Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Aðstoðarmaður Jóns: „Fyrir tíu árum sóttu 118 einstaklingar um vernd, en í ár 5.000“

Sjálfstæðis­maðurinn Ingvar Smári Birgisson segist á Facebook ekkert botna í umræðunni á Íslandi hvað varðar útlendingamál. Hann segir Ísland taka á móti fleiri flótta­mönnum en öll Norður­löndin og einnig sé löggjöfin opnari hér. Þetta þýði meðal annars að á einungis tíu árum hafa umsóknir um vernd farið frá 118 á ári, í nærri fimm þúsund. Ingvar tók nýverið við sem aðstoðar­maður Jóns Gunnars­sonar innan­ríkis­ráðherra, en gagnrýni á útlendinga­stefnu ríkis­stjórnarinnar hefur mikið til beinst að honum.

„Ég er ekki einn um að finnast umræðan um útlendingamál hafa verið furðuleg á Íslandi sl. vikur og mánuði. Lítil dýpt hefur verið í umræðunni, hvað þá yfirvegun. Það er vonandi að við finnum þessum mála­flokki málefna­legan farveg og höfum í huga að upplýst umræða í dag kemur í veg fyrir öfga fram­tíðarinnar,“ segir Ingvar.

„Fyrir tíu árum sóttu 118 einstaklingar um alþjóð­lega vernd en í ár munu u.þ.b. 5.000 umsóknir berast. Mála­flokkurinn hefur því ekki þróast á liðnum áratugi heldur beinlínis stökkbreyst. Frá árinu 2019 höfum við tekið hlutfalls­lega á móti fleiri umsækjendum en öll Norður­löndin og erum með opnari löggjöf en þau í mála­flokknum. Þannig það er ekki hægt að halda því fram að Ísland sé með fríspil hvað mála­flokkinn varðar sökum land­fræðilegrar stöðu. Verndar­kerfinu, ólíkt innflytjenda­kerfinu almennt, fylgja alls kyns félagslegar skyldur, svo sem um húsnæði, fram­færslu, heilbrigðis­þjónustu o.s.frv. Það er því alveg eðlilegt og líklega nauðsynlegt að hér eigi sér stað umræða um þolmörk félags­lega kerfisins og hvernig best sé að takast á við þessa áskorun.“

Ingvar heldur áfram og segir að það yrði engum til góðs ef ráðherra færi að skipta sér af löggæslu- og dómsmálum. „Annað er að þessi mála­flokkur á það sameiginlegt með löggæslu- og dómsmálum að vera tiltölu­lega sjálf­stæður frá áhrifum ráðherra. Ráðherra skiptir sér ekki af einstökum málum og í tilviki útlendinga­mála starfar sjálfstæð kærunefnd útlendinga­mála sem fer ítarlega yfir mál hvers og eins umsækjanda. Ráðherra hvorki hvetur lögreglu til þess að framkvæma einstakar brott­vísanir eða grípur inn í og stöðvar einstakar brott­vísanir. Að sama skapi mælir ráðherra ekki fyrir um niður­stöður í einstökum málum. Það gilda einfald­lega lög um mála­flokkinn sem stofnanir á sviði útlendinga­mála framkvæma, að teknu tilliti til fordæma sem kærunefnd útlendinga­mála og dómstólar setja með sínum úrlausnum. Ég veit ekki hvort þetta sé eitthvað sem fólk vill raun­verulega víkja frá,“ segir Ingvar.

Hann segir að lokum að umræðan á Íslandi undan­farið virðist ekki í takt við raun­veruleikann. „Umræðan hjá sumum hérna heima er í slíkum skurði að nær öll ríki Evrópu þykja ómannúðleg í mála­flokknum. Norður­löndin eru þar fremst í flokki að mati sumra og það er ómögulegt að Ísland taki upp sambærilega löggjöf og í nágranna­ríkjum okkar. Þegar allir hafa rangt fyrir sér, nema þú sjálfur, þá þarftu stundum að endurmeta þær upplýsingar sem þú hefur undir höndum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning