Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sálfræðingur segir eineltisrannsókn Kristínar Helgu alvarlega gallaða

Meg­in­mark­mið rann­sóknar Krist­ínar Helgu var að skoða birt­ing­ar­myndir ein­eltis af hálfu kven­kyns ger­enda á vinnu­stöðum

Sálfræðingur segir eineltisrannsókn Kristínar Helgu alvarlega gallaða
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Zhivko Minkov/Unsplash

Vigdís Ásgeirs­dóttir, mannauðs­ráð­gjafi, sál­fræð­ingur og með­eig­andi hjá Lífi og sál, telur alvar­legan ágalla á nýlegri rann­sókn um ein­elti á vinnu­stöðum að ekki hafi verið stað­fest með form­legum hætti að þátt­tak­endur hennar hefðu orðið fyrir ein­elti.

Þetta kemur fram í aðsendri grein Vigdísar á Vísi þar sem hún fjallar um meist­ara­rit­gerð Krist­ínar Helgu Magn­ús­dóttur, sem nýverið útskrif­að­ist úr heil­brigð­is­vís­indum frá Háskól­anum á Akureyri með áherslu á sál­ræn áföll og ofbeldi.

Meg­in­mark­mið rann­sóknar Krist­ínar Helgu var að skoða birt­ing­ar­myndir ein­eltis af hálfu kven­kyns ger­enda á vinnu­stöðum og lík­am­legar og sál­rænar afleið­ingar þess fyrir þolendur.

Vigdís fagnar því að ein­elti og áhrif þess fái aukna athygli og segir rann­sókn­ar­efnið mik­il­vægt. Nið­ur­stöð­urnar bendi meðal ann­ars til þess að ein­elti af hálfu kvenna birt­ist gjarnan með óbeinum hætti, til dæmis í félags­legri úti­lokun, nið­ur­læg­ingu og gas­lýs­ingu. Slík hegðun geti verið duld­ari og því erf­ið­ari fyrir bæði starfs­fólk og stjórn­endur að greina og stöðva.

Vigdís segir reynslu Lífs og sálar af EKKO-málum, sem snúa að ein­elti, kyn­ferð­is­legri og kyn­bund­inni áreitni og ofbeldi, að mörgu leyti styðja þessar nið­ur­stöður.

Hún gagn­rýnir þó að þátt­tak­endur rann­sókn­ar­innar hafi verið skil­greindir sem þolendur ein­eltis án þess að fyrir lægi óháð stað­fest­ing á að hegð­unin sem þeir upp­lifðu félli undir skil­grein­ingu ein­eltis.

Vigdís segir að af ein­elt­is­málum sem Líf og sál hafi tekið til úttektar und­an­farin 25 ár hafi nið­ur­stöður stutt kvörtun um ein­elti í um 20 pró­sentum til­fella. Í 30 pró­sentum hafi verið um ein­stök nei­kvæð eða erfið sam­skipti að ræða en í helm­ingi til­fella hafi aðrar ástæður skýrt van­líðan við­kom­andi.

Hún tekur þó fram að ekki eigi að draga van­líðan fólks í efa. Ýmsir þættir geti valdið alvar­legri van­líðan á vinnu­stað án þess að um ein­elti sé að ræða, svo sem slakir stjórn­un­ar­hættir, streita, álag, nei­kvæð sam­skipti eða erf­ið­leikar utan vinnu.

Vigdís telur jafn­framt mik­il­vægt að meintir ger­endur fái að koma sjón­ar­miðum sínum á fram­færi þegar ein­elt­is­mál eru rann­sökuð.

Hún segir mik­il­væg­ustu nið­ur­stöður rit­gerð­ar­innar snúa að ábyrgð stjórn­enda, verk­ferlum og við­brögðum vinnu­staða við kvört­unum. Að lokum þakkar hún Kristínu Helgu fyrir að vekja athygli á mál­efn­inu og leggur til að næsta rann­sókn taki til fólks sem stað­fest hefur verið með form­legum hætti að hafi orðið fyrir ein­elti á vinnu­stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð