Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Einar bjargaði líklega mannslífi með því að æfa í 50 klukkutíma: „Einar minn. Það er ótrúlegt“

„Fulltrúi Píeta samtak­anna sagði svo að það væri ekki hægt að lýsa með orðum hvað væri búið að gerast í samfélaginu undan­farna daga: „Við finnum þetta um allt land. Vitundar­vakningin sem varð í þessu verkefni, Einar minn. Það er ótrúlegt.“ Einar safnaði ekki bara peningum sem eiga eftir að nýtast Píeta samtökunum vel. Fólk sem fylgdist með honum hafði líka samband við Píeta og leitaði sér hjálpar og þar með var markmiði náð.“

Svo segir í stöðu­færslu líkams­ræktar­stöðvarinnar Afrek þar sem farið er yfir niður­stöðu aflraunar Einars Hansberg. Hann lauk í gærkvöldi 50 klukku­tímum af viðstöðu­lausum æfingum. Tilgangurinn var göfugur því með þessu vildi Einar vekja athygli á mik­il­vægu starfi Píeta-sam­tak­anna á Íslandi. Kveikjan af þolrauninni var andlát móður­bróður Einars sem lést fyrir ári síðan, einungis 56 ára.

Líkt og fyrr segir þá telja samtökin að átak Einars hafi jafnvel bjargað mannslífi þar sem fólk leitaði sér hjálpar eftir að hafa fylgst með honum. Hér fyrir neðan má lesa færslu Afreks í heild sinni en þar kemur jafnframt fram hvernig sé hægt að leggja málefninu lið.

Takk fyrir okkur, Einar!

Eins og Einar sagði sjálfur þegar fagnaðar­látunum lauk eftir síðustu réttstöðu­lyftuna klukkan 17.57 á sunnudag: Auðvitað þarf maður ekki að grilla á sér líkamann í 50 klukku­tíma til að sýna að maður sé góð manneskja. Hann ákvað samt að gera það fyrir málefni sem skiptir máli.

Fulltrúi Píeta samtak­anna sagði svo að það væri ekki hægt að lýsa með orðum hvað væri búið að gerast í samfélaginu undan­farna daga: „Við finnum þetta um allt land. Vitundar­vakningin sem varð í þessu verkefni, Einar minn. Það er ótrúlegt.“

Einar safnaði ekki bara peningum sem eiga eftir að nýtast Píeta samtökunum vel. Fólk sem fylgdist með honum hafði líka samband við Píeta og leitaði sér hjálpar og þar með var markmiði náð.

Við í Afreki erum ótrúlega þakklát fyrir að fá að hýsa þetta verkefni og taka þátt í því með Einari, fjöl­skyldu hans og vinum. Við munum aldrei gleyma þessum dögum.

Við fyrstu sýn leit þetta út fyrir að vera bara hraustur maður að framkvæma margar og krefjandi æfingar í langan tíma en á þessum 50 klukku­stundum tókst Einari að kjarna algjör­lega það sem þurfti að koma á framfæri: Verum til staðar fyrir hvort annað, hlustum. Hann sýndi okkur að sterkir strákar gráta, þiggja aðstoð og halda áfram. Og auðvitað orðaði hann þetta best sjálfur uppi á kassa í Skógar­hlíð eftir 50 klukku­stunda puð: „Við erum ekki bara hér fyrir okkur sjálf, heldur erum við hérna fyrir aðra líka.“

Takk fyrir að leyfa Afreki að vera hluti af þessu verkefni, Einar — að æfa í 50 klukku­tíma er rosalegt afrek en mesta afrekið er að vera með svona risastórt hjarta

Píeta-sím­inn er op­inn all­an sól­ar­hring­inn: 552-2218

Reikn­ings­núm­er sam­tak­anna fyr­ir frjáls fram­lög: 0301-26-041041, Kt: 410416-0690

Embætti land­lækn­is bend­ir á að mik­il­vægt sé að þeir sem glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir segi ein­hverj­um frá líðan sinni, hvort sem er aðstand­anda eða hafi sam­band við Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717, eða á net­spjalli 1717.is, við hjúkr­un­ar­fræðing í net­spjalli á heilsu­vera.is eða við ráðgjafa í síma Píeta-sam­tak­anna s. 552-2218. Píeta-sam­tök­in bjóða einnig upp á ráðgjöf og stuðning fyr­ir aðstand­end­ur þeirra sem glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir. Fyr­ir þau sem misst hafa ást­vin í sjálfs­vígi bend­ir land­læknis­embættið á stuðning í sorg hjá Sorg­armiðstöðinni í síma 551-4141 og hjá Píeta-sam­tök­un­um í síma 552-2218

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning