkurinn sig betur en flestir áttu von á. Miðflokkurinn stóð sig verr en búist var við en bætti þó vel við sig frá síðustu kosningum. Þá féllu Vinstri græn og Píratar út af Alþingi og Sósíalistaflokkurinn náði ekki...
InnlentÞorgerður Katrín með flest spil á hendi: Brotthvarf Bjarna gæti opnað á stjórnarsamstarf Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, er með flest spil á hendi og getur ráðið því hvort mynduð verður stjórn til vinstri eða hægri. Eins og staðan er nú er líklegast að Viðreisn halli sér að Samfylkingu. Fjölmargt sameinar flokkana tvo og eftir því er tekið að Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín eiga góða samleið. Þær tvær ættu góðan möguleika á...
InnlentSkemmdarvargur með barefli Lögregla kölluð til þar sem aðili hafði ráðist að öðrum og kastað í hann glasi. Þolandi var ekki alvarlega slasaður. Lögregla þekkir til árásaraðila og leitar hans nú. Rúðubrjótur var á ferð í miðborginni. Hann braut rúður í bifreiðum og var talið að hann væri vopnaður barefli. Lögregla fann skemmdarvarginn skömmu síðar og var hann í slæmu ástandi. Hann var...
InnlentBrynjar er búinn: „Nú er komið að leiðarlokum, ætli ég hafi slegið nýtt met í að hætta í pólitík?“ Sjálfstæðismaðurinn og fyrrum þingmaðurinn Brynjar Níelsson segist vera orðinn vanur því „að sofna inni en vakna úti. Slíkt gerðist ekki hjá okkur Soffíu í gamla daga. En nú er loksins komið að leiðarlokum hjá mér í stjórnmálum. Soffía sagði við mig þegar ég vaknaði að ég hefði hvort eð er ekki getað verið á þinginu án Pírata. Ég hefði bara...
InnlentEgill Helgason segir að ný ríkisstjórn verði skrítin blanda: „Hver býður best í Ingu?“ Fjölmiðlamaðurinn góðkunni, Egill Helgason, er ávallt til í að viðra skoðanir sínar og ekki stendur á því eftir niðurstöður kosninganna. Egill spyr: „Er það Flokkur fólksins sem ræður því hvaða ríkisstjórn tekur við völdum?“ Inga Sæland, formaður Flokks fólksins Agli finnst Flokkur fólksins vera „býsna illa skilgreinanlegur flokkur. Er hann til vinstri eða er hann til hægri?“ Hann færir í...
InnlentFinnur um úrslit kosninganna: „Þakklæti, vonbrigði og ótti“ Finnur Ricart Andrason, fyrrverandi forseti Ungra umhverfissinna, sem skipaði fyrsta sæti á lista VG í Reykjavík norður, segir að sín fyrstu viðbrögð – eftir að úrslit kosninganna voru ljós – séu „þakklæti, vonbrigði og ótti.“ Finnur Ricart Andrason. Finnur þótti koma frábærlega fyrir og standa sig með meira en sóma í málflutningi, rökstuðningi og yfirvegaðri framkomu; hann er einungis 22...
InnlentKraftaverk og átök í sjónvarpssal: „Þú ert orðinn svo sprækur eftir að þú dast inn á þing“ Dramatík og átök einkenndu formenn stjórnmálaflokkanna á fundi þeirra í sjónvarpssal. Endanleg úrslit kosninganna urðu ljós á meðan þátturinn stóð yfir. Þá kom í ljós að Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, lifði af og verður inni sem jöfnunarmaður. Þetta var nánast eins og kraftaverk í beinni útsendingu og Sigurður Ingi lifnaði við. Greinilegt var í þættinum að Sjálfstæðisflokkur og Flokkur...
InnlentReyndi að komast inn í húsnæði vopnaður öxi – Kastaði bjórkút og sparkaði í bíl Maður beitti exi til þess að reyna að komast inn í húsnæði í vesturborginni í nótt en honum hafði verið meinaður aðgangur. Lögreglan handtók manninn og vistaði í fangaklefa og rannsakar málið. Annar einstaklingur var handtekinn eftir að hann sparkaði í bíl og kastaði bjórkút á meðan sá þriðji var tekinn höndum eftir að hann réðist á dyravörð í miðbæ...
InnlentSamfylkingin með pálmann í höndunum – Vinstri grænir og Píratar falla af þingi Samfylkingin er sigurvegari þingkosninganna en þegar beðið er eftir síðustu tölunum hefur flokkurinn náð að bæta við sig níu þingsætum með 21,6 prósent atkvæða. Vinstri grænir og Píratar þurrkast út af þingi. Stjórnarflokkarnir gætu tapað átján þingsætum ef síðustu tölur sem enn er beðið eftir, breyta engu. Gerist það, eru það jafn mörg þingsæti og Samfylkingin og Vinstri græn töpuðu...
InnlentFyrstu tölur kvöldsins – Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn stærstu flokkarnir Fyrstu kosningatölur kvöldsins hafa verið birtar en þær koma úr Norðausturkjördæmi og Suðurkjördæmi. Þegar 2000 atkvæði hafa verið talin er Samfylkingin stærsti flokkurinn í Norðausturkjördæmi, með 22,8 prósent atkvæða. Næst stærsti flokkurinn í kjördæminu er Sjálfstæðisflokkurinn með 15,9 prósent atkvæða. Flokkur fólksins kemur rétt á eftir Sjálfstæðisflokknum með 14,5 prósent. Lítill munur er á Miðflokknum og Framsókn í kjördæminu samkvæmt...
InnlentGekk 16 kílómetra í snjóbyl til að kjósa: „Lét ákveðinn flokk eiga sig“ Tómas Guðbjartsson læknir kaus í fyrsta skipti í sinni heimabyggð í dag. Gekk hann heila 16 kílómetra í snjóbyl til að ná að kjósa. Tómas GuðbjartssonMynd: Facebook Göngugarpurinn og læknirinn Tómas Guðbjartsson gerði sér lítið fyrir í dag og gekk 16 kílómetra í snjóbyl svo hann gæti kosið í sinni heimabyggð, Bíldudal. Var hann að eigin sögn klæddur í lopapeysu...
InnlentSegir þörf á varnarmálaráðuneyti – Ísland verður beinn þátttakandi ef stríð breiðist út í Evrópu Ísland er ekki undanskilið í stríði, brjótist út vopnuð átök utan landamæra Úkraínu samkvæmt fyrrverandi skrifstofustjóra varnarmálaskrifstofu Íslands. Fram kemur í mbl.is í dag að vegna stríðsins í Úkraínu og aukinnar spennu á alþjóðavísu, standi Ísland nú frammi fyrir gjörbreyttu landslagi þegar kemur að varnarmálum. Fyrrverandi skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu, Arnór Sigurjónsson, segir í Morgunblaðinu í dag að þörf sé á sérstöku...