Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Sigurður Ingi um sjávarútveginn: „Um hann ríkir ekki friður og hefur ekki gert um langa tíð“

Sigurður Ingi Jóhannsson.
Sigurður Ingi Jóhanns­son.

Innviða­ráðherra og formaður Framsóknar­flokksins, Sigurður Ingi Jóhannsson, gerði heilbrigðis­kerfið, sjávar­útveginn sem og sjálfbærni Íslendinga í orkumálum að umræðu­efni á haust­þingi Framsóknar­flokksins, sem haldið er á Ísafirði.

Sigurður Ingi sagði enga sátt ríkja um sjávar­útvegs­málin hér á landi:

„Um hann ríkir ekki friður og hefur ekki gert um langa tíð. Nú stendur yfir vinna þar sem reynt er að skapa sátt um þessa mikilvægu atvinnu­grein.

Í hverju felst ágrein­ingurinn?

Sumir segja að sjávar­útvegurinn greiði allt of lítið til samfélagsins og er þá helst litið til veiði­gjalda. Aðrir telja að greinin greiði helst til mikið. Sjávar­útvegurinn er settur saman af mjög ólíkum fyrir­tækjum sem sum berjast í bökkum á meðan önnur græða stórkost­lega á aðganginum að auðlindinni okkar og þeim mögu­leikum sem vinnslan, nýtingin og markaðs­aðstæður bjóða upp á.

Ég hef áður fjallað um nauðsyn þess að gera breytingar á kerfinu í sjávar­útvegi. Ég hef talað fyrir því að það verði staðfest í stjórnar­skrá að fiskurinn í sjónum sé eins og aðrar auðlindir landsins í eigu þjóðarinnar. Ég hef lagt áherslu á það verði að nást sátt um að stærri hluti af ofur­hagnaði einstakra fyrir­tækja renni til þjóðarinnar.“

Hann bætti þessu við:

„Það má nefnilega ekki verða þannig að auknar álögur á sjávar­útveginn verði til þess að þeir sem minna bolmagn hafa verði undir og samþjöppunin verði enn meiri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning