Ók fullur á tvöföldum hámarkshraða
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt vegna umferðarlagabrota og annarra verkefna á höfuðborgarsvæðinu. Fjöldi ökumanna var stöðvaður vegna hraðaksturs, aksturs undir áhrifum og aksturs án ökuréttinda. Eitt alvarlegasta tilvikið varð þegar lögregla stöðvaði ökumann sem grunaður var um ölvunarakstur. Hann mældist á 154 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80, var án ökuréttinda,...