Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Þorgerður Katrín með flest spil á hendi: Brotthvarf Bjarna gæti opnað á stjórnarsamstarf

Þorgerður Katrín með flest spil á hendi: Brotthvarf Bjarna gæti opnað á stjórnarsamstarf
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, er með flest spil á hendi og getur ráðið því hvort mynduð verður stjórn til vinstri eða hægri. Eins og staðan er nú er lík­leg­ast að Viðreisn halli sér að Sam­fylk­ingu. Fjöl­margt sam­einar flokk­ana tvo og eftir því er tekið að Kristrún Frosta­dóttir og Þor­gerður Katrín eiga góða sam­leið.  Þær tvær ættu góðan mögu­leika á því að fá Flokk fólks­ins með. Evr­ópu­málin yrðu þá ofar­lega á baugi auk þess að hagur hinna fátæk­ustu í sam­fé­lag­inu yrði settur í önd­vegi til að Inga Sæland gæti sætt sig við sam­starfið. Ríflegur meiri­hluti er þarna nauð­syn­legur þar sem inn­an­borðs í Flokki fólks­ins eru nokkrir þing­menn sem verða að telj­ast ólík­inda­tól sem erfitt getur verið að hemja. Á móti kemur að hörku­tólið Inga Sæland á að baki þá sögu að reka þing­menn sína hik­laust úr flokki eða fram­boði ef þeir ekki ganga í takti. Klaust­ur­dón­arnir eru gott dæmi um slíkt. Meiri­hluti upp á 36 þing­menn ætti þó að duga til að tryggja frið­sam­legt sam­starf.

Viðreisn á afar tak­mark­aðan mögu­leika á sam­starfi við Sjálf­stæð­is­flokk Bjarna Bene­dikts­sonar. Þar standa Evr­ópu­málin í vegi auk þess að for­tíð Þor­gerðar og Bjarna og heift­ar­leg átök þeirra eru fyr­ir­staða. Samstarf flokk­anna tveggja að óbreyttu gæti þýtt gjör­eyð­ingu Við­reisnar í næstu kosn­ingum. Þar nægir að benda á örlög Vinstri-grænna og Bjartrar fram­tíðar þar á undan. Hvorugur flokk­ur­inn lifði af sam­starfið við Bjarna og flokk hans. Sam­starfi Bjartrar fram­tíðar og Sjálf­stæð­is­flokks­ins var líkt við að tjaldað hefði verið við hlið­ina á kjarn­orku­veri. Stór hluti kjós­enda Við­reisnar var að kjósa gegn Sjálf­stæð­is­flokknum og þeirri spill­ingu sem þar er við­loð­andi. Að óbreyttu er því nán­ast ómögu­legt fyrir Þorgerði Katrínu að feta þá sömu slóð og kost­aði VG lífið. Hún mun þurfa að mæta freist­ingum á borð við þá að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bjóði henni for­sæt­is­ráð­herra­stól­inn í rík­is­stjórn á hægri vængnum. Vandinn er þó svip­aður og vinstra megin. Mið­flokk­ur­inn er, rétt eins og Flokkur fólks­ins, illa stjórn­tækur vegna him­in­hárra lof­orða og þing­manna sem gjarnan eru utan brautar og láta illa að stjórn.  .

Sá mögu­leiki er fyrir hendi að Bjarni Bene­dikts­son axlí sína ábyrgð af verstu útkomu í sögu flokks­ins, segi af sér for­mennsku og hverfi af þingi. Þar með yrði Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir for­maður og mögu­leikar á sam­starfi flokks­ins og Við­reisnar og Mið­flokks­ins með 35 þing­menn gætu opn­ast. En þessi mögu­leiki er fjar­lægur og að minnsta kosti ekki inni í mynd­inni strax.

Stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður munu hefj­ast í fram­haldi þess að Halla Tóm­as­dóttir, for­seti Íslands, ræðir æi dag við for­menn þeirra flokka sem lifðu af ein­hvar­jar örlaga­rík­ustu kosn­ingar í sögu lýð­veld­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ