InnlentUtanríkisráðherra fluttur með hraði á sjúkrahús Indverskir fjölmiðlar hafa nú greint frá því að utanríkisráðherra Rússlands, Sergei Lavrov, hafi verið fluttur með hraði á sjúkrahús. Var utanríkisráðherrann þá nýkominn til Bali; þar sem hann sat fund tuttugu helstu iðnríkja heims. Rússnesk yfirvöld hafa ekki staðfest fréttina, en óstaðfestar fréttir herma að Lavrov hafi kvartað undan miklum verkjum við hjartað. Lavrov fer fyrir sendinefnd Rússa á Bali;...
InnlentSigurður Ingi um sjávarútveginn: „Um hann ríkir ekki friður og hefur ekki gert um langa tíð“ Innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, Sigurður Ingi Jóhannsson, gerði heilbrigðiskerfið, sjávarútveginn sem og sjálfbærni Íslendinga í orkumálum að umræðuefni á haustþingi Framsóknarflokksins, sem haldið er á Ísafirði. Sigurður Ingi sagði enga sátt ríkja um sjávarútvegsmálin hér á landi: „Um hann ríkir ekki friður og hefur ekki gert um langa tíð. Nú stendur yfir vinna þar sem reynt er að skapa sátt...
InnlentStrætó stóð í ljósum logum – Maður neitaði að færa sig af akbraut Þjófur braust inn á lager herbergi á veitingastað í miðbænum í gærkvöldi og stal áfengi og bakpoka með „ DJ – græjum“. Þegar lögregla skoðað upptökur í öryggiskerfi staðarins kom í ljós að maðurinn var kunnulegur og var hann handtekinn síðar um nóttina. Maðurinn viðurkenndi brotin en var í annarlegu ástandi og því látinn gista í fangaklefa lögreglu. Síðar um...
InnlentBrynjar hefur fengið upp í kok af frekjunni á Íslandi – Lætur „forréttindaliðið“ fá það óþvegið Brynjar Níelsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, er ekki þekktur fyrir að birta hófsama og varkára pistla á Facebook. Sjaldan hefur hann þó birt svo mikinn reiðilestur og nú. Brynjar virðist endanlega hafa fengið nóg af því fólki sem hann kallar „frekju-og forréttindaliðið“. Hér fyrir neðan má lesa pistilinn í heild sinni en Brynjar fer um víðan völl og er óhætt að segja...
InnlentEinar bjargaði líklega mannslífi með því að æfa í 50 klukkutíma: „Einar minn. Það er ótrúlegt“ „Fulltrúi Píeta samtakanna sagði svo að það væri ekki hægt að lýsa með orðum hvað væri búið að gerast í samfélaginu undanfarna daga: „Við finnum þetta um allt land. Vitundarvakningin sem varð í þessu verkefni, Einar minn. Það er ótrúlegt.“ Einar safnaði ekki bara peningum sem eiga eftir að nýtast Píeta samtökunum vel. Fólk sem fylgdist með honum hafði líka...
InnlentDagur og meirihlutinn vildu ekki draga úr einkaþotum á Reykjavíkurflugvelli Allir borgarfulltrúar utan VG og Sósíalista kusu á fimmtudaginn gegn því að borgin myndi reyna að draga úr umferð einkaþotna og þyrlna í einkaerindum um Reykjavíkurflugvöll. VG lögðu fram tillöguna. Undanfarna mánuði hefur sú umferð verið gagnrýnd frá ýmsum hliðum. Mannlíf greindi til dæmis frá því í sumar að leiguplássið væri hlægilega ódýrt þó það væri fyrir velstætt fólk. Í...
InnlentAðstoðarmaður Jóns: „Fyrir tíu árum sóttu 118 einstaklingar um vernd, en í ár 5.000“ Sjálfstæðismaðurinn Ingvar Smári Birgisson segist á Facebook ekkert botna í umræðunni á Íslandi hvað varðar útlendingamál. Hann segir Ísland taka á móti fleiri flóttamönnum en öll Norðurlöndin og einnig sé löggjöfin opnari hér. Þetta þýði meðal annars að á einungis tíu árum hafa umsóknir um vernd farið frá 118 á ári, í nærri fimm þúsund. Ingvar tók nýverið við sem...
InnlentKatrín fann sig hjá Guðmundi í Brim: „Eftirminnileg fyrsta snerting við sjávarútveg“ „Fyrir einhverjum árum, líklega snemma árs 2020, heimsótti ég Brim úti á Granda og var þar að spjalla við Guðmund Kristjánsson útgerðarmann og kynna mér starfsemi fyrirtækisins. Ég var þá að reyna að rifja upp hvort ég væri ekki stödd í gamla húsnæði Bæjarútgerðar Reykjavíkur – BÚR – en þangað hafði ég komið í heimsókn í átta ára bekk í...
InnlentHell´s Angels sagðir á leið í partý í Reykjavík – 22 hent út úr landi Ríflega tuttugu liðsmönnum glæpasamtakanna Hell’s Angeles var vísað úr landi í morgun. Mikil viðbúnaður var á Leifstöð vegna komu þeirra. Mennirnir voru ekki allir í sama flugi því sumir komur frá Danmörku, en aðrir frá Þýskalandi og nokkrir frá Svíþjóð.. Vísir greindi fyrst frá málinu en RÚV segir að talið sé að mennirnir hafi verið á leið hingað í einhvers...
InnlentSláandi verðmunur á íslenskum náttúrulaugum: Bláa lónið er langdýrast og Fontana ódýrast Eitt af því sem við Íslendingar erum rík af er vatnið, heitt og kalt. Það heillar jafnt landsmenn sem erlenda ferðamenn sem hingað koma. Á síðustu árum hefur aukist mjög framboð á ýmsum, manngerðum, náttúrulaugum. Umfjöllun um þessi mál eru í nýjasta hefti Mannlífs. En það er ekki ókeypis að heimsækja þessa staði og verðmunur er sláandi. Ódýrast er að...
InnlentKjarnamenn vilja þrjár milljónir frá Páli – Enginn mætti í dómsal nema alræmdir lögmenn Blaðamenn Kjarnans, Þórður Snær Júlíusson og Arnar Þór Ingólfsson, krefjast hvor um sig 1,5 milljóna króna frá Páli Vilhjálmssyni, umdeilds framhaldsskólakennara og bloggara, fyrir það sem þeir telja ærumeiðandi ummæli á bloggi hans. Auk þess fara þeir fram á að tvö ummæli verði dæmd dauð og ómerk. Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær en Fréttablaðið greinir frá...
InnlentKatrín Jak tók á móti hinsegin ungmennum: „Hinsegin ungmenni eiga að fá að upplifa öryggi“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra stendur í ströngu þessa dagana vegna hælisleitendamála en í gær nýtti hún stund milli stríða og fundaði með Hinsegin félagsmiðstöðinni. Katrín tók á móti sex ungmennum frá Hinsegin félagsmiðstöðinni og sagði samtalið við þau áhrifamikið, í færslu sem hún skrifaði á Facebook en færslan vakti gríðarmikla athygli enda um að ræða málefni sem þarft er að ræða:...