Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Katrín fann sig hjá Guðmundi í Brim: „Eftirminnileg fyrsta snerting við sjávarútveg“

„Fyrir einhverjum árum, líklega snemma árs 2020, heimsótti ég Brim úti á Granda og var þar að spjalla við Guðmund Kristjánsson útgerðar­mann og kynna mér starfsemi fyrir­tækisins. Ég var þá að reyna að rifja upp hvort ég væri ekki stödd í gamla húsnæði Bæjar­útgerðar Reykja­víkur – BÚR – en þangað hafði ég komið í heimsókn í átta ára bekk í Langholts­skóla. Heim­sóknin hefur alltaf verið mér mjög minnis­stæð af einhverjum orsökum – fyrir átta ára stelpu var þetta eftir­minnileg fyrsta snerting við sjávar­útveg og fisk­vinnslu.“

Svo hefst færsla Katrínar Jakobs­dóttur forsætis­ráðherra á Facebook en þar segir hún frá því hvernig málverk eftir hana, ásamt öðrum, hafi ratað á vegg útgerðar­félagsins Brim. Málverkið teiknaði hún í grunn­skóla ásamt bekkjar­félögum. Hún uppgötvaði svo á dögunum að það hangir enn hjá Guðmundi Kristjáns­syni.

„Umsjónar­kennari minn á þessum tíma var Vilhelmína Þ. Þorvarðar­dóttir (einstakur kennari) og í fram­haldinu vorum við látin vinna stór myndverk um heim­sóknina en mynd­mennta­kennarinn okkar var lista­konan Anna Cynthia Leplar ef minnið svíkur mig ekki algjör­lega. Ég var þar í hópi með fjórum eða fimm bekkjar­félögum (sem kannski muna eftir þessu líka) og við unnum feykifína mynd. Þetta hefur verið á því herrans ári 1985 og færðum við Bæjar­útgerðinni myndina í kjölfarið. Um það birtist frétt í DV sem mér þótti mjög merkileg og þóttist nú hafa náð ákveðnum hápunkti í tilverunni,“ segir Katrín.

Hún segist svo hafa séð myndina með eigin augum í vikunni. „Nema hvað, ég nefni þetta við Guðmund í þessari heimsókn og varð hann þá uppnuminn mjög og taldi víst að myndin væri enn til. Mér þótti nú harla ótrúlegt að hún væri enn samhangandi 35 árum síðar en hann reyndist sem sagt hafa rétt fyrir sér! Myndin hangir nú á ganginum í Brimi og í vikunni varð sá stór­atburður að ég fékk að líta hana augum. Ég er mjög stolt af því að vera meðhöfundur að þessu fallega verki og vona að gamlir bekkjar­félagar gleðjist með mér að vita af myndinni á góðum stað!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning