InnlentVegagerðin ætlar að strika aftur yfir Grindavík: „Mjög mikilvægt að við séum með rétta vegvísun“ Smári Þórólfsson björgunarsveitarmaður og Grindvíkingur tók upp á því að fjarlægja yfirstrikanir Vegagerðarinnar á nafni bæjarins á vegaskiltum. Vegagerðin ætlar að strika aftur yfir bæjarheitið. Vegagerðin strikaði víða yfir Grindavík.Mynd: Facebook Björgunarsveitarmanninnum Smára Þórólfssyni er hampað sem hetju af fjölmörgum ef marka má viðbrögð fólks á Facebook við færslu hans þar sem hann birtir myndir af sér skafa yfirstrikun Vegagerðarinnar...
InnlentEllert er látinn Ellert Eiríksson, fyrrverandi bæjarstjóri Reykjanesbæjar, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, þann 12. nóvember síðastliðinn. Ellert var 85 ára. Ellert fæddist á Járngerðarstöðum í Grindavík 1. maí 1938, sonur Eiríks Tómassonar og Hansínu Kristjánsdóttur. Þriggja ára flutti hann til Keflavíkur og gekk þar í skóla og var í fyrsta útskriftarhópnum frá Gagnfræðaskólanum í Keflavík, að því er fram kemur í frétt Mbl.is....
InnlentRólegt í Grindavík og skjálftar utan bæjarins – Vísindamenn reikna nú frekar með túristagosi Skjálftavirkni á svæðinu í kringum Grindavík er mest í Hagafelli, rúma tvo kílómetra norðan við útjaðar bæjarins. Vísindamenn halda því ekki lengur fram að hætta sé á stórgosi í bænum sjálfum en telja ýmist að gos muni verða við gígaröðina Eldvörp eða við Hagafell. Talið er að gosið verði af svipaðri stærðargráðu og fyrri gos á svæðinu. Um verði að...
InnlentForstjóri HS Orku hefur enga skoðun á nýja skattinum: „Skaðinn yrði gríðarlegur“ Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku segist ekki hafa neina skoðun á því hvernig ríkisvaldið hyggst greiða fyrir verndun og uppbyggingu innviða við Svartsengi. Hinn nýji skattur sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra lagði fram meðal annars til að fjármagna byggingu varnargarða við Svartsengi, og var samþykktur af samstarfsflokkum hennar í ríkisstjórn, hefur farið öfugt ofan í marga enda er það þekkt...
InnlentÍsraelsher segir sjúkrahús lögmæt hernaðarleg skotmörk: „Sannanir: bleyjur, dagatal, peli“ Kristinn Hrafnsson birti tíst frá Ísraelsher sem birtí gær en stuttu síðar eytt. Þar eru árásir á sjúkrahús og sjúkrabíla á Gaza réttlættar með vísun í alþjóðalög. Eftir eina árásinaMynd: Trausti Hafsteinsson Ritstjóri Wikileaks segir réttlætingu Ísraelshers á árásum á sjúkrahús Gaza, sé áróðursbragð. „Ísraelsher sendi út tíst í gær þar sem rökstutt var að sjúkrahús og sjúkarbílar á Gaza...
InnlentGrindvíkingar hvattir til að segja upp áskrift að Mogganum: Geta sparað sér 10.000 krónur á mánuði Grindvíkingar eru hvattir til að segja upp áskrift að Morgunblaðinu í færslu í íbúahópi bæjarins. Kona nokkur skrifaði færslu í hádeginu inni á íbúahópi Grindavíkur á Facebook. Þar hvetur hún Grindvíkinga til að segja upp áskrift að Morgunblaðinu, enda berst þeim engin blöð þessa dagana, eðli málsins samkvæmt þar sem búið er að rýma bæinn. Segist konan hafa hringt í...
InnlentUndrast nýjustu skattlagninguna – Nægir fjármunir til í varasjóði Þingmaður Flokks fólksins vekur athygli á því að til sé varasjóður til að bregðast við ófyrirsjáanlegum útgjöldum, þar á meðal vegna eldsumbrota á Reykjanesskaga. Hins vegar hafi talsverðar upphæðir í sjóðnum verið notaðar í leiðtogafund Evrópuráðsins í Hörpu á dögunum og vegna hælisleitenda. Á dögunum samþykkti Alþingi frumvarp Katrínar Jakobsdóttur um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga en þar er gert...
InnlentLangflestir mótfallnir auka skattlagningu til bjargar einkafyrirtækjum á Reykjanesi Niðurstaða skoðanakönnunnar Mannlífs var afdráttarlaus. Tæp 95 prósent þátttakanda var andvígur ákvörðun ríkisstjórnarinnar að leggja auka skatt á allar fasteignir í landinu. Mikil þátttaka var í könnuninni. Ekki voru nema tæp fjögur prósent sem voru hlynntir skattlagningunni. Rúmt eitt prósent tóku ekki afstöðu. Frumvarpið var lagt fram til að kosta forvarnir á mikilvægum innviðum á Reykjanesi, þar á meðal orkuverið...
InnlentLögreglan veitir aðgang að Grindavík í dag: „Fólk mæti ekki nema búið sé að hafa samband við það“ Lögreglan á Suðurnesjum hefur sent frá sér tilkynningu sem hægt er að lesa hér fyrir neðan: Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um eftirfarandi aðgang íbúa að Grindavík í dag 15. nóvember. Eingöngu fyrir íbúa sem hafa ekki komist inn á svæðið. Innkomuleiðir fyrir íbúa Grindavíkur verða tvær í dag: Um Suðurstrandarveg að austan til Grindavíkur að söfnunarstað. Þar fær...
InnlentHagafell skalf í nótt- Enginn órói mælist en beðið eftir gosi á hamfarasvæðinu í og við Grindavík Lítið fór fyrir jarðhræringum í nótt. Stærsti skjálftinn var 2,5 á Richter. Upptök hans voru við Hagafell, nokkur hundruð metra frá Þorbirni, um miðja nótt. Alls varð vart við rúmlega 500 jarðskjálfta á Reykjanesi frá miðnætti. Enginn gosórói hefur mælst á svæðinu. Vísindamenn hafa upplýst að einungis séu nokkur hundruð metrar niður á kviku þar sem grynnst er. Jarðsig er...
InnlentSkátar í hættu staddir á Vífilsfelli – Voru orðnir þrekaðir og illa til reika Hópur bandarískra skáta kom til Íslands í febrúar 1992, ásamt fimm fullorðnum einstaklingum. Tilgangur ferðarinnar var meðal annars að æfa sig í fjallaklifi og var stefnan tekin á Vífilsfellið. Alls voru unglingarnir sex og þó að DV hafi á sínum tíma fullyrt að 14 skátar hefðu verið í hópnum en eftir nákvæmar stærðfræðiæfingar, kemur í ljós að fimm plús sex...
InnlentÖryrkjar fá jólabónus en fátækt eldra fólk ekki: „Það er með öllu óboðlegt“ Öryrkjar fá jólabónus upp á 66.000 krónur. Þetta kom fram þegar fjáraukinn var kynntur á Alþingi í gær. Inga Sæland sagði í samtali við Mannlíf að Flokkur fólksins hafi barist fyrir jólabónus til handa öryrkjum „með kjafti og klóm“ og bætti við: „Og drögum ekki dul á það hvað röddin okkar er ómetanleg fyrir þá sem við berjumst fyrir.“ Tekur...