InnlentSpyrja hvar palestínski fáninn sé: „Það er ekki hægt að verja þessa slátrun með nokkrum hætti“ Borgarfulltrúar Sósíalistaflokksins vilja að fáni Palestínu verði settur upp við ráðhúsið. Kristinn Hrafnsson tekur í sama streng. Trausti Breiðfjörð Magnússon, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins skrifaði eftirfarandi færslu í Facebook-hóp Sósíalista í gær: „Sem borgarfulltrúi finnst mér ljóst að Reykjavík verður að leggja sitt af mörkum til stuðnings Palestínu. Í dag sendum við bréf á alla oddvita í borgarstjórn og spurðum hvort ekki...
InnlentGekk berserksgang í miðbænum og ógnaði fólki ítrekað Lögregla handtók mann í miðbæ Reykjavíkur í nótt eftir að hann hafði ítrekað ógnað gangandi vegfarendum og hrætt. Lögreglu bárust margar tilkynningar vegna mannsins sem varð til þess að hann var látinn gista í fangaklefa í nótt. Síðar um kvöldið hafði lögregla afskipti af manni í Hlíðunum en sá var ölvaður og illa áttaður. Manninum var ekið til síns heima....
InnlentÓsáttur Kristján Loftsson ætlar að leita réttar síns „Niðurstöðurnar eru jákvæðar og sýna fram á að þróun og fjárfesting okkar í veiðiaðferðum og veiðibúnaði eftir lok hvalvertíðar 2022 er að skila marktækum árangri. Ég bendi þó á að þessar breytingar höfðu þegar verið innleiddar í júní 2023, áður en ráðherra tók ákvörðun sína um að stöðva hvalveiðar,“ er haft eftir Kristjáni Loftssyni, framkvæmdastjóra Hvals hf. í Morgunblaðinu í...
InnlentGabríel Duane er sá sem hlaut skotsár í Úlfarsárdal – Dæmdur í tveggja ára fangelsi í fyrra Sá sem hlaut skotsár á kálfa á í Úlfarsárdal á dögunum er sjálfur með ofbeldisdóma á bakinu. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Mannlífs er maðurinn sem varð fyrir skoti í árás í Úlfarsárdal á fimmtudaginn er Gabríel Duane Boam, sem fyrir ári var dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar á Hólmsheiði fyrir þátt sinn í Borgarholtsskólamálinu svokallaða og tvær aðrar líkamsárásir. Gabríel, sem...
InnlentSigfús er látinn Séra Sigfús Baldvin Ingvason, fyrrverandi prestur í Keflavík, er látinn sextugur að aldri. Hann fæddist á Akureyri þann 10. apríl árið 1963. Foreldrar hans eru Ingvi Svavar Þórðarson og Ásgerður Snorradóttir. Frá andlátinu er sagt á kirkjan.is. Sigfús varð cand. theol. frá Háskóla íslands 1. febrúar árið 1992. Hann hafði um tíma umsjón með sunnudagaskóla í Digranessókn og sá um...
InnlentNafn drengsins sem lést á Ásvöllum Drengurinn sem lést í slysinu á Ásvöllum mánudaginn 30. október hét Ibrahim Shah Uz-Zaman. Ibrahim fæddist í janúar 2015 og var því átta ára gamall. Í tilkynningu á vefsíðu Hraunvallaskóla í Hafnarfirði, þar sem Ibrahim stundaði nám, kemur fram að minningarathöfn hafi verið haldin í veislusal Hauka á Ásvöllum í gær en þangað voru allir boðnir velkomnir til að minnast...
InnlentFagstjóri nátturuvöktunar segir atburðinn við Þorbjörn kröftugri en áður hefur sést Atburðirnir við Þorbjörn eru kröftugri en áður hefur sést á svæðinu. Samkvæmt Kristínu Jónsdóttur, fagstjóra náttúruvöktunar hjá Veðurstofu Íslands, hafa mælst um 1300 jarðskjálftar á Reykjanesskaga undanfarið, þar af þrír yfir 3 að stærð. Í morgun hafi sá stærsti orðið klukkan sjö í morgun en hann var 3,6 að stærð og varð um þrjá kílómetra NA við Þorbjörn. Þetta kom...
InnlentEdda hæðist að forstjóra sjókvíeldsifyrirtækis: „Hjálpið þeim að rústa íslenska laxastofninum“ Edda Björgvinsdóttir hæðist að orðum forstjóra Sjømat Norge, sem sér enga ástæðu til að merkja sýkta laxa sérstaklega í verslunum. Leikkonan og þjóðargersemin Edda Björgvinsdóttir hæðist að stjórnanda Sjømat Norge, Jon Arne Grøttum í nýrri færslu á Facebook. Við færsluna birti hún skjáskot úr frétt þar sem Grøttum segir það alveg óhætt að borða sýktan lax og að hann finni...
InnlentVill að þjóðin biðji Íra og Skota afsökunar: „Nú er lag að Íslendingar afsaki það ódæði“ Ólafur Haukur Símonarson vill að Íslendingar biðjist opinberlega afsökunar á mannráni forfeðranna á írskum og skoskum konum. Leikritaskáldið Ólafur Haukur Símonarson skrifaði færslu á dögunum þar sem hann talar um afsökunarbeiðnir þjóða. Talar hann til að byrja með um afsökunarbeiðni forseta þýskalands, á glæpum Þjóðverja gegn íbúum Tansaníu þegar landið var nýlenda Þýskalands. „Líklega biðjast menn aldrei of oft afsökunar....
InnlentTelur þú stjórnvöld sofa á verðinum gagnvart mögulegu gosi? Miklar jarðhræringar ganga nú yfir í Svartsengi og telja sérfræðingar svæðið líklegt til goss. Á svæðinu er bæði orkuver HS veitna sem skilar íbúum Reykjaness bæði heitu vatni og rafmagni. Komið hefur fram að einungis einn rafmagnsstrengur liggur inn í Grindavík og fer hann um svæðið. Hitavatnslaust gæti orðið með öllu með tilheyrandi tjóni á lögnum. Auk þessa heldur Bláa...
InnlentRannveig Borg: „Var orðin háð því að kasta upp þar til það leið yfir mig” Rannveig Borg, lögfræðingur og rithöfundur segir hræðilegt að missa tökin á eigin lífi inn í heim fíknar. Rannveig, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar glímdi í áraraðir við átröskun, sem bjó til mikla skömm og fór með hana á dimma staði: „Mér finnst ennþá á ákveðinn hátt erfitt að tala um átröskunina. Þetta er svo persónulegt og það...
InnlentÁhyggjufullur íbúi hringdi í lögreglu fyrir mistök Lögreglu barst tilkynning um grunsamlegar mannaferðir í gærkvöldi. Þegar lögregla kom á vettvang kom í ljós að um misskilning var að ræða þar sem íbúi hafði aðeins sleppt hundinum sínum út til þess að gera þarfir sínar. Síðar um nóttina barst lögreglu tilkynning um brunalykt í efri byggðum höfuðborgarsvæðisins. Þar kom í ljós að útidyrahurð stóð í ljósum logum og...