Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Brynjar hefur fengið upp í kok af frekjunni á Íslandi – Lætur „forréttindaliðið“ fá það óþvegið

Brynjar Níelsson
Brynjar Níelsson

Brynjar Níelsson, vara­þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, er ekki þekktur fyrir að birta hófsama og varkára pistla á Facebook. Sjaldan hefur hann þó birt svo mikinn reiði­lestur og nú. Brynjar virðist endanlega hafa fengið nóg af því fólki sem hann kallar „frekju-og forréttinda­liðið“. Hér fyrir neðan má lesa pistilinn í heild sinni en Brynjar fer um víðan völl og er óhætt að segja að hann láti þennan hóp fá það óþvegið

Pistill Brynjars í heild sinni

Mér sýnist að frekju- og forréttinda­liðið sé á góðri leið með að taka yfir Ísland. Forréttinda­liðið úr lista-og menningar­elítunni, sem fær fram­færslu frá skatt­greiðendum til að sinna hugðar­efnum og áhuga­málum sínum, finnst jafn sjálfsagt að fólk hvaðanæva úr heiminum fái heimili og fram­færslu frá sömu skatt­greiðendum eins lengi og þeir kjósi. Þetta sama fólk er gjarnan að berjast gegn spillingu en ætlast til að ráðherra breyti ákvörðunum lögmætra stjórn­valda eftir eigin geðþótta. Ofstopinn í þessu fólki er oft svo mikill að það ýmist ræðst fýsískt að ráða­mönnum og skemmir eignir eða líkir ráða­mönnum við mestu ofbeldis­menn og harðstjóra sögunnar. Þeir mildari í þessum hópi láta duga útilokanir og smánun.

Aðrir og ekki síðri frekju­stampar eru þeir sem krefjast óskertrar fram­færslu almanna­trygginga óháð atvinnu­tekjum. Þetta eru gjarnan sjálf­stæðir atvinnu­rekendur og  gamlir skalla­popparar sem unnu svart stóran hluta starfs­ævinnar og greiddu því lítinn sem engan tekju­skatt í ríkissjóð og þar af leiðanda ekki í lífeyris­sjóð. Nú  telja þau það mann­réttindamál að Þorsteinn Már í Samherja fái fulla fram­færslu frá almanna­tryggingum ofan á milljarða arðgreiðslur. Íslenskir skatt­greiðendur er mögnuð auðlind sem gæti nýst öllum heiminum og er greini­lega ótakmörkuð í huga forréttinda­liðsins.

Þá er þessi femíníski heimur að fyllast af frekju- og forréttinda­liði, sem  upplifir sig kúgað og mismunað alla daga. Er það ekki bundið við lista-og menningar­liðið heldur gefur íþrótta­heimurinn lítið eftir. Nú er það stórkostleg mismunun hvort það er einni rósinni minna eða meira í blóm­vendinum eftir 50 lands­leiki eða hvort árituð treyja er síðerma eða stutterma eftir 100 leiki. Ég hef fylgst með íþróttum alla ævi og man þá tíð þegar verið var að reyna að koma á og efla kvenna­deildir í mínu félagi. Það voru karlar sem drifu það áfram. Þeir þjálfuðu, dæmdu leikina, söfnuðu peningum o.s.frv. Gekk satt að segja illa að fa konur til þessara starfa og skilst að það gangi ekkert sérlega vel heldur í dag. Svo er kvartað í dag ef ekki eru konur í helstu stjórnunar­stöðum í þessum samböndum og hversu karllægur hann sé með tilheyrandi kúgun og ofbeldi.

Þeim sem verður misboðið eftir þessa færslu og telja að pólitískur aðstoðar­maður ráðherra hafi ekki tjáningar­frelsi og það sé hneyksli og frétt að hann haldi ræðu á herra­kvöldum ættu að endur­vekja gömlu undir­skrifta­söfnunina þar sem ráðningu hans var mótmælt. Svo er alltaf hægt að boða til mótmæla fyrir utan ráðuneytið. Vil ég benda væntanlegum mótmælendum á að ráðuneytið er flutt í Borgartún 26.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning