Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Reykjavíkurborg útvistar skólaþrifum og segir upp starfsfólki

Lægstu launin skorin niður hjá Reykja­vík­ur­borg

Reykjavíkurborg útvistar skólaþrifum og segir upp starfsfólki
Skóla­liðum sagt upp og störfum útvi­stað Mynd: BHJ

Reykja­vík­ur­borg hefur sagt upp hópi skóla­liða og útvi­stað þrifum í skólum til einka­að­ila. Kári Sig­urðs­son, for­maður Sameykis, gagn­rýnir aðgerð­irnar harð­lega og segir þær auka enn á spennu í kjara­málum á við­kvæmum tíma.

Upp­sagn­irnar eru liður í víð­tækum hag­ræð­ing­ar­að­gerðum nýs meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Fram­sókn­ar­flokks, en stefnt er að því að minnka útgjöld borg­ar­innar um millj­arð króna á ári. Meðal áherslu­verk­efna meiri­hlut­ans er fækkun milli­stjórn­enda, aukin skil­virkni og útvistun verk­efna.

Lægstu launin færð til einkaaðila

Skóla­liðar sinna mik­il­vægu starfi við stuðn­ing og gæslu nem­enda á skóla­tíma, auk þess að sjá um ræst­ingar eftir að kennslu lýkur. Kári Sig­urðs­son segir ákvörð­un­ina vekja furðu, enda sé verið að ráð­ast gegn tekju­lægstu hóp­unum.

Í sam­tali við RÚV segir Kári að: „þetta séu störf sem eru þau lægst laun­uðu hjá borg­inni og eru að fara nú til einka­að­ila. Ég get illa séð að þetta sé ein­hvers konar hag­ræð­ing fyrir borg­ar­búa að útvista svona verk­efni.“ Nákvæmur fjöldi þeirra skóla­liða sem missa vinn­una liggur ekki fyrir og hafa odd­vitar meiri­hlut­ans ekki gefið kost á við­tali vegna máls­ins.

Aðeins einn upplýsingafulltrúi eftir

Þetta eru ekki einu upp­sagn­irnar hjá borg­inni í sumar, en fyrr á árinu var um tíu upp­lýs­inga­full­trúum sagt upp. Í dag starfar aðeins einn upp­lýs­inga­full­trúi hjá Reykja­vík­ur­borg. Að sögn Sameykis hefur annað starfs­fólk borg­ar­innar verið beðið um að ganga í störf þeirra, eins og að skrifa á heima­síðu borg­ar­innar, þrátt fyrir að það sé utan þeirra starfs­lýs­ingar. Sameyki hefur kraf­ist rök­stuðn­ings fyrir þeim upp­sögnum en engin svör fengið.

Óttast frekari aðgerðir fyrir mánaðamót

Reykja­vík­ur­borg er stærsti vinnu­staður lands­ins með um 11 þús­und starfs­menn, og þar af til­heyra um sex þús­und Sameyki. Formaður félags­ins segir starfs­fólk ótt­ast að frek­ari stór­ræðis­út­spil séu í vændum fyrir næstu mán­aða­mót.

Aðgerð­irnar þykja sér­stak­lega umdeildar þar sem útlit er fyrir að verð­bólga fari yfir for­sendu­á­kvæði kjara­samn­inga á næst­unni, sem gæti hleypt mik­illi óvissu í vinnu­mark­að­inn. Kári segir fram­ferði borg­ar­innar síst til þess fallið að skapa sátt á þessum tíma­punkti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum